Markaðsstjórar hækka hlutfallslega mest

Samkvæmt launa­könnun VR fyrir árið 2018 hækk­uðu heild­ar­laun félags­manna um 6,1 pró­sent milli jan­úar 2017 og 2018.

1. maí-ganga VR 2018.
1. maí-ganga VR 2018. Mynd: Bára Huld Beck

Grunn­laun mark­aðs­stjóra hækk­uðu mest árið 2017 eða um 14,8 pró­sent og heild­ar­laun um 12,2 pró­sent. Þar á eftir hækk­uðu grunn­laun aðal­bók­ara næst mest eða um 10,2 pró­sent. Þetta kemur fram í nýrri launa­könnun VR. 

Heild­ar­laun félags­manna VR voru um 668 þús­und krónur á mán­uði að með­al­tali í jan­úar á þessu ári og hækk­uðu um 6,1 pró­sent frá jan­úar 2017 en þá voru þau um 630 þús­und, sam­kvæmt könn­un­inni. Grunn­laun voru um 622 þús­und og hækk­uðu um 5,9 pró­sent frá jan­úar 2017 þegar þau voru 588 þús­und. Launa­vísi­tala VR, sem mælir breyt­ingar á launum félags­manna yfir lág­marks­launum, hækk­aði um 6,25 pró­sent á sama tíma­bili en kjara­samn­ings­bundnar launa­hækk­anir voru 4,5 pró­sent frá 1. maí 2017.

Grunn­laun kerf­is­fræð­inga með háskóla­próf hækk­uðu minnst og í reynd lækk­uðu þau um 1,6 pró­sent. Heild­ar­laun þeirra hækk­uðu þó um 3,8 pró­sent. Grunn­laun sölu­stjóra hækk­uðu minnst þar á eftir eða um 1,3 pró­sent og sér­hæfðra rit­ara um 1,5 pró­sent. Grunn­laun fólks sem starfar við gesta­mót­töku hækk­uðu um 2,3 pró­sent en heild­ar­launin aftur á móti um 13,8 pró­sent.

Hægt er að skoða breyt­ingar á með­al­tali grunn­launa og heild­ar­launa milli áranna 2017 og 2018 hér.

[adspot]

Launamunur kynjanna óbreyttur

Munur á heild­ar­launum karla og kvenna er nú 13,4 pró­sent, sam­kvæmt könn­un­inni, en kyn­bund­inn munur, þegar búið er að taka til­lit til helstu áhrifa­þátta á laun, er 10 pró­sent sam­an­borið við 11,3 pró­sent í fyrra. Breyting milli ára er ekki mark­tæk, segir í frétt VR um málið, og þarf að fara aftur til árs­ins 2001 til að sjá mark­tæka breyt­ingu, að þeirra mati.

Félags­menn VR vinna að með­al­tali 42,9 stundir á viku hverri og er þetta í fyrsta skipti sem vinnu­vikan er styttri en 43 stundir í launa­könnun félags­ins. Lengst var hún um 45 stundir að með­al­tali á árunum fyrir hrun, segir í frétt­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stéttarfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár