Tuttugu þjónustufulltrúar í Hörpu segja upp vegna hækkana forstjóra

Miklar launa­hækk­anir for­stjóra lögð­ust illa í starfs­fólk Hörpu.

Tuttugu þjón­ustu­full­trúar í Hörpu hafa ákveðið að segja upp störfum sínum í kjöl­far fundar með Svan­hildi Kon­ráðs­dóttur, for­stjóra Hörpu, í dag.

Frá þessu er greint í frétta­til­kynn­ingu frá full­trú­unum.

Ástæðan er óánægja með launa­hækkun for­stjór­ans, upp á um 20 pró­sent, en stutt er síðan að starfs­fólk í Hörpu tók á sig launa­lækk­anir vegna erf­ið­leika í rekstri.

Fund­ur­inn var boð­aður eftir fréttir um þjón­ustu­full­trúa í Hörpu sem ofbauð svo launa­hækkun Svan­hildar að hann sagði upp. „Stuttu eftir að laun for­stjóra voru hækkuð af stjórn Hörpu, voru laun þjón­ustu­full­trúa lækkuð. Á fund­inum stað­festi Svan­hildur að þjón­ustu­full­trúar Hörpu væru einu starfs­menn­irnir sem gert var að taka á sig beina launa­lækkun. Hópur starfs­manna sem þá þegar var launa­lægstur allra starfs­manna Hörpu,“ segir í til­kynn­ingu.

Eftir fund­inn voru margir þjón­ustu­full­trúar ósáttir við skýr­ingar for­stjór­ans, sam­kvæmt til­kynn­ing­unni, þá sér­stak­lega um það af hverju engir aðrir starfs­menn húss­ins hafi þurft að taka á sig launa­lækkun.

Ákváðu því allir þjón­ustu­full­trúar sem sátu fund­inn að segja þegar upp störfum, 15 tals­ins og nokkrir aðrir í kjöl­farið. „Meðal þeirra sem sögðu upp voru t.d. nokkrir búnir að vinna í Hörpu frá opnun og flestir með langan starfs­aldur, meðal ann­ars allir vakt­stjórar [...] Svan­hildur tal­aði um að á sínum tíma eða í sept­em­ber 2017, hefðu launa­lækk­anir þjón­ustu­full­trúa verið mildar aðgerðir sem væru hluti af sam­stilltu átaki um að rétta af fjár­hag Hörpu. Af þessu má sjá að ákveðið mis­ræmi er greini­lega í þeirri stað­hæf­ingu þar sem aðeins lægst laun­uðu starfs­menn húss­ins hafa tekið á sig beina launa­lækkun,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Íslenska ríkið á 54 pró­sent í Hörpu en Reykja­vík­ur­borg 46 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár