16 framboð skiluðu inn listum, Kallalistinn hættur við

16 af 17 fram­boðum skil­uðu inn end­and­legum fram­boðs­listum fyrir næst­kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar.

Framboðsfresturinn rann út í dag kl. 12.
Fram­boðs­frest­ur­inn rann út í dag kl. 12. Mynd: Birgir Þór Harðarson

16 flokkar hafa skilað inn listum í næst­kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum, en frest­ur­inn rann út í hádeg­inu í dag. Þetta kemur fram á vef RÚV.

[links]Alls höfðu 17 flokkar til­kynnt fram­boð, en fram­boðs­lista Kalla­lista Karls Th. Birg­is­sonar var ekki skilað á til­teknum tíma. Samkvæmt við­tali Karls við Herðu­breið

voru Edda Björg Eyj­ólfs­dóttir leik­kona, Karl Ægir Karlsson pró­fessor, Helen Sjöfn Stein­ars­dóttir fv. kenn­ari og séra Davíð Þór Jónsson öll orðuð við list­ann.

Af umræddum 16 flokkum sem eru í kjöri telst lík­legt að sjö þeirra nái inn borg­ar­full­trúa, sam­kvæmt kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar þann 27. apríl síð­ast­lið­inn. Búist er þó við ein­hverjum breyt­ingum fram að kosn­ingum þar sem greina má hraða fjölgun þeirra sem ætla að kjósa flokka sem standa utan Alþingis.[adspot]

Framboð sem skiluðu inn listum til sveitastjórnakosninga:

  • Alþýðu­fylk­ingin
  • Borgin okkar - Reykja­vík
  • Flokkur fólks­ins
  • Framsókn
  • Frels­is­flokk­ur­inn
  • Höf­uð­borg­ar­list­inn
  • Íslenska þjóð­fylk­ingin
  • Karla­list­inn
  • Kvenna­fram­boð
  • Mið­flokk­ur­inn
  • Píratar 
  • Sam­fylk­ingin
  • Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn
  • Sós­í­alista­flokk­ur­inn
  • Vinstri græn 
  • Viðreisn
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár