„Þolinmæði gagnvart ofurlaunum er þrotin“

Elín Björg Jóns­dóttir, for­maður BSRB, ávarp­aði bar­áttufund verka­lýðs­fé­laga í Reykja­nesbæ í dag, 1. maí. Hún vill m.a. að vinnu­vikan sé stytt, kyn­bundnum launa­mun útrýmt og að sam­tök launa­fólks standi saman gegn auknum ójöfn­uði.

1. maí-ganga
1. maí-ganga Mynd: Birgir Þór Harðarson

„Við finnum öll spenn­una í sam­fé­lag­inu, spennu sem virð­ist aukast frekar en hitt hvort sem okkur líkar það betur eða verr. Spennu sem leiðir af sér rifr­ildi í stað sam­tals, átök í stað sam­vinnu. Þetta á við innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar, í stjórn­mál­unum, í við­skipta­líf­inu og hvar sem er ann­ars­staðar sem okkur ber niður.

Við verðum líka öll vör við hvernig sam­fé­lagið breyt­ist og þró­ast. Allir þurfa að hlaupa hraðar, fylgj­ast með öllu, tengdir í gegnum síma og tölvu­póst og til taks allan sól­ar­hring­inn. Er ekki kom­inn tími til að staldra við og spyrja okkur hvort þetta sé virki­lega það sem við viljum? Erum við á réttri leið? Og ef ekki, hvernig ætlum við að breyta sam­fé­lag­inu til hins betra?“

Þannig hefst ræða Elínar Bjargar Jóns­dóttur, for­manns BSRB, á degi verka­lýðs­ins í ár sem flutt var í Stapa í Reykja­nesbæ.

Elín Björg segir í ræðu sinni að órétt­lætið í sam­fé­lag­inu blasi við launa­fólki hvert sem litið er. Á meðan for­stjórar og stjórn­endur fyr­ir­tækja og stofn­ana fái tuga pró­senta launa­hækk­anir á milli ára eigi aðrir launa­menn að sætta sig við hóf­legar hækk­anir í nafni stöð­ug­leika.

„Það er alltaf sama fólkið sem á að bera ábyrgð á þessum stöð­ug­leika. Einhvern veg­inn virð­ist það alltaf vera þeir sem eru á lægstu töxt­unum sem eiga að sætta sig við lág laun áfram á meðan aðrir taka til sín sífellt stærri sneið af kök­unni,“ segir hún.

Elín bætið því við að á meðan for­stjórar og stjórn­endur fái veru­legar launa­hækk­anir finn­ist þeim sjálf­sagt að tala um það á aðal­fundum að það sé ekk­ert svig­rúm til að hækka laun ann­ars starfs­fólks. Ekki til pen­ingar til að hækka þá sem lægst hafa launin. Hræsnin verði varla meiri.

Hún segir að það sé engin til­viljun að hag­sældin sé mest í þeim sam­fé­lögum þar sem minnstur munur sé á milli þeirra sem hafa lægstu launin og þeirra hæst laun­uð­ustu. Stjórn­endur fyr­ir­tækja verði að kunna sér hóf í launa­kröfum. Það sé engin ástæða til að greiða þeim sem sýsla með pen­inga eða vinna við að stýra fyr­ir­tækjum gríð­ar­háa bónusa fyrir það eitt að mæta í vinn­una sína.

„Ofurlaun stjórn­enda eru ekki nýtt vanda­mál en þol­in­mæðin gegn þeim er end­an­lega þrotin. Okkur blöskrar öllum þegar við sjáum ofur­laun stjórn­enda stórra fyr­ir­tækja. Okkur blöskr­aði líka þegar Kjararáð hækk­aði laun ráð­herra, þing­manna og stjórn­endur rík­is­fyr­ir­tækja, oft í nafni þess að leið­rétta hafi þurft laun þeirra. Á meðan talar verka­lýðs­hreyf­ingin fyrir daufum eyrum þegar talað er fyrir leið­rétt­ingu á launum heilu stétt­anna sem dreg­ist hafa aftur úr í launum. Trúir því ein­hver hér, að það sé til­viljun að þar sé oft um kvenna­stéttir að ræða?“ spyr hún.

Vilja stytta vinnuvikuna

Elín segir í ræð­unni að liðin sé tæp hálf öld frá því ákveðið var að vinnu­vikan skuli vera 40 stundir. Hún spyr þar af leið­andi hvers vegna Íslend­ingar ættu að vinna eftir næstum fimm­tíu ára gömlu vinnu­fyr­ir­komu­lagi og hvaða afleið­ingar það hafi fyrir fjöl­skyldur, börnin og vinn­una sjálfa.

„Við sjáum afleið­ing­arnar alla daga. Við þekkjum streit­una og álagið, könn­umst við veik­indin og aukna örorku. Við vitum líka að leik­skóla­dag­ur­inn er lengri hjá íslenskum börnum en á hinum Norð­ur­lönd­unum. Er þetta það sem við viljum? Það eru aðal­lega konur sem axla þung­ann af ólaun­uðum störfum við heim­ilis- og umönn­un­ar­störf. Það skilar sér í lægri tekjum og minni starfs­þró­un­ar­mögu­leikum þeirra á vinnu­mark­aði,“ segir hún.

Hún segir að góðu frétt­irnar séu þær að eftir ára­langa bar­áttu séu sífellt fleiri farnir að taka undir þetta sjón­ar­mið og fram­sýnir stjórn­endur farnir að prófa sig áfram með stytt­ingu vinnu­vik­unnar.

„Við getum stytt vinnu­dag­inn og dregið með því úr álagi, streitu og veik­indum án þess að hafa áhrif á afköst starfs­manna. Við sjáum líka að við það að stytta vinnu­vik­una eykst starfs­á­nægjan og það auð­veldar fólki að sam­þætta vinnu og einka­líf.

Þá getur styttri vinnu­vika stuðlað að auknu jafn­rétti bæði á heim­ilum og á vinnu­mark­aði. Ef körlum er gert kleift að taka þátt með sama hætti og konum við umönnun barna sinna og í rekstri heim­il­is­ins minnka lík­urnar á því að konur sæki í hluta­störf og vinnu­þátt­taka þeirra mun aukast,“ segir Elín.

Útrýma þarf kynbundnum launamun

Í ræð­unni talar Elín um að ef Íslend­ingar ætli að byggja upp rétt­látt sam­fé­lag gangi ekki að konur og karlar fái ekki sömu laun fyrir sömu vinnu.

Hluti af vand­anum sé kyn­skiptur vinnu­mark­aður þar sem mál hafa þró­ast með þeim hætti að þær stéttir þar sem konur eru í meiri­hluta fái ekki eðli­leg laun fyrir ábyrgð­ar­mikil störf. „Við viljum að þeir sem sinna mik­il­vægum umönn­un­ar­störfum fái greitt í sam­ræmi við ábyrgð. Það er skakkt gild­is­mat sam­fé­lags­ins að borga þeim sem sýsla með pen­inga á tölvu­skjá marg­föld laun umönn­un­ar­stétta,“ segir Elín.

Hún segir jafn­fram að jafn­rétt­is­mál hafi verið ofar­lega í huga allra und­an­farið. Að með #metoo-bylt­ing­unni hafi þolendur kyn­ferð­is­of­beldis og áreitni, fengið sterka rödd sem eftir var tekið. „Þær hug­rökku konur sem þar stigu fram hafa sýnt okkur svart á hvítu hver staðan er. Og það er okkar allra að breyta henni,“ segir Elín.

Laga þarf skattkerfið

Elín bendir á að skatt­byrðin hafi auk­ist lang mest hjá tekju­lægstu hóp­unum. Hún segir að stjórn­völd hafi dregið jafnt og þétt úr tekju­jöfn­un­ar­hlut­verki skatt­kerf­is­ins. Per­sónu­af­sláttur hafi ekki fylgt launa­þróun, vaxta­bætur og barna­bætur hafi verið skertar veru­lega og hús­næð­is­bætur sömu­leiðis.

Kaup­mátt­ar­aukn­ingin nái sem sagt ekki til þeirra sem verst hafa kjörin. Þetta sé órétt­læti sem megi ekki við­gang­ast. Stjórn­völd verði að snúa þess­ari þróun við og laga skatt­kerfið með það fyrir augum að bæta kjör þeirra tekju­lægstu veru­lega.

Að lokum segir Elín að Íslend­ingar skuli horfa fram á veg­inn á þessum alþjóð­lega bar­áttu­degi. Sagan sýni með skýrum hætti hverju sam­tök launa­fólks hafa áorkað með sam­stöð­unni. „Stöndum saman gegn auknum ójöfn­uði í sam­fé­lag­inu, stöndum saman í bar­átt­unni fyrir félags­legu rétt­læti.“

Hægt er að lesa ræðu Elínar Bjargar í heild sinni á Kjarn­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stéttarfélag

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár