Viðar Þorsteinsson nýr framkvæmdastjóri Eflingar

Viðar Þor­steins­son hóf störf sem fram­kvæmda­stjóri Eflingar í dag.

Sólveig Anna og Viðar Þorsteinsson
Sólveig Anna og Viðar Þor­steins­son Mynd: Facebook-síða Viðars

Viðar Þor­steins­son, sem hefur verið áber­andi í umræðum um aðstæður verka­fólks, hefur hafið störf sem fram­kvæmda­stjóri Eflingar, þar sem hann mun starfa undir for­ystu Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur nýkjör­ins for­manns.

Þetta kemur fram í færslu á facebook-síðu hans í dag.

Hann þakkar henni jafn­framt traustið og seg­ist hann hlakka til þess að takast á við þetta mikla verk­efni. Viðar hefur unnið við kennslu og rann­sóknir, sem og við verk­efn­is­stjórnun og blaða­mennsku. Hann er með B.A.- og M.A.-próf í heim­speki, auk dokt­ors­prófs í hug­vís­indum frá Ohio State Uni­versity.

Sól­veig Anna sigr­aði með miklum yfir­burðum í kjöri­ til for­manns Eflingar þann 7. mars síð­ast­lið­inn. Hún tók við af Sig­urði Bessa­syni, fyrr­ver­andi for­manni, á aðal­fundi félags­ins í gær.

Sól­veig Anna hefur talað fyrir því að verka­lýðs­hreyf­ingin taki rót­tækum breyt­ing­um, og að fólkið á gólf­inu, sem lægstu launin hafi, fái meira vægi í bar­áttu henn­ar, auk þess sem breytt verði um stefnu þegar komið að líf­eyr­is- og hús­næð­is­mál­um.

Þeir sem voru með Sól­veigu Önnu á lista og tóku sæti í stjórn Efl­ingar eru Magda­lena Kwi­at­kowska hjá Café Paris, Aðal­geir Björns­son, tækja­stjóri hjá Eim­skip, Anna Marta Marj­ankowska hjá Nátt­úru þrif, Dan­íel Örn Arn­ars­son hjá Kerfi fyr­ir­tækja­þjón­ustu, Guð­mundur Jón­atan Bald­urs­son, bíl­stjóri hjá Snæ­land Gríms­son, Jamie Mcquilkin hjá Reso­urce International ehf. og Kol­brún Valv­es­dótt­ir, starfs­maður búsetu­þjón­ustu Reykja­vík­ur­borg­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stéttarfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár