Klofningur Sjálfstæðisflokksins í Norðurþingi

Nýtt fram­boð vænt­an­legt í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum í maí í Norð­ur­þingi. Klofn­ingur er innan sjálf­stæð­is­flokks­ins vegna upp­still­ingar á fram­boðs­lista.

Óánægja hefur skap­ast innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Norð­ur­þingi með fram­boðs­lista flokks­ins. Klofn­ings­fram­boð frá flokknum mun bjóða fram í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum í maí.

[links] Kristján Þór Magn­ús­son sveit­ar­stjóri Norð­ur­þings mun skipa efsta sæti lista Sjálf­stæð­is­manna. Kristján Þór var ráð­inn sem sveit­ar­stjóri af meiri­hluta Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Vinstri grænna og óháðra eftir kosn­ingar við upp­haf þessa kjör­tíma­bils. 

Í meiri­hluta sveit­ar­stjórnar Norð­ur­þings eru þrír full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks og tveir full­trúar Vinstri grænna og óháðra. Í minni­hluta eru Sam­fylk­ingin og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn með tvo full­trúa hvor um sig.

Heim­ild­ar­maður Kjarnans stað­festi í sam­tali við blaða­mann að nýtt fram­boð muni bjóða fram í vor. Listinn verður þó ekki aðeins skip­aður fólki úr Sjálf­stæð­is­flokknum heldur fólki úr öllum áttum í Norð­ur­þingi.

Óánægjan sem veldur því að nýtt fram­boð hyggst bjóða fram snýr helst að þeim vinnu­brögðum sem var beitt við upp­still­ingu á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Ekki var haldið próf­kjör heldur var stillt upp á list­ann. Í því ferli var Kristján settur í efsta sætið, Helena Eydís Ing­ólfs­dóttir í annað og Örlygur Hnefill Örlygs­son í það þriðja.

Á fundi flokks­ins höfðu komið upp þær hug­myndir að reyna að halda áfram sam­starfi við Vinstri græn og óháða. Ákvarð­anir voru þó ekki teknar um að fá Kristján odd­vita­sætið á þeim fundi og því vakti það nokkra óánægju þegar list­inn var síðar bor­inn undir flokks­menn.

Klofn­ings­fram­boð vegna óánægju með upp­still­ingu Sjálf­stæð­is­manna á lista fyrir kosn­ingar til sveit­ar­stjórnar í vor er ekki eins­dæmi í Norð­ur­þingi. Nýtt fram­boð mun bjóða fram í Vest­manna­eyjum í vor. Fyrr­ver­andi vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Íris Róberts­dóttir, hefur ákveðið að leiða þar nýjan lista. Óánægjan í Vest­manna­eyjum skap­að­ist einnig útaf því að ekki var haldið próf­kjör áður en raðað var á fram­boðs­lista.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sveitarstjórnarkosningar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár