Íris mun leiða nýtt framboð í Vestmannaeyjum

Deilur milli fylk­inga í Sjálf­stæð­is­flokknum í Vest­manna­eyjum hafa leitt af sér nýtt fram­boð. Mið­stjórn­ar­full­trúi úr flokknum mun leiða óánægju­fram­boðið.

Íris Róberts­dóttir, fyrr­ver­andi vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur ákveðið að leiða nýjan fram­boðs­lista í Vest­manna­eyjum í kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum. Tilkynnt var um það fyrir helgi að stofnað hefði verið bæj­ar­mála­fé­lag og sam­hliða var skorað á Írisi að leiða það fram­boð.

Í stöðu­upp­færslu á Facebook segir Íris að hún hafi ákveðið að verða við þeirri áskorun að gefa kosta á sér til að leiða nýja list­ann. „Ég er stolt og þakk­lát fyrir það traust sem mér er sýnt með þess­ari áskorun. Þessa ákvörðun hef ég til­kynnt for­svars­mönnum hins nýja bæj­ar­mála­fé­lags - Fyrir Heimaey.“

Ákvörðun Írisar vekur athygli þar sem hún er flokks­bundin Sjálf­stæð­is­kona og hefur setið í mið­stjórn flokks­ins, en mikil ólga hefur verið á milli hópa innan flokks­ins í Vest­manna­eyjum. Samkvæmt frétt Morg­un­blaðs­ins um málið í febr­úar eru til­drög þeirra deilna þær að óánægja var um að ekki skyldi haldið próf­kjör heldur raðað á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Vest­manna­eyjum. Tillaga um próf­kjör var felld í full­trúa­ráði flokks­ins með 28 atkvæðum gegn 26 í jan­úar. Í frétt Morg­un­blaðs­ins kom fram að for­ysta Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefði verið upp­lýst um deil­urnar.

Elliði tekur kröfu um valddreifinu alvarlega

Í síð­ustu viku var til­kynnt að Elliði Vign­is­son, bæj­ar­stjóri og odd­viti Sjálf­stæð­is­manna síð­ast­lið­inn 12 ár, verði í fimmta sæti á lista flokks­ins í kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum, og mun þar af leið­andi ekki leiða list­ann.

[adspot]Í til­kynn­ingu sagð­ist hann taka alvar­lega þá umræðu sem hefur verið á meðal Sjálf­stæð­is­manna í Vest­manna­eyjum að und­an­förnu, um þörf­ina á vald­dreif­ingu. „Eftir að hafa leitt list­ann úr fyrsta sæti í 12 ár tek ég alvar­lega umræðu um þörf­ina á vald­dreif­ing­u. Ég get að mörgu leyti tekið undir þá skoðun að það fylgir því lýð­ræð­is­halli að vera í senn í örugg­asta sæt­inu, vera bæj­ar­stjóra­efni, odd­viti og sá sem er með lang­mestu reynsl­una. Þessu vil ég mæta með því að færa mig niður í fram­boðs­sæti sem að við lítum á sem sæti vara­bæj­ar­full­trú­a. Ég vil líka líta á það sem skref til að skapa aukna sátt að víkja sætis fyrir ungt og nýtt fólk sem ann­ars hefði ef til vill orðið að víkja af vett­vangi bæj­ar­mál­anna. Ég kvíði því ekki að leiða list­ann sem vara­bæj­ar­full­trúi enda ríkir mik­ill ein­hugur hjá því góða fólki sem skipar fram­boðlist­ann. Saman ætlum við leiða Sjálf­stæð­is­flokk­inn til sig­urs og gera góðan bæ enn betri á kom­andi kjör­tíma­bil­i.“

Hildur Sól­veig Sig­urð­ar­dóttir mun skipaa fyrsta sæti list­ans, en þetta er í fyrsta skipti í 20 ár sem kona skipar fyrsta sæti á lista Sjálf­stæð­is­manna í Eyj­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2018

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár