Þrjú ný í stjórn Landsvirkjunar - Jónas Þór áfram formaður

Lands­virkjun greiðir 1,5 millj­arða í arð til rík­is­ins vegna rekstrar á árinu 2017.

Jón Björn Hákon­ar­son, Guðfinna Jóhanna Guð­munds­dóttir og Gunnar Tryggva­son koma ný inn í stjórn Lands­virkj­unar, en Jónas Þór Guð­munds­son, for­maður stjórnar, og Álf­heiður Inga­dóttir, vara­for­maður hennar, sitja áfram í stjórn­inni.

Úr stjórn­inni fóru Haraldur Flosi Tryggva­son, Kristín Vala Ragn­ars­dóttir og Ragn­heiður Elín Árna­dóttir en þau hafa setið í stjórn fyr­ir­tæk­is­ins frá árinu 2017.

For­stjóri Lands­virkj­unar er sem fyrr, Hörður Arnarson.

Tekin var ákvörðun um að greiða 1,5 millj­arða króna til eig­anda Lands­virkj­unar, rík­is­ins, vegna rekstr­ar­ins á árinu 2017, en staða fyr­ir­tæk­is­ins er sterk um þessar mundir.

Eignir voru í lok árs um 4,5 millj­arðar Banda­ríkja­dala, eða sem nemur 450 millj­örðum íslenskra króna. Vaxta­ber­andi skuldir námu 2,1 millj­arði Banda­ríkja­dala, eða um 210 millj­örðum króna.

Eigið féð var í lok árs tæp­lega 2,1 millj­arðar Banda­ríkja­dala, eða um 210 millj­arðar króna. Búast má við því að Lands­virkjun muni greiða rík­inu mun meira í arð á næstu árum, þar sem fyr­ir­tækið er að greiða niður skuldir og styrkja efna­hag sinn ár frá ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár