ASÍ tekur ekki sæti í þjóðhagsráði

Framundan eru átök á vinnu­mark­aði, segir í yfir­lýs­ingu frá ASÍ.

Mið­stjórn ASÍ ákvað á fundi sínum í dag að Alþýðu­sam­bandið myndi ekki taka sæti í Þjóð­hags­ráði, þrátt fyrir að rík­is­stjórnin hafi ákveðið að útvíkka erindi ráðs­ins og ræða félags­legan stöð­ug­leika ásamt efna­hags­legum stöð­ug­leika.

Það er mat mið­stjórnar ASÍ að framundan séu átök um grund­vall­ar­mál eins og fjár­mögnun vel­ferð­ar­kerf­is­ins, skatta­mál, launa­stefnu og jöfnuð. „Umræða um þessi mál fer ekki fram í Þjóð­hags­ráði, að mati mið­stjórnar, heldur í beinum tengslum við gerð nýrra kjara­samn­inga í haust,“ segir í yfir­lýs­ingu ASÍ.

Þjóð­hags­ráð kom saman til fyrsta fundar í júní 2016. Í Þjóð­hags­ráði sitja for­sæt­is­ráð­herra, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­svars­menn Samtaka atvinnu­lífs­ins, Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga og Seðla­banka Íslands. Þá geta heild­ar­sam­tök launa­fólks sem aðild eiga að ramma­sam­komu­lag­inu hverju sinni gerst aðilar að Þjóð­hags­ráði, en eins og hér er um getið, þá ætlar ASÍ ekki að taka sæti í ráð­inu.

Fyrr í dag sendi Lands­sam­band íslenskra versl­un­ar­manna frá sér yfir­lýs­ingu, þar sem sjálftöku stjórn­enda í atvinnu­líf­inu eru harð­lega mót­mælt. Segir í yfir­lýs­ingu þeirra að „ögrun“ stjórn­enda í atvinnu­líf­inu verði ekki liðin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár