„Sjálftaka launa“ stjórnenda sögð ögrun við launafólk

Lands­sam­band íslenskra versl­un­ar­manna mót­mælir harð­lega miklum launa­hækk­unum stjórn­enda í atvinnu­líf­inu.

Stjórn Lands­sam­bands íslenzkra verzlunarmanna mót­mælir harð­lega þeirri „sjálftöku launa sem á sér stað meðal stjórn­enda“ í íslenskum fyr­ir­tækjum.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá stjórn­inni, er þar talað um „hul­dýpi“ milli stjórn­enda og fólks á gólfi. „Þrátt fyrir að ákvörð­unum kjara­ráðs hafi verið mót­mælt harð­lega og þrátt fyrir að rík­is­stjórn­inni hafi gef­ist kostur á að leið­rétta þessa óhæfu, þá reynd­ist hún ekki hafa þann kjark sem til þurfti þegar að á reyndi. Á sama tíma er því haldið að launa­fólki að vera hóf­stillt í launa­kröfum til þess að við­halda stöð­ug­leika í sam­fé­lag­inu. Það ríkir hins vegar ekki stöð­ug­leiki hjá íslensku launa­fólki sem þarf á sama tíma að takast á við skerð­ingar barna- og vaxta­bóta og raun­lækk­unar á per­sónu­af­slætti sem ekki fylgir almennri launa­þróun og hefur ekki gert í áraraðir,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Síðan segir að ögrun eins og þessi verði ekki liðin, og að hún muni valda upp­lausn á almennum vinnu­mark­aði. Fyrir hönd stjórn­ar­innar skrifa undir yfir­lýs­ing­una Guð­brandur Ein­ars­son, for­maður LÍV og Versl­un­ar­manna­fé­lags Suð­ur­nesja, Kristín M. Björns­dóttir, vara­for­maður LÍV og for­maður deildar versl­un­ar­manna VR á Aust­ur­landi, Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, Eiður Stef­áns­son, for­maður Félag versl­unar- og skrif­stofu­fólks Akureyri, Hjörtur Geir­munds­son, for­maður Versl­un­ar­manna­fé­lags Skaga­fjarðar, Gils Ein­ars­son, for­maður deildar versl­un­ar­manna VR á Suð­ur­landi, og Svan­hildur Þór­steins­dóttir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár