Yfirlýsing verkalýðsleiðtoga: „Leikhús fáranleikans“ hjá elítu viðskiptalífsins

„Ástandið er svo galið að við það verður ekki lengur unað“.

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akraness, Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, og Aðal­steinn Árni Bald­urs­son, for­maður Fram­sýnar, segja í yfir­lýs­ingu að „leik­hús fár­an­leik­ans“ sjá­ist nú hjá stjórn­endum í við­skipta­líf­inu, sem telji rétt­læt­an­legt að fá marg­föld laun sem tíðkast á almennum vinnu­mark­aði.

Í yfir­lýs­ing­unni, sem birt­ist á Facebook síðu Ragnars Þórs, segir að sjálf­taka og sið­leysi sé nú það sem helst ein­kenni launa­þróun hjá stjórn­endum í atvinnu­líf­inu. Þetta sé eitt­hvað sem launa­fólk geti ekki sætt sig við og muni ekki gera það. „Siðlaust launa­skrið og sjálf­taka í gegnum kaupauka og bónus­kerfi áttu að heyra sög­unni til eftir hrunið 2008 en annað hefur komið á dag­inn. Það er ljóst að launa­fólk á almennum og opin­berum mark­aði mun ekki lengur sætta sig við að bera ábyrgð á stöð­ug­leika í sam­fé­lag­inu á meðan stjórn­völd og aðrir emb­ætt­is­menn ásamt topp­unum í íslensku við­skipta­lífi stíga trylltan sjálftöku­dans. Sem dæmi um firr­ingu þeirra sem stjórna fyr­ir­tækjum á Íslandi má nefna launa­greiðslur til for­stjóra Eimskips sem námu 102,6 millj­ónum á síð­asta ári. Á einu ári fær hann tekjur sem lág­launa­fólk er stóran hluta starfsæv­innar að vinna sér inn fyrir,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Sér­stak­lega er gjáin sem mynd­ast hefur á milli stjórn­enda og síðan fólks­ins á gólfi er ekki síst gagn­rýnd, í ljósi þess að ljós­mæður eigi nú kjara­bar­áttu. Launin þar séu lág þrátt fyrir 6 ára háskóla­nám og alveg óum­deilt sam­fé­lags­legt mik­il­vægi. „Launa­greiðslur til For­stjóra Eimskipa á einu ári jafn­gilda byrj­un­ar­launum 19 ljós­mæðra eftir 6 ára háskóla­nám og millj­óna náms­lán. Þarf for­stjóri Eimskipa að vera þess ávallt við­bú­inn að mæta til vinnu, vegna þess að líf og heilsa fólks er að veði? Það er ólík­legt að þjóðin tæki eftir því ef topp­arnir í við­skipta­líf­inu myndu leggja niður störf í nokkra daga eða vikur, í það minnsta þarf ekki að loka fyr­ir­tækj­unum ef það ger­ist. Stjórn­endur eru engu að síður dekraðir af stjórnum fyr­ir­tækja sem mörg hver eru að stórum eða í meiri­hluta eigu eft­ir­launa­sjóða almenn­ings. Ástandið er svo galið að ekki verður lengur við unað! Nú eru ljós­mæður í mik­illi og erf­iðri kjara­bar­áttu og ber okkur öllum að styðja, virða og sýna í verki stuðn­ing okkar við bar­áttu þeirra fyrir bættum kjörum. Við und­ir­rituð styðjum ljós­mæður heils­hugar og skorum á samn­inga­nefnd rík­is­ins að nálg­ast kjara­við­ræður þeirra af virð­ingu og sann­girni í stað hroka og yfir­lætis,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Þessi fjórir for­menn eru í for­svari fyrir félög sem eru með tug­þús­undir félags­manna, en VR og Efling eru stærstu stétt­ar­fé­lög lands­ins. VR er með tæp­lega 33 þús­und félags­menn en Efling rúm­lega 27 þús­und.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár