Gylfi: Má nota um svona starfsemi „ýmis lýsingarorð“

Forseti ASÍ segir að alvöru stétt­ar­fé­lög sjái um að semja um mik­il­væg rétt­indi, sem fólk geri sér oft ekki grein fyrir.

Gylfi Arn­björns­son, for­seti ASÍ, segir það oft gleym­ast, í umfjöll­unum um stétt­ar­fé­lög og vinnu þeirra, hversu mik­il­væg rétt­indi þau semja um fyrir hönd sinna félags­manna.

Í færslu á Facebook síðu sinni, segir að hann að svo­nefnd gul stétt­ar­fé­lög, láti alvöru stétt­ar­fé­lögum það eftir að semja um ýmis mik­il­væg rétt­indi, svo sem líf­eyr­is­rétt­indi, veik­inda- og slysa­trygg­ingar, rétt­indi í fæð­ing­ar­or­lofi, end­ur­hæf­ing­ar­þjón­ustu og svo mætti lengi telja.

Þess vegna sé lítið að marka sam­an­burð á félags­gjöldum milli slíkra félaga og síðan alvöru stétt­ar­fé­laga.

„Vegna þess að alvöru stétt­ar­fé­lög sjá um svona mál geta svona félög látið sér nægja að afar lág félags­gjöld því hinir sjá um vinn­una! Það má auð­vitað nota um svona starf­semi ýmis lýs­ing­ar­orð sem ég ætla að spara hérna, en eitt er víst að að baki þessu fer lítið fyrir sam­stöðu og sam­fé­lags­legri ábyrgð,“ segir Gylfi á Facebook síðu sinni, og beinir spjót­unum að Félagi lyk­il­manna, sem eru með mun lægri gjöld en önnur stétt­ar­fé­lög.

Speg­ill­inn á RÚV fjall­aði ítar­lega um svo­nefnd gul stétt­ar­fé­lög á vef sínum. Þar segir Gunnar Páll að vissu­lega megi skil­greina Félag lyk­il­manna sem gult stétt­ar­fé­lag. Félagið skil­greini sig hins vegar sem félag fyrir stjórn­endur og sér­fræð­inga og sjónum hafi sér­stak­lega verið beint að þeim sem standa utan stétt­ar­fé­laga. Félagið er samt sem áður opið öllum, og ein­blínir á að vera miðað fyrir stjórn­endur og sér­fræð­inga, þó það sé öllum opið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár