Hópur Ragnars Þórs náði ekki meirihluta í stjórn VR

Nið­ur­stöður liggja fyrir í kosn­ingum til stjórnar VR.

1. maí-ganga
1. maí-ganga Mynd: www.vr.is

Alls­herj­ar­at­kvæða­greiðslu vegna kosn­inga til stjórnar VR, sem stóð frá 6. mars til hádegis í dag er nú lokið. Sjö stjórn­ar­menn hafa þar af leið­andi verið kosnir í stjórn VR til tveggja ára sam­kvæmt fléttu­lista. Hópurinn sem stendur að baki Ragnars Þórs Ing­ólfs­sonar, for­manns VR, náði ekki meiri­hluta.

Þau eru:

  1. Sigríður Lovísa Jóns­dóttir 
  2. Bjarni Þór Sig­urðs­son 
  3. Dóra Magn­ús­dóttir 
  4. Arnþór Sig­urðs­son 
  5. Guðrún Björk Hall­björns­dóttir 
  6. Friðrik Boði Ólafsson 
  7. Ingi­björg Ósk Birg­is­dóttir

Þrír vara­menn voru kosnir í stjórn VR til eins árs. Eru það þau Agnes Erna Esther­ar­dóttir, Oddný Margrét Stef­áns­dóttir og Sigurður Sig­fús­son.

[adspot]

Samkvæmt frétt VR greiddu 3345 manns atkvæði. Á kjör­skrá voru alls 34.980 og var því kosn­inga­þátt­taka 9,56 pró­sent.

Atkvæða­greiðslan var raf­ræn og kosið var á milli 27 fram­bjóð­enda til sjö sæta í stjórn.

Samkvæmt upp­lýs­ingum á vef­síðu VR hafa allir full­gildir VR-félagar atkvæð­is­rétt í kosn­ing­unum. Á kjör­skrá eru einnig eldri félags­menn, sem eru hættir atvinnu­þátt­töku vegna ald­urs, sem greiddu eitt­hvert félags­gjald á 67. ald­ursári og höfðu greitt a.m.k. 50 mán­uði af 60 á síð­ustu fimm árum áður en þeir urðu 67 ára.

Saman til verka í VR náði ekki meirihluta

Hópur sem stendur að baki for­manns VR náði ekki meiri­hluta. Þeir Friðrik Boði Ólafsson og Arnþór Sig­urðs­son voru þó kosnir í stjórn­ina og þær Agnes Erna Esther­ar­dóttir og Oddný Margrét Stef­áns­dóttir voru kosnar vara­menn. Ef ekki hefði verið um fléttu­lista að ræða þá hefðu þær Agnes Erna og Oddný Margrét verið kosnar í stjórn, þar sem þær lentu í fimmta og sjö­unda sæti. Í stað­inn fara Arnþór og Friðrik Boði í stjórn.

Úrslit sam­kvæmt fjölda atkvæða:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stéttarfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár