Hannes Hólmsteinn braut gegn siðareglum með ummælum um Kjarnann

Pró­fessor í stjórn­mála­fræði, sem ítrekað hélt fram röngum stað­hæf­ingum um Kjarnann á opin­berum vett­vangi, braut gegn siða­reglum Háskóla Íslands með athæfi sínu. Hann hefur neitað að rök­styðja stað­hæf­ingar sínar og vill ekki leið­rétta þær.

Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði við Háskóla Íslands, braut gegn tveimur siða­reglum Háskóla Íslands með ummælum um Kjarninn sé fjár­magn­aður af kröfu­höfum föllnu íslensku bank­anna og gangi þar með erinda þeirra, sam­kvæmt ákvörðun siða­nefnd­ar­innar sem dag­sett er 9. mars 2018.

[links]Ummælin setti Hannes fram í pistli á Press­unni sem birt­ist 14. febr­úar 2015 og end­ur­tók síðan efn­is­lega þrí­vegis í stöðu­upp­færslum á Facebook. Sú síð­asta var birt í nóv­em­ber 2016. Sumar stöðu­upp­færsl­urnar urðu upp­spretta frétta í öðrum frétta­miðlum. Hannesi var ítrekað boðið að rök­styðja ummælin með gögnum eða draga þau ann­ars til baka, en kaus í öllum til­vikum að gera það ekki.

Þórður Snær Júl­í­us­son, rit­stjóri Kjarnans og stunda­kenn­ari við Háskóla Íslands, kærði því Hannes til siða­nefndar í jan­úar 2017 fyrir að hafa ítrekað haldið fram ósönnum og órök­studdum full­yrð­ingum og neitað að draga þær til baka. Í kærunni sagði m.a. að aðrir hefðu tekið upp þessar ávirð­ingar og sett þær fram á opin­berum vett­vangi. „Þær hafa meira að segja verið ræddar á meðal þing­manna. Það er eng­inn vafi í huga und­ir­rit­aðs þegar virtur pró­fessor við Háskóla Íslands, með 30 ára starfs­feril að baki, setur þessar sömu upp­lognu ávirð­ingar fram opin­ber­lega þá öðl­ast þær óverð­skuld­aðan trú­verð­ug­leika.“

Brotið var ekki talið alvar­legt þótt það snerti mik­il­væg við­mið þar sem líta verði til þess að „fjöl­mið­ill­inn Kjarninn getur ekki talist í jafn við­kvæmri stöðu og ef um ein­stak­ling væri að ræða.“

Hægt er að lesa ákvörðun siða­nefndar Háskóla Íslands í heild sinni hér.

Frelsi til að fara með rangt mál nýtur ekki verndar

Í ákvörðun siða­nefndar segir að sam­fé­lags­legt umhverfi dags­ins í dag sé ólíkt því sem áður var og að það sé í stöðugri þróun. „Skýrt dæmi þar um er notkun net­miðla og aðgengi upp­lýs­inga á ver­ald­ar­vefnum. Þessi þróun hefur opnað gáttir og leitt af sér ný sið­ferð­is­leg við­fangs­efni. Dæmi þar um eru svo­kall­aðar „fals­fréttir“. Þó svo að slíkt sé ekk­ert nýnæmi í sögu­legu sam­hengi er það af ýmsum ástæðum hættu­legt lýð­ræð­inu, m.a. þar sem það grefur undan einni grunn­stoða þess, tján­ing­ar­frels­inu, og skerðir aðgang almenn­ings að „sönnum“ upp­lýs­ingum sem er nauð­syn­leg for­senda þess að geta myndað sé sjálf­stæða skoðun. Ósannar fréttir telj­ast sið­ferði­lega rangar þar sem þær eru and­stæðar sann­leik­anum. Grund­völlur tján­ing­ar­frels­is­ins er frelsið til að tjá skoð­anir sínar og hug­myndir, en ekki frelsi til að segja hvað sem er um hvern sem er eða hvar sem er.“

[adspot]Frelsi til að fara með rangt mál njóti ekki verndar sem slíkt og siða­reglur Háskóla Íslands leggi áherslu á sið­ferði­leg gildi eins og sann­leika og heið­ar­leika vegna þess að séu þau ekki virt þá grafi það undna trú­verð­ug­leika hins akademíska sam­fé­lags.

Siða­nefndin telur það vera úrskurð­ar­nefni dóm­stóla að rann­saka og skera úr um hvort til­tekin stað­hæf­ing sé röng og því eftir atvikum meið­andi fyrir ein­hvern. Þess vegna vísar hún frá þeim atriðum kærunnar sem velta á sann­leiks­gildi hinna kærðu ummæla.

Neitaði að leiðrétta, ítrekaði þess í stað

Í ákvörðun siða­nefndar segir að það skipti einkum máli í nið­ur­stöðu siða­nefndar að kær­andi fór ítrekað fram á leið­rétt­ingu ummæla sem hann segir vera röng, en Hannes varð ekki við því og ítrek­aði þau í hinum síð­ari til­vikum. „Í einu til­viki nýtir kærði ekki tæki­færi til að rök­styðja ummæli sín þegar blaða­maður hefur sam­band við hann. Ein af frum­skyldum háskóla­borg­ara er að styðja við sann­leik­ann og hamla gegn and­stæðu hans, og er í því sam­bandi aftur bent á þá hættu sem tján­ing­ar­frels­inu getur stafað af röngum full­yrð­ingum. Góður akademískur siður væri því að bregð­ast við kröfu um rök­stuðn­ing í til­viki eins og þessu en ella draga full­yrð­ingu til baka hafi hún ekki trygga stoð.“

[box]Siða­nefndin telur því að ágrein­ings­efnið geti varðað við siða­reglur Háskóla Íslands að því leyti að háskóla­borg­urum ber að sýna hver öðrum virð­ingu í ræðu og riti. Þá felist ábyrgð háskóla­borg­ara í því að end­ur­taka ekki stað­hæf­ingar á opin­berum vett­vangi, sem mót­mælt er og ítrekað er óskað eftir að þeir leið­rétti, án þess þá að færa rök fyrir þeirri afstöðu eða eftir atvikum vísa til heim­ilda, en ella að draga þær til baka. „Þykir það eiga sér­stak­lega við ef háskóla­borg­ari aðgreinir sig ekki frá því hlut­verki sínu með skýrum hætti eins og á við um pistil kærða á Press­unni. Nið­ur­staða siða­nefnd­ar­innar er að kærði hafi ekki virt sem skyldi ábyrgð sína sam­kvæmt reglu 2.4.1 um mál­efna­leg og gagn­rýnin skoð­ana­skipti[...]og reglu 2.4.2. um að háskóla­borg­ara skuli vera minntur stöðu sinnar þegar þeir taka þátt í opin­berri umræðu, með því að hafna ítrekað áskorun kærða um leið­rétt­ingu eða rök­stuðn­ing, en ein meg­in­skylda háskóla­borg­ara er að stuðla að því að fram komi það sem sann­ara reyn­ist. Þykir kærði hafa brotið gegn siða­reglum 2.4.1. og 2.4.2 með því að hafna því, þegar eftir því var leitað, að færa rök fyrir full­yrð­ingu sem hann setti fram opin­ber­lega í pistli sínum á Press­unni og kær­andi segir ósanna og meið­andi.“

Siða­nefnd segir að við mat á alvar­leika brots­ins verði að hafa í huga að ummæli Hannesar hafi verið „sett fram sem við­bragð við full­yrð­ingu Kjarnans um hags­muna­tengsl ann­ars fjöl­mið­ils og hins vegar má líta til þess að fjöl­mið­ill­inn Kjarninn getur ekki talist vera í jafn við­kvæmri stöðu og ef um ein­stak­ling væri að ræða. Af þessum ástæðum verður brotið ekki talið alvar­legt þótt það snerti mik­il­væg við­mið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

siðareglur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár