Spennan magnast í baklandi verkalýðshreyfingarinnar

Verka­lýðs­hreyf­ingin er að ganga í gegnum mik­inn titr­ings­tíma, þar sem valda­bar­átta er aug­ljós.

Mikils titr­ings gætir í bak­landi verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar þessi miss­erin, og koma þar til nokkur atriði, svo til sam­tímis.

Í fyrsta lagi er það staða mála á vinnu­mark­aði og horfur varð­andi kjara­samn­inga. Að mati mið­stjórnar ASÍ eru for­sendur kjara­samn­inga brostnar.

Í yfir­lýs­ingu frá mið­stjórn­inni segir að það sé mat ASÍ að óbreyttu „að for­sendur um að launa­stefna kjara­samn­ing­anna hafi verið stefnu­mark­andi hafi ekki gengið eft­ir. Því er heim­ild til upp­sagnar þeirra fyrir lok febr­úar enn í gild­i.“

Vegna þess­arar stöðu hefur mið­stjórn ASÍ ákveðið að boða til for­manna­fundar aðild­ar­fé­laga sam­bands­ins mið­viku­dag­inn 28. febr­úar þar sem farið verður yfir málið og ákvörðun tekin um við­brögð verka­lýðs­hreyf­ing­ar­inn­ar.

Valdabarátta

Innan ASÍ hefur verið ein­hugur um það, að til þess að skapa sátt á vinnu­mark­aði, þá þurfi að koma til „leið­rétt­ingar“ á launum æðstu ráða­manna rík­is­ins sem falla undir ákvörð­un­ar­svið kjara­ráðs. Að mati ASÍ hafa úrskurðir kjara­ráðs hleypt illu blóði í kjara­við­ræður, og grafið undir for­sendum kjara­sam­an­inga.

Um þetta er ein­hugur innan stjórnar ASÍ, og má segja öll verka­lýðs­hreyf­ingin sé sam­einuð um þessa kröfu, að „elítan“ hjá rík­inu leiði ekki launa­hækk­anir á mark­aðnum.

Á sama tíma er barist um valda­þræð­ina í verka­lýðs­hreyf­ing­unni á ýmsum víg­stöðum, en fram­boð Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur, starfs­manns á leik­skól­anum Nóaborg, til for­manns stjórnar Eflingar, hefur valdið miklum titr­ingi í bak­landi verka­lýðs­hryef­ingar, sam­kvæmt við­mæl­endum Kjarnans.

Sólveig Anna nýtur stuðn­ings Ragnars Þórs Ing­ólfs­sonar, for­manns VR, og má segja að það sé að mynd­ast breið­fylk­ing í gras­rót verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar um víð­tækar kerf­is­breyt­ingar á stefnu­skránni.

Allt frá stefnu­málum í kjara­við­ræðum - þar sem horft yrði meira til „fólks­ins á gólf­inu“, eins og einn við­mæl­enda komst að orði - til fjár­fest­inga­stefnu líf­eyr­is­sjóða. Verka­lýðs­hreyf­ingin og atvinnu­rek­endur, í gegnum stétt­ar­fé­lög og Samtök atvinnu­lífs­ins og Samtök iðn­að­ar­ins, eru með full­trúa í stjórnum líf­eyr­is­sjóða, en að mati þeirrar breið­fylk­ingar sem stendur að baki fram­boði Sól­veigar Önnu - og má segja að sé í bak­landi Ragnars Þórs - þá er þörf á því að skipta út fólki í stjórnum líf­eyr­is­sjóða til breyt­ingar náist fram.

Hvaða breytingar eru þetta nákvæmlega?

Ekki eru allir sáttir við þessar vær­ingar, og mátti heyra það á við­mæl­endum Kjarnans.

Gylfi Arn­björns­son, for­seti ASÍ, er sá maður sem Ragnar Þór hefur gagn­rýnt einna harð­ast opin­ber­lega. Ýmsir stuðn­ings­menn hann innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar telja Ragnar Þór vera að spila „hættu­legan leik“ með því að lýsa yfir stuðn­ingi við Sólveigu Önnu og þannig blanda sér í valda­bar­áttu í öðru félagi, Eflingu, sem er með meira en 27 þús­und félags­menn. Ekki sé víst að þetta kunni góðri lukku að stýra, þar sem mik­il­vægt sé að sam­staða mynd­ist innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar.

Auk þess er kallað eftir því að það sé útskýrt nánar, hvernig eigi „nákvæm­lega“ að breyta kerf­inu í grund­vall­ar­at­riðum, þar sem ASÍ hafi í gegnum tíð­ina lagt áherslu á að vernda hags­muni launa­fólks með áherslu á að bæta kjör þeirra sem lægstu launin hafa.

Spennandi stjórnarkjör

Hjá VR er í upp­sigl­ingu spenn­andi stjórn­ar­kjör þar sem 27 ein­stak­lings­fram­boð hafa komið fram, en kosið verður um sjö sæti og fjögur sæti í vara­stjórn. Í stjórn VR eru fjórtán stjórn­ar­menn í dag.

Félags­menn í VR eru 34 þús­und tals­ins, en stjórn­ar­kjörið gæti haft mikið um það að segja hvernig áherslur VR muni þró­ast á næstu miss­erum. Ef það fer svo að Ragnar Þór og hans fólk styrkir stöðu sína, þá er lík­legt að grund­vall­ar­breyt­ing verði á verka­lýðs­hreyf­ing­unni.

Erfitt er að segja til um hvernig landið liggur, fyrir kom­andi átök. Ragnar Þór sigr­aði for­manns­kosn­ingu í VR í fyrr með yfir­burðum. Kosn­inga­þátt­taka var þá aðeins 17,09%, sem þýðir að ríf­lega 5.700 af þeim tæp­lega 34 þús­und sem höfðu kosn­inga­rétt greiddu atkvæð­i.

Ragnar Þór hlaut 62,98 pró­sent atkvæða, eða 3.480 atkvæði alls. Ólafía B. Rafns­dótt­ir, sitj­andi for­maður VR á þeim tíma, hlaut 37% atkvæði, eða 2.046 atkvæði. 3,15% skil­uðu auð­u.

Ragnar Þór var kjör­inn til tveggja ára, og því mun ekki fara fram önnur for­manns­kosn­ing fyrr en 2019, en það mun skipta miklu máli fyrir valda­jafn­vægið í stjórn­inni, hvernig kosn­ingin í stjórn­ina í mars mun fara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár