Aðgengi að skammtímalánum mun auðveldara

Hlutfall ungs fólks sem leita til Umboðs­manns skuld­ara vegna smá­lána hefur rokið upp á síð­ustu árum. Laga­skil­yrðum um birt­ingu upp­lýs­inga fyrir lán­tak­endur illa fylgt eftir. Mikið af nýjum lána­val­kostum í boði, oft mun dýr­ari segir sér­fræð­ingur.

Hlut­falls ungs fólks, á aldr­inum 18 til 29 ára, sem leitar til emb­ætt­is­ins í greiðslu­vanda vegna smá­lána hefur marg­fald­ast á síð­ustu árum. Í tölum frá Umboðs­manni skuld­ara kemur fram að heild­ar­skuldir þessa hóps rúm­lega námu árið 2012 alls um 18 millj­örðum, sem voru mest til komnar vegna hús­næð­is­lána, eða 11 millj­arðar. Aðeins tæp­lega 14 millj­óna smá­lána­skuldir voru í þessum ald­urs­hópi árið 2012. Á síð­asta ári voru heild­ar­kröfur á þennan hóp rúm­lega 5,5 millj­arður, þar af 1,5 millj­arður vegna hús­næð­is­lána, en smá­lánin voru komin upp í tæp­lega hund­rað millj­ónir. Hlutfall þeirra sem leit­uðu í fyrra til umboðs­manns skuld­ara og áttu útistand­andi smá­lána­skuld var 43 pró­sent. Árið 2012 var þetta hlut­fall rúm­lega sex pró­sent. Aðrar skuldir geta verið ýmis konar, skuldir vegna rekst­urs hús­næðis, sektir og sak­ar­kostn­aður og önnur neyslu­lán eins og til að mynda yfir­drátt­ar­lán.

Sara Jason­ar­dóttir, verk­efna­stjóri fræðslu- og kynn­ing­ar­mála hjá Umboðs­manni skuld­ara, segir að þau hjá emb­ætt­inu hafi áhyggjur af þess­ari þróun. Hún segir tölu­vert um rað­greiðslu­lán hjá þessum hópi, en ástæða þess að farið var að greina smá­lána­hlut­fallið sér­stak­lega var til­finn­ing sem þau hafi haft. „Það er aug­ljóst að þarna eru ein­hverjar áherslur sem þarf að breyta, þetta hefur verið að aukast hægt og bít­andi hjá yngsta ald­urs­hópnum og það er einnig áhyggju­efni að meira en 50 pró­sent þeirra sem leita til okkar eru undir fer­tugu. En það veldur manni mestum áhyggjum er að þessi yngsti hópur sé að stækka svona,“ segir Sara.

Upplýsingar eiga að vera aðgengilegar

Aur býður nú upp á nýja þjón­ustu, Segðu bless við bank­ann, Netgíró bauð fólki að borga jólin í febr­úar og Arion banki hefur að auki hafið nýja þjón­ustu­leið, Núlán, þar sem hægt er að fá skamm­tíma­lán. Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans vinnur Íslands­banki nú einnig að því að bjóða upp á sam­bæri­lega þjón­ustu, neyt­enda­lán til við­skipta­vina upp í tvær millj­ónir án greiðslu­mats.

Ekki feng­ust upp­lýs­ingar frá Lands­bank­anum um hvort til stæði að bjóða upp á sam­bæri­legan val­kost. Pei, Kredia, Smálán og Hrað­pen­ingar eru öll með virkar heima­síður þar sem hægt er að fá lánað með skömmum fyr­ir­vara, auk þess sem bank­arnir þrír bjóða upp á yfir­drátt­ar­lán en allar þessar leiðir eru sagðar vera fyrir þá sem þurfa til­tölu­lega lágar upp­hæðir lán­aðar í stuttan tíma. Og fleiri aðilar bjóða upp á sam­bæri­lega þjón­ustu.

Eftir hrunið voru sett ný lög um neyt­enda­lán. Þak var sett á árlega hlut­falls­tölu kostn­aðar sem er pró­sentu­tala þar sem vextir og lán­töku­kostn­aður er mældur á árs­grund­velli. Kostn­aður við lán má ekki vera meiri en svo að árleg hlut­fallstala kostn­aðar má aldrei vera hærri en 50 pró­sent að við­bættum stýri­vöxtum. Neyt­endur geta borið saman þessa einu tölu og fundið út hvaða lán­veit­andi er með hag­kvæm­ast lánstil­boðið. Mik­il­vægt er sam­kvæmt lög­unum að þessi árlega hlut­fallstala kostn­aðar sé til­greind á skýran og áber­andi hátt. Mis­mun­andi er eftir fyr­ir­tækjum hvar í ferl­inu hægt er að nálg­ast slíkar upp­lýs­ingar, en oft er það ekki fyrr en á loka­stigum lán­tök­unnar, enda getur verið erfitt að reikna slíkt út nema láns­fjár­hæðin og láns­tím­inn liggi fyrir.

Auðvelt lán er dýrt lán

Breki Karlsson for­stöðu­maður Stofn­unar um fjár­mála­læsi segir að í lög­unum komi fram að í öllum aug­lýs­ingum um lán­veit­ingar þurfi að taka sér­stak­lega fram hver árleg hlut­fallstala kostn­aðar sé. „Því miður hefur verið ótrú­legur mis­brestur á því.“ Hann segir að með þessu sé neyt­endum ekki gert kleift að bera saman lána­mögu­leik­ana til að geta fundið besta kost­inn. Hann segir að í gegnum tíð­ina hafi yfir­drátt­ar­lánin almennt verið dýr­ustu lánin á mark­aðnum og hafa borið eitt­hvað í kringum 12 pró­sent vexti, sem geri eitt­hvað í kringum 14 pró­sent í árlega hlut­falls­tölu kostn­aðar. „Ég var í gamni mínu að reikna það um dag­inn, að mörg þess­ara nýju lána, ef þú tekur til dæmis eina milljón í eitt ár get­urðu til dæmis verið að borga allt að 30 pró­sent í árlega hlut­falls­tölu kostn­aðar,“ segir Breki.

Hann segir það þum­al­putta­reglu, ann­ars vegar að taka ekki lán fyrir neyslu. En þurfi að koma til þess sé það hins vegar einnig þum­al­putta­regla að þeim mun auð­veld­ara sem það er að fá lánað þeim mun dýr­ara er það. „Með öllu þessu frelsi, sem getur verið frá­bært, öllum þessum mögu­leikum og aðgengi að lánum þá þurfum við að gæta að því sem þjóð­fé­lag að allir sitji við sama borð og geti tekið með­vit­aða ákvörðun um þessa mögu­leika. Því miður er það þannig að við höfum ekki verið nógu dug­leg við að fygja því eftir að fyr­ir­tækin fari að lögum og þannig veiti neyt­endum tæki­færi til að geta tekið upp­lýstar ákvarð­anir.“

Smálán eru okurlán

Bryn­hildur Pét­urs­dóttir fram­kvæmda­stjóri Neyt­enda­sam­tak­anna segir í sam­tali við Kjarnann að fylgst sé grannt með þessum lán­veit­ingum, bæði smá­lánum og öðrum neyslu­lánum. „Þetta er tvenns konar. Annars vegar þessi smá­lán sem er bara okur­lána­starf­semi og hefur verið stans­laust fyrir dóm­stólum. Þau fyr­ir­tæki hafa bara farið fram­hjá skil­yrðum lag­anna sem átti að tak­marka hvað vextir gætu verið háir af svona lán­veit­ingum. En á meðan þetta er í með­ferð fyrir dóm­stólum þá halda lánin bara áfram og menn virð­ast geta grætt svo mikið á þessu að það borgi sig að bera kostnað á mála­rekstri fyrir dóm­stólum og tapa,“ segir Bryn­hildur.

Síðan séu það þessar skamm­tíma­lána­leiðir sem hafa verið að koma fram í meiri mæli nýverið sem sam­tökin eru að fylgj­ast með. Öll gætum við ein­hvern tím­ann á lífs­leið­inni þurft lán, til lengri eða skemmri tíma. Bryn­hildur segir þau þurfa að vera skyn­sam­leg og mik­il­vægt sé að þró­unin verði ekki með sama hætti og hún var fyrir hrunið. „Auðvitað flétt­ast inn í þessa umræðu sjón­ar­mið um við­skipta­frelsi og hversu langt eigi að ganga í for­ræð­is­hyggju við að hafa vit fyrir fólki. En það skiptir máli að upp­lýsa fólk um nákvæm­lega hvað það er að gera þegar það tekur þessi lán,“ segir Bryn­hildur.

Greinin birt­ist fyrst í styttra formi í Mannlífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár