Dómnefnd vill að Arnaldur verði héraðsdómari

Umsögn­inni hefur verið skilað til Sigríðar Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra sem hefur nú tvær vikur til að annað hvort fara eftir til­lögu dóm­nefnd­ar­innar og skipa Arnald eða leggja fyrir Alþingi aðra til­lögu.

Dómnefnd um hæfni umsækj­enda um emb­ætti dóm­ara hefur skilað umsögn sinni um umsækj­endur um eitt emb­ætti dóm­ara við Hér­aðs­dóm Reykja­víkur. Arnaldur Hjart­ar­son er sá sem nefndin metur hæf­astan til að vera skip­aður dóm­ari við dóm­stól­inn. Arnaldur er nú aðstoð­ar­maður dóm­ara við EFTA-dóm­stól­inn.

Embættið var aug­lýst laust til umsóknar þann 17. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn, en alls sóttu 30 um stöð­una en sex umsækj­endur, sem skip­aðir höfðu verið í emb­ætti hér­aðs­dóm­ara frá 9. jan­úar síð­ast­liðnum, drógu umsóknir sínar til baka.

Dóm­nefnd­ina skip­uðu Jakob R. Möller, Kristín Bene­dikts­dóttir, Guðrún Björk Bjarna­dóttir, Ragn­heiður Harð­ar­dóttir og Ragn­hildur Helga­dóttir.

Hér má lesa umsögn dóm­nefnd­ar­innar.

[adspot]Umsögn­inni hefur verið skilað til Sigríðar Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra sem hefur nú tvær vikur til að annað hvort fara eftir til­lögu dóm­nefnd­ar­innar og skipa Arnald eða leggja fyrir Alþingi aðra til­lögu.

[links]Það gerði hún þegar dóm­nefndin skil­aði henni til­lögur að 15 nýjum dóm­urum við Lands­rétt, en fjórir þeirra sem skip­aðir voru dóm­arar við rétt­inn voru ekki metnir hæf­astir af nefnd­inni. Þeir fjórir sem ekki voru skip­aðir hafa allir annað hvort fengið eða sóst eftir bótum frá rík­inu vegna þessa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómstólar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár