Eiríkur fer fram á bætur frá ríkinu vegna lögbrots dómsmálaráðherra

Fjórði mað­ur­inn sem Sigríður Á. Andersen ákvað að til­nefna ekki í Lands­rétt hefur lagt fram kröfu á ríkið um bætur. Krafa hans gæti orðið umtals­verð, enda mað­ur­inn fer­tugur og á mun lægri launum en dóm­arar við Lands­rétt.

Eiríkur Jónsson laga­pró­fessor við Háskóla Íslands, hefur krafið íslenska ríkið um bætur vegna ólög­mætra athafna Sigríðar Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra þegar hún skip­aði dóm­ara í Lands­rétt. Eiríkur var einn þeirra fjög­urra sem dóm­nefnd hafði talið á meðal 15 hæf­ustu til að starfa í rétt­inum en Sigríður vék til hliðar. Raunar hafði dóm­nefndin metið Eirík sjö­unda hæf­asta umsækj­and­ann, en hann var samt lát­inn víkja af lista dóms­mála­ráð­herra.

[links]Tveir mann­anna stefndu rík­inu vegna máls­ins og í nið­ur­stöðu Hæsta­réttar, sem lá fyrir fyrr í þessum mán­uði, kom fram að Sigríður hefði brotið gegn ákvæðum stjórn­sýslu­laga með ákvörðun sinni. Hinir tveir menn­irnir hafa nú krafið ríkið um bætur vegna þessa.

Í frétt á vef RÚV kemur fram að Eiríkur setji ekki fram neina fjár­hæð í kröf­unni sem hann gerir. Krafan hafi verið send rík­is­lög­manni í gær. Eiríkur er, líkt og áður sagði, pró­fessor við laga­deild Háskóla Íslands. Hann er fæddur árið 1977 og er því fer­tugur að aldri. Eiríkur á því um 27 ár eftir á vinnu­mark­aði miðað við hefð­bund­inn eft­ir­launa­ald­ur. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum á heima­síðu félags pró­fess­ora ætti Eiríkur að vera með á bil­inu 659.683 til 727.572 krónur í mán­að­ar­laun.

Það er um einni milljón króna frá þeim mán­að­ar­launum sem hann hefði haft sem dóm­ari við Lands­rétt.

Ráðherra braut lög

Ást­ráður Har­alds­son og gerði Jóhannes Rúnar Jóhanns­son stefndu rík­inu í kjöl­far þess að þeir voru ekki skip­aðir dóm­arar við Lands­rétt.

[adspot]Hér­aðs­dómur komst að þeirri nið­ur­stöðu 15. sept­em­ber síð­ast­lið­inn, sama dag og rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar sprakk, að Sigríður Andersen hafi brotið lög við skipun Land­rétt­ar­dóm­ara. Dóm­ur­inn komst að þeirri nið­ur­stöðu að dóms­mála­ráð­herra hefði átt að óska eftir nýju áliti dóm­nefndar um hæfi umsækj­enda um dóm­ara­stöðu, ef hún taldi ann­marka á áliti dóm­nefnd­ar­inn­ar. Í nið­ur­stöðukafla dóms­ins var tekið fram að „stjórn­sýslu­með­ferð ráð­herra hafi ekki verið í sam­ræmi við ákvæði laga nr. 50/2016 sem og skráðar og óskráðar reglur stjórn­sýslu­rétt­ar­ins um rann­sókn máls, mat á hæfni umsækj­enda og inn­byrðis sam­an­burð þeirra.“

19. des­em­ber komst Hæsti­réttur síðan líka að því að Sigríður hafi brotið gegn ákvæði stjórn­sýslu­laga. Dóm­stóll­inn tók afdrátt­ar­lausa efn­is­lega afstöðu til máls­ins. Ef dóms­mála­ráð­herra ætlar að víkja frá áliti dóm­nefndar um veit­ingu dóm­ara­emb­ættis verður slík ákvörðun að vera reist á frek­ari rann­sókn ráð­herra, líkt og kveðið er á um í stjórn­sýslu­lögum. Í dómi Hæsta­réttar segir að það liggi ekki fyrir að Sigríður hafi ráð­ist í frek­ari rann­sókn á þeim atriðum sem vörð­uðu veit­ingu þeirra fjög­urra dóm­ara­emb­ætta sem málið snérist um og rök­stuðn­ingur hennar til for­seta Alþingis, sem settur var fram í bréfi dag­sett 28. maí 2017, um að víkja frá nið­ur­stöðu dóm­nefndar full­nægði ekki lág­marks­kröfum.

Í dómnum var fall­ist á miska­bóta­kröfur Ástráðs og Jóhann­esar Rúnars. Þeir fá 700 þús­und krónur hvor vegna skip­unar dóm­ara við Lands­rétt. Hæsti­réttur sýkn­aði hins vegar ríkið af skaða­bóta­kröfu og hafði áður vísað frá ógild­ing­ar­kröfur Ástráðs og Jóhann­esar Rúnars, sem laut að ógild­ingu þeirrar ákvörð­unar dóms­mála­ráð­herra að leggja ekki til við Alþingi að þeir yrðu skip­aðir í emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt.

Ástæða þess að Hæsti­réttur féllst ekki á skaða­bóta­kröfu þeirra var sú að þeir gátu ekki sýnt fram á fjár­hags­legt tjón, enda báðir vel laun­aðir lög­menn. Það geta hins vegar hinir tveir sem ekki hlutu náð fyrir augum Sigríðar gert. Jón Hösk­ulds­son hefur þegar stefnt íslenska rík­inu og krefst þess að fá bætt mis­mun launa, líf­eyr­is­rétt­inda og ann­arra launa­tengdra rétt­inda dóm­ara við Lands­rétt ann­ars vegar og hér­aðs­dóm­ara hins veg­ar. Jón krefst þess að fá þennan mun greiddan út starfsævi sína, eða í níu ár. Ljóst er að krafa Jóns hleypur á tugum millj­óna króna. Lands­rétt­ar­dóm­arar fá 1,7 millj­ónir króna í laun á mán­uði en hér­aðs­dóm­arar 1,3 millj­ónir króna. Bara launa­mun­ur­inn er því um 280 þús­und á mán­uði, eða yfir 30 millj­ónir króna á níu árum.

Eiríkur á mun hærri kröfu en Jón, líkt og áður var rakið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár