Tólf aðildarfélög BHM semja um kjör við ríkið

Enn eiga fimm félög eftir að ná samn­ingum.

Tólf aðild­ar­fé­lög Banda­lags háskóla­manna (BHM) hafa und­ir­ritað nýja kjara­samn­inga við ríkið. Um er að ræða Dýra­lækna­fé­lag Íslands (DÍ), Félag íslenskra félags­vís­inda­manna (FÍF), Félag líf­einda­fræð­inga (FL), Félag sjúkra­þjálf­ara (FS), Félag háskóla­mennt­aðra starfs­manna Stjórn­ar­ráðs­ins (FHSS), Félags­ráð­gjafa­fé­lag Íslands (FÍ), Fræða­garð (FRG), Iðju­þjálfa­fé­lag Íslands (IÞÍ), Sál­fræð­inga­fé­lag Íslands (SÍ), Stétt­ar­fé­lag bóka­safns- og upp­lýs­inga­fræð­inga (SBU), Stétt­ar­fé­lag lög­fræð­inga (SL) og Þroska­þjálfa­fé­lag Íslands (ÞÍ). Gild­is­tími samn­ing­anna er frá 1. sept­em­ber 2017 til 31. mars 2019.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá BHM, en um þrettán þús­und félags­menn eru í 27 fag- og stétt­ar­fé­lögum háskóla­mennt­aðs fólks sem heyra undir BHM.

Allir samn­ingar félag­anna voru und­ir­rit­aðir með fyr­ir­vara um sam­þykki félags­manna en á næst­unni verða efn­is­at­riði þeirra kynnt innan félag­anna og þeir síðan bornir undir atkvæði.

Ekki verður upp­lýst um efn­is­at­riði samn­ing­anna fyrr en þeir hafa verið kynntir félags­mönnum, að því er segir í til­kynn­ingu.

Sem kunn­ugt er hafa samn­ingar sautján aðild­ar­fé­laga BHM við ríkið verið lausir frá því sl. haust.

Enn eiga tvö aðild­ar­fé­lög í beinum við­ræðum við samn­inga­nefnd rík­is­ins: Félag geisla­fræð­inga (FG) og Félag íslenskra leik­ara (FÍL). Þrjú félög hafa vísað kjara­deilu sinni við ríkið til rík­is­sátta­semj­ara: Félag íslenskra hljóm­list­ar­manna (FÍH), Félag íslenskra nátt­úru­fræð­inga (FÍN) og Ljós­mæðra­fé­lag Íslands (LMFÍ).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár