Kjarninn verður á Framadögum

Frama­dagar 2018 fara fram næst­kom­andi fimmtu­dag. Til­gangur þeirra er að gefa ungu fólki tæki­færi til þess að kom­ast í kynni við íslenskt atvinnu­líf.

Ár hvert skipu­leggja sam­tökin AIESEC svo­kall­aða Frama­daga. Meg­in­til­gangur þeirra er að gefa ungu fólki á tæki­færi til þess að kom­ast í kynni við Íslenskt atvinnu­líf og önnur fjöl­breytt tæki­færi víðs vegar um heim­inn.

Frama­dagar árs­ins 2018 fara fram í Háskól­anum í Reykja­vík milli klukkan 10 og 15 næst­kom­andi fimmtu­dag, 8. febr­úar. Alls taka 85 fyr­ir­tæki og stofn­anir þátt og kynna starf­semi sína. Kjarninn verður á meðal þeirra fyr­ir­tækja sem verða með bás í ár. Það er í fyrsta sinn sem fjöl­mið­ill­inn tekur þátt í við­burð­inum.

Þórður Snær Júl­í­us­son, rit­stjóri Kjarnans, segir að mikil spenna sé fyrir því. „Frama­dagar gefa okkur tæki­færi til að kynna okkar starf­semi fyrir háskóla­nem­endum sem eru að ákveða hvað þeir ætli að verða þegar þeir verða stórir. Vonandi verður sú þátt­taka til þess að auka áhuga þeirra á því að starfa sem fjöl­miðla­fólk og aldrei að vita nema að fram­tíð­ar­starfs­fólk okkar leyn­ist á meðal þeirra sem sækja við­burð­inn.“

Víkka tengslaneti og fá innsýn á íslenskan atvinnumarkað

Á heima­síðu Frama­daga er haft eftir teym­inu sem stendur á bak við við­burð­inn að það hafi verið lær­dóms­ríkt að und­ir­búa Frama­daga 2018. „Við vorum ákveðin í því alveg frá upp­hafi að við vildum leggja sér­staka áherslu á að styrkja sam­band atvinnu­lífs og ungs fólks á Íslandi enn betur. Áherslan þetta árið er því á fag­leg sam­skipti þar á milli en einnig vildum við ýta undir fjöl­breyti­leika. Þau fyr­ir­tæki og stofn­anir sem taka þátt þetta árið end­ur­spegla alls kyns starfs­greinar svo hægt er að kom­ast til móts við breið­ari hóp fólks sem er að feta sig áfram i atvinnu­líf­inu.

Sandra Ósk Jóhanns­dóttir, verk­efna­stjóri bætir við að „Ferlið hefur verið lær­dóms­ríkt fyrir okkur öll. Við t.d breyttum og betrumbættum verk­ferla til þess að ganga úr skugga um að varð­veita virði Frama­daga og tryggja áfram að við­burð­ur­inn bjóði upp á fjöl­breytt tæki­færi fyrir ungt fólk til að víkka tengsla­netið og fá góða inn­sýn í íslenskt atvinnu­líf.“

Frama­dagateymið sam­anstendur af Söndru Ósk Jóhanns­dóttur verk­efna­stjóra, Katrínu Ástu Jóhanns­dóttur vef­stjórn­anda, Ísey Dísu Havars­dóttur,Johönnu Wium Pálm­ars­dóttur og Lenu-Alessu Fiedler, sem sjá um fyr­ir­tækja­tengsl. Teymið vinnur náið með Danilo Nava, for­seta AIESEC, og Nicole Buot Navarro fjár­mála­stjóra AIESEC á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Atvinnulíf

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár