Tveir framboðslistar samþykktir - Valið stendur á milli Sólveigar og Ingvars

Listar Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur og Ingvars Vigurs Hall­dórs­sonar voru sam­þykktir af kjör­stjórn Eflingar í morgun.

Ingvar Vigur Halldórsson og Sólveig Anna Jónsdóttir
Ingvar Vigur Hall­dórs­son og Sólveig Anna Jóns­dóttir Mynd: Samsett mynd. Skjáskot/RÚV

Tveir listar til fram­boðs til for­manns stjórnar í Eflingu voru sam­þykktir á fundi kjör­stjórnar sem hald­inn var í morgun. Magnús Norðdahl, yfir­maður kjör­stjórnar, stað­festir þetta í sam­tali vð Kjarnann. Sólveig Anna Jóns­dóttir og Ingvar Vigur Hall­dórs­son gefa kost á sér til for­manns stjórnar stétt­ar­fé­lags­ins Eflingar.

Stjórn­ar­kjör mun fara fram í byrjun mars næst­kom­andi, sam­kvæmt ákvörðun kjör­stjórnar.

Frá­far­andi for­maður Sigurður Bessason bauð sig ekki fram til end­ur­kjörs eftir að hafa gengt for­mennsku í um tvo ára­tugi.

Kjör­stjórn Eflingar hélt sinn fyrsta fund í fyrra­dag vegna kom­andi stjórn­ar­kjörs í félag­inu. Fundinn sátu einnig umboðs­menn þeirra tveggja lista sem fram hafa verið lagðir. Á fund­inum var ákveðið að setja þegar í stað gang vinnu til að ganga úr skugga um lög­mæti list­anna. List­arnir voru sam­þykktir í dag eins og fyrr segir.

Sólveig Anna Jóns­dóttir, starfs­maður á leik­skól­anum Nóaborg í Reykja­vík, gefur kost á sér til for­manns en hún til­kynnti fram­boðið þann 29. jan­úar síð­ast­lið­inn.

Ingvar Vigur Hall­dórs­son gefur einnig kost á sér sem nýr for­maður og stendur á vef­síðu Eflingar að hann sé sá fram­bjóð­andi sem er með ein­róma stuðn­ing upp­still­ing­ar­nefndar, stjórnar og trún­að­ar­ráðs félags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stéttarfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár