Ráðuneytisstjórinn varaði Sigríði Andersen við

Ráðu­neyt­is­stjóri dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins bauð fram aðstoð starfs­manna ráðu­neyt­is­ins við að leggja mat á umsækj­endur um emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt til að bæta við rök­stuðn­ing ráð­herra. Frekari rann­sókn á hæfi umsækj­end­anna fór ekki fram.

Sigríður Andersen dómsmálaráðherra.
Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Samsett.

Í tölvu­pósti frá Ragn­hildi Arn­ljóts­dóttur, ráðu­neyt­is­stjóra dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins, sem sendur var á Sigríði Andersen dóms­mála­ráð­herra dag­inn áður en ráð­herra til­kynnti um ákvörðun sína um að gera breyt­ingar á nið­ur­stöðu hæf­is­nefndar um skipun á dóm­urum í Lands­rétt, kemur fram að ráðu­neyt­is­stjór­inn taldi skorta á rök­stuðn­ing ráð­herr­ans. Þetta kom fram í kvöld­fréttum RÚV í kvöld.

Í tölvu­póst­inum mælir ráðu­neyt­is­stjór­inn með að Sigríður annað hvort fresti skip­an­inni í sam­ráði við Alþingi eða legði breyt­ing­arnar í hendur Alþingis. Ætlaði ráð­herra sér hins vegar að leggja til aðra umsækj­endur en hæf­is­nefndin sagði ráðu­neyt­is­stjór­inn að það yrði að gera með rök­stuðn­ingi og mati á öllum umsækj­endum. Taldi Ragn­hildur ráð­herra ekki hafa lagst í það mat og bauðst hún til þess að starfs­menn ráðu­neyt­is­ins fari í þá vinnu.

Í sam­tali við RÚV segir Sigríður að eng­inn sér­fræð­ingur hefði ráð­lagt henni að leggja til­lög­una fyrir Alþingi með þeim hætti sem hún gerði. „Það var eng­inn sér­fræð­ingur sem ráð­lagði mér að gera eitt eða neitt. Ég tek auð­vitað ábyrgð­ina,“ segir Sigríður. Hún seg­ist sjálf vera sér­fræð­ingur á þessu sviði og taki sínar ákvarð­anir byggða á hennar hyggju­viti. Hún sé lög­fræð­ingur og standi fylli­lega við þessar ákvarð­anir sínar og geri það ennþá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómstólar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár