Hæstiréttur Bretlands vill auka fjölbreytni dómara

Dóm­stóll­inn telur mik­il­vægt að dóm­arar séu fjöl­breytt­ari hópur sem spegli sam­fé­lags­gerð­ina betur. Lang­flestir dóm­arar eru og hafa verið hvítir karl­menn úr einka­skólum.

Hæstiréttur í Bretlandi leitar nú leiða til að auka fjölbreytni meðal dómara.
Hæsti­réttur í Bret­landi leitar nú leiða til að auka fjöl­breytni meðal dóm­ara. Mynd: EPA.

Hæsti­réttur í Bret­landi leitar nú að tveimur nýjum dóm­urum, sem og nýjum vara­for­seta.

Í starfs­aug­lýs­ing­unni er sér­stak­lega tekið fram að leitað sé eftir marg­vís­legri starfs­reynslu, mis­mun­andi sér­þekk­ingu og bak­grunni hjá umsækj­endum. Hún er því óvenju­leg að því leiti að leit­ast á sér­stak­lega eftir því að ná fram meira jafn­vægi í fyrr­greindum þáttum sem og meiri fjöl­breytni meðal dóm­ara dóm­stóls­ins.

Af tólf dóm­urum við dóm­stól­inn sem nú gegna emb­ætti eru aðeins tvær konur, Lady Hale og Lady Black. Enginn dóm­ari er dökkur á hör­und eða af öðrum upp­runa en breskum. Yfir­gnæf­andi meiri­hluti dóm­ara hefur hingað til verið hvítir karl­menn og níu af tólf úr einka­skólum.

Dóm­stóll­inn telur mik­il­vægt að dóm­arar séu fjöl­breytt­ari hópur sem spegli sam­fé­lags­gerð­ina betur. Fyrr­ver­andi for­seti rétt­ar­ins, Lord Neu­berger, sagði árið 2016, þegar hann til­kynnti að hann hyggð­ist setj­ast í helgan stein, áætlun rétt­ar­ins um að auka fjöl­breytni innan hans.

Þar var sér­stak­lega tekið fram að breyta ætti hvernig aug­lýst væri eftir dóm­urum, breyta þannig orða­lag­inu og aug­lýsa víðar til að ná til sem flestra. Þannig yrðu aðilar sem upp­fylla hæf­is­skil­yrði hvattir til að sækja um sem áður hefðu ef til vill ekki gert það. Þá verður það skoðað sér­stak­lega hvort hægt sé að gera vinnu­tíma dóm­ara sveigj­an­legan.

Á Íslandi eru átta Hæsta­rétt­ar­dóm­arar, þar af aðeins ein kona. Af 44 fyrr­ver­andi Hæsta­rétt­ar­dóm­urum eru aðeins fjórar konur. Ekkert þeirra er af erlendum upp­runa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómstólar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár