Gjaldþrot blasir við United Silicon

Umhverf­is­stofnun hefur gert United Silicon að leysa úr nær öllu því sem upp á vantar, þannig að verk­smiðjan geti hafið starf­semi.

Greiðslu­stöðvun United Silicon rennur út á morgun og blasir gjald­þrot við félag­inu. Í til­kynn­ingu frá Umhverf­is­stofnun, sem send var fjöl­miðlum í kvöld, kemur fram að stofn­unin fall­ist á úrbóta­á­ætlun fyr­ir­tæk­is­ins með skil­yrðum. „Með bréfi í byrjun sept­em­ber sl. stöðv­aði Umhverf­is­stofnun starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins. Þá höfðu lykt­ar­vanda­mál ítrekað komið upp, íbúum til ama. For­dæma­laus fjöldi frá­vika frá starfs­leyfi hafði jafn­framt orðið í níu mán­aða rekstr­ar­sögu fyr­ir­tæk­is­ins. Sameinað silíkon sendi Umhverf­is­stofnun úrbóta­á­ætlun með bréfi 14. des­em­ber 2017 og 16 jan­úar 2018. Með svar­bréfi Umhverf­is­stofn­unar sem sent var fyr­ir­tæk­inu 19. jan­úar sl. setur Umhverf­is­stofnun fram sem skil­yrði fyrir sam­þykkt úrbóta­á­ætl­unar. Skor­steini verði bætt á verk­smiðj­una í þágu íbúa til að minnka lykt­ar­mengun. Stofn­unin fellst ekki á þá ósk for­svars­manna Sam­ein­aðs silíkons að fresta þeirri aðgerð fram yfir end­ur­ræs­ingu,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Fyr­ir­tæk­inu er sam­kvæmt bréfi til þess, sem sent var 19. jan­úar, gert að vinna að fleiri úrbótum. Umbætur hafa þó átt sér stað og telur Umhverf­is­stofnun m.a. að nýtt og betra reyk­hreinsi­virki fyrir afsog frá aftöppun og steyp­ingu í ofn­húsi sé til bóta.

Í alvar­legrar fjár­hags­stöðu verk­efn­is­ins er útlit fyrir að það fari í gjald­þrot, en Arion banki er stærsti hlut­hafi þess og kröfu­hafi, ásamt íslenskum líf­eyr­is­sjóðum. Aðrir kröfu­hafar eru meðal ann­ars verk­takar og birgjar.

Nú þegar hefur Arion banki afskrifað tæp­lega 5 millj­arða vegna verk­efn­is­ins, en heild­ar­skuld­bind­ingar, sem útlit er fyrir að kom­ist í upp­nám í gjald­þroti, nema um 10 millj­örðum.

Arion banki hefur haldið starf­sem­inni gang­andi á greiðslu­stöðv­un­ar­tíma, og nemur kostn­aður bank­ans vegna þess nálægt einum millj­arði króna. Það eru meðal ann­ars launa­greiðslur fyrir þá tugi starfs­manna sem eru að vinna hjá verk­smiðj­unni, og annar kostn­aður sem hefur þurft að greiða.

Nokkrir hafa sýnt því áhuga að kaupa verk­smiðj­una, og reka hana síðan áfram, en gera má ráð fyrir að það ferli fari nú fram í gegnum gjald­þrota­ferlið, þar sem kaup­endur munu sýna því áhuga að koma að því, með sam­skiptum við skipta­stjóra, og reka verk­smiðj­una síðan með nýju eign­ar­haldi. Óvissa er þó um þessi atriði, og mun fram­tíð verk­efn­is­ins ekki skýr­ast end­an­lega í nán­ustu fram­tíð.

Bréf Umhverf­is­stofn­unar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár