Spenna á vinnumarkaði - „Þurfum að komast út úr deilum“

For­sæt­is­ráð­herra segir krefj­andi stöðu vera á vinnu­mark­aði þessi miss­erin.

Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, sagði í við­tali við Kastljós í kvöld að eitt mik­il­væg­asta verk­efni rík­is­stjórn­ar­innar, horft til næstu mán­aða, væri að stuðla að stöð­ug­leika og sátt á vinnu­mark­aði. 

Hún sagði að staða í kjara­við­ræðum ólíkra hópa á vinnu­mark­aði væri flókin, en lyk­il­at­riðið væri að reyna að kom­ast út úr þeim deilum sem hafi verið ein­kenn­andi fyrir stöð­una á vinnu­mark­aði und­an­farin ár, með tíðum verk­föllum og hörðum kjara­deilum.

Laun hafa farið hækk­andi á und­an­förnum árum og kaup­máttur launa er í sögu­legu hámarki. Vænt­ingar eru miklar á vinnu­mark­aði um mynd­ar­legar launa­hækk­anir í kom­andi kjara­samn­ingum, en Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra, hefur sagt að lítið svig­rúm sé til launa­hækk­ana.

Óhætt er að segja að mik­ill gangur sé nú í íslenska hag­kerf­inu og sýna nýjar atvinnu­leysis­tölur að vinnu­fúsar hendur séu svo til allar að störfum þessi miss­erin. Atvinnu­leysi mæld­ist 1,7 pró­sent í nóv­em­ber, sam­kvæmt tölum sem Hagstofa Íslands birti í dag.

Íslenskur vinnu­mark­aður er nú með tæp­lega 200 þús­und ein­stak­linga á mark­aði. Samkvæmt vinnu­mark­aðs­rann­sókn Hag­stof­unnar voru 198.100 á aldr­inum 16 til 74 ára á vinnu­mark­aði í nóv­em­ber í fyrra, en það er 80,5 pró­sent atvinnu­þátt­taka. Samtals voru 194.700 af þeim á vinnu­mark­aði, 3.400 án vinnu og í atvinnu­leit.

Á meðal atvinnu­lausra eru tvö þús­und karlar og 1.300 konur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár