Markmiðið er að rafmagnsbíllinn verði fyrsta val

Fram­kvæmda­stjóri ON segir að í fram­tíð­inni verði krafa fólks um að hleðslu­stöðvar fyrir raf­magns­bíla við hótel lands­ins jafn sjálf­sögð og að hafa WiFi-teng­ingu á her­berg­inu.

Lang­tíma­mark­mið ON er að raf­magns­bíll­inn verði fyrsta val fólks. Þetta segir Bjarni Már Júl­í­us­son, fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins. Hann segir ábyrgða­leysi af fjöl­skyldum sem reka tvo bíla að hafa annan bíl­inn ekki raf­magns­bíl.

ON stefnir á að opna fjórar nýjar hleðslu­stöðvar, eða hlöður, á næstu mán­uðum sem mun gera það að verkum að hægt verður að keyra hring­veg­inn á raf­magns­bílum. Alls voru ell­efu nýjar hlöður settar upp 2017 og stefnt er á svipað magn árið 2018. Að opna hring­veg­inn er eitt skref í gera raf­magns­bíl­inn fýsi­legan kost fyrir alla.

[adspot]Bjarni segir að draum­ur­inn sé að raf­magns­bíll­inn verði fyrsta val, ekki bara hjá Íslend­ingum heldur einnig hjá ferða­mönn­unum og trúir hann því að það muni bæta ímynd lands­ins. Hann segir að í fram­tíð­inni verði krafa fólks um hleðslu­stöðvar við hótel lands­ins jafn almenn og að hafa WiFi-teng­ingu á her­berg­inu.

40% ódýrara að nota rafmagnsbíl

1 febr­úar n.k. verður tekið upp gjald á hrað­hleðslu­stöðvum lands­ins. Þá mun kosta 39 kr á mín­útu að hlaða bíl­inn, eða um 400 - 600 krónur fyrir algenga notkun. Hingað til hefur þjón­ustan verið ókeypis en kostn­að­ur­inn mið­ast við spár um notkun raf­bíla í fram­tíð­inni. Eins og er er notkun hleðslu­stöðv­anna heldur ófyr­ir­sjá­an­leg en það er draum­ur­inn að geta lækkað verðið með auk­inni notkun hlað­anna, segir Bjarni.

Bjarni nefnir að þó rukkað sé fyrir mín­út­una sé það enn tölu­vert ódýr­ara en að reka bens­ín­bíl. Að keyra 50.000km á WV Golf bens­ín­bíl kostar um 800.000 krónur auk um 200.000 krónur í smurn­ingu og við­hald.

Sama vega­lengd á raf­magns­bíl sem ein­göngu er hlað­inn á hrað­hleðslu­stöðvum kostar um 600.000 krónur eða 40% minna.
Bjarni bendir á að það þurfi að hugsa um hrað­hleðslu­stöðvar eins og leigu­bíl. Þjónustu sem er í boði en þó ávallt betra að nota ódýru leið­ina, sem er að hlaða bíl­inn heima hjá sér og í vinn­unni.

Nýtt app á leiðinni

Nýtt og not­enda­vænna app er í bígerð hja ON og felst bæt­ingin á app­inu í því að geta þjón­u­stað við­skipta­vini betur. Bjarni segir að helstu trufl­anir á stöðv­unum sé að þær eru að slá út, þá helst vegna þess að fólk kann ekki nógu vel á þær. Þá verði hægt að senda mynd í gegn um appið og fá nákvæma leið­sögn. Einnig verður hægt að fara inn á mínar síður þar sem m.a. er hægt að skoða greiðslu­yf­ir­lit.
Mis­mun­andi bílar taka mis­mun­andi hleðslu­tæki og hægt er að sía út upp­lýs­ingar fyrir hvern og einn not­enda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár