Biskup ætlar ekki að tjá sig um launahækkun sína

Biskup Íslands segir það ekki vera í hennar verka­hring að tjá sig efn­is­lega um nið­ur­stöðu kjara­ráðs, sem leiddi til þess að laun bisk­ups voru hækkuð um 21 pró­sent.

Agnes Sigurðardóttir er biskup þjóðkirkju Íslands.
Agnes Sig­urð­ar­dóttir er biskup þjóð­kirkju Íslands. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Agnes Sig­urð­ar­dóttir, biskup Íslands, ætlar ekki að tjá sig efn­is­lega um nið­ur­stöðu kjara­ráðs sem leiddi til hækk­unar á launum hennar og presta. Í frétt á vef þjóð­kirkj­unnar segir að hún telji það ekki í sínum verka­hring. Eðlilegt sé þó að benda á að um sé að ræða kerf­is­breyt­ingar og launa­leið­rétt­ingar eftir tólf ára kyrr­stöðu að und­an­skil­inni kjara­skerð­ingu hjá presta­stétt­inni á árinu 2009.

Í frétt­inni segir enn fremur:„Presta­fé­lag Íslands lagði mikla vinnu í að gera kjara­ráði grein fyrir starfs­um­hverfi og starfs­skyldum presta og bisk­upa. Á meðal þeirra gagna sem lögð voru fram var lýs­ing á dag­legum verk­efnum bisk­ups Íslands sem hann vann að beiðni félags­ins.. Nið­ur­staða ítar­legrar skoð­unar og end­ur­mats kjara­ráðs á starfs­kjörum bisk­upa og presta liggur nú fyrir og þarf ekki að koma á óvart að ástæða hafi þótt til ýmissa breyt­inga og leið­rétt­inga. Að öðru leyti mun biskup Íslands ekki tjá sig um nið­ur­stöð­urnar né svara fyr­ir­spurnum um per­sónu­lega afstöðu sína til þeirra.“

Sam­kvæm úrskurði kjara­ráðs sem birtur var í gær hækka laun bisk­ups, Agn­esar Sig­urð­ar­dótt­ur, um 21 pró­sent. Í úrskurð­inum kemur fram að biskup skuli hafa tæp­lega 1,2 millj­ónir í mán­að­ar­laun auk 40 fastra yfir­vinnu­ein­inga. Ein ein­ing er 9.572 krónur og laun bisk­ups því eftir hækkun alls 1.553.359 krónur á mán­uði.

Í úrskurði kjara­ráðs seg­ir: „Með ákvörðun kjara­ráðs frá 19. júní 2007 voru laun bisk­ups Íslands felld að sömu launa­töflu og gilti fyrir aðra emb­ætt­is­menn sem kjara­ráð ákveður laun, en áður heyrði undir Kjara­dóm að ákveða bisk­upi laun. Frá þeim tíma hafa laun hans tekið breyt­ingum í sam­ræmi við almennar ákvarð­an­ir kjara­ráðs. Biskup Íslands er æðsti emb­ætt­is­maður hinnar stjórn­ar­skrár­bundnu íslensku þjóð­kirkju. Við á­kvörðun launa­kjara hans er höfð hlið­sjón af því hlut­verki hans og starfs­skyldum sam­kvæmt lögum og ­starfs­reglum sem og eðli og umfangi starfs­ins. Þá er einnig tekið mið af því inn­byrðis sam­ræmi sem kjara­ráði ber að gæta og áður er gerð grein fyr­ir­.“

Hækk­unin er aft­ur­virk til 1. jan­úar 2017, sam­kvæmt úrskurð­in­um. Um næstu mán­að­ar­mót mun biskup því fá ein­greiðslu fyrir síð­asta árið en sú upp­hæð nemur 3,3 millj­ónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár