Skarphéðinn Berg Steinarsson skipaður ferðamálastjóri

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, hefur skipað Skarp­héð­inn Berg Stein­ars­son í emb­ætti ferða­mála­stjóra.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ráð­herra ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­unar, hefur skipað Skarp­héð­inn Berg Stein­ars­son í emb­ætti ferða­mála­stjóra til fimm ára frá 1. jan­úar næst­kom­andi.

Frá þessu er greint í frétta­til­kynn­ingu frá atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu.

Skarp­héð­inn Berg útskrif­að­ist með Cand. oecon. próf í við­skipta­fræði frá Háskóla Íslands árið 1987 og lauk MBA námi frá Uni­versity of Minnesota árið 1990.

Í til­kynn­ing­unni segir að hann hafi víð­tæka stjórn­unar- og rekstr­ar­reynslu bæði úr atvinnu­líf­inu og úr stjórn­sýsl­unni, m.a. sem skrif­stofu­stjóri í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu og deild­ar­stjóri í fjár­mála­ráðu­neyt­inu. Í fyrri störfum sínum hafi hann m.a. komið að fjár­mála­stjórnun, áætl­ana­gerð og fjár­laga­gerð ásamt því að hafa góða reynslu af stjórnun breyt­inga.

Segir jafn­framt að Skarp­héð­inn hafi góða þekk­ingu á ferða­þjón­ustu meðal ann­ars í gegnum störf sín sem for­stjóri Iceland Express, for­stjóri Ferða­skrif­stofu Íslands og fram­kvæmda­stjóri Íshesta.

[links]Staðan var aug­lýst í lok októ­ber og bár­ust 23 umsóknir en hæfn­is­nefndin mat þrjá umsækj­endur best til þess fallna að gegna emb­ætti ferða­mála­stjóra. Einn þeirra var odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, Halldór Hall­dórs­son. Þetta kom fram í frétt Túrista á dög­unum.

Í síð­ustu viku átti ráð­herra ferða­mála, Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttur, fundi með þeim þremur sem koma til greina í starfið og í kjöl­farið var búist við að skipað yrði í emb­ættið, sagði í frétt­inni.

Þau þrjú sem hæfn­is­nefndin mat hæfust voru, sam­kvæmt heim­ildum Túrista, Arn­heiður Jóhanns­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Mark­aðs­stofu Norð­ur­lands, Halldór Hall­dórs­son, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík og Skarp­héð­inn Berg Stein­ars­son sem hefur meðal ann­ars verið fram­kvæmda­stjóri Íshesta, Ferða­skrif­stofu Íslands og Iceland Express.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár