Orri Hauksson: Kerfisbundin og markviss skekkja fengið að viðgangast

For­stjóri Símans telur að mikil bjögun og skekkja ein­kenni stöðu á fjar­skipta­mark­aði, ekki síst vegna Gagna­veitu Reykja­víkur. Hann skrif­aði for­stjóra Póst- og fjar­skipta­stofn­unar bréf vegna þessa á dög­unum.

For­stjóri Símans, Orri Hauksson, segir í bréfi til Póst- og fjar­skipta­stofn­unar (Póst og fjar) að í langan tíma hafi feng­ist að við­gang­ast „skekkja“ á fjar­skipta­mark­aði vegna starf­semi Gagna­veit­unnar, dótt­ur­fé­lags Orku­veitu Reykja­víkur. Þetta bitni beint á fyr­ir­tækjum í sam­keppni, þar á meðal Símanum.

„Í heild er því ljóst að kerf­is­bundin og mark­viss skekkja hefur fengið að við­gang­ast og magn­ast upp í óra­tíma á íslenskum fjar­skipta­mark­aði. Síminn óskar eftir því að íslensk fjar­skipta­yf­ir­völd leið­rétti þessa villu,“ segir hann í lok bréfs­ins, sem stílað er á Hrafnkel V. Gíslason, for­stjóra Póst og fjar. og Björn Geirsson, yfir­lög­fræð­ing stofn­un­ar­innar. Það var sent 10. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn.

Allt önnur staða

Í bréf­inu, sem Kjarninn hefur undir höndum, segir Orri að Gagna­veitan búi við allt aðra stöðu á sam­keppn­is­mark­aði heldur en einka­reknir keppi­nautar. Fyr­ir­tækið geti í krafti opin­bers eign­ar­halds verið með allt önnur við­mið þegar kemur að aðgengi að fjár­magni, fjár­fest­ingum og afkomu. „Dótt­ur­fé­lag OR sem stundar sam­keppn­is­rekstur í fjar­skiptum þarf við fram­an­greindar aðstæður aug­ljós­lega að fara fram með sér­stak­lega vand­virkum hætti og leggja sig fram um „að við­un­andi arð­semi náist innan eðli­legs tíma­frests,“ eins og Póst og fjar. hefur gert kröfu um í fjár­fest­ingum starf­semi Gagna­veit­unnar,“ segir Orri í bréfi sínum.

Eins og greint var frá að vef Kjarnans í októ­ber þá sendu Sam­tök iðn­að­ar­ins (SI) Degi B. Egg­erts­syni borg­ar­stjóra bréf 11. októ­ber síð­ast­lið­inn, þar sem þau lýsa yfir áhyggjum sínum vegna hátt­semi Gagna­veit­unnar, og segja hana sam­keppn­is­hamlandi.

Í bréf­inu er sér­stak­lega vikið að því að GR skuli bræð­i­sjóða fjar­skipta­lagnir innan húsa við ljós­leið­ar­a­taug. Er þetta sagt fara gegn úrskurðum Póst- og fjar­skipta­stofn­unar og úrskurð­ar­nefndar fjarf­skipta­mála, en að GR hafi haldið áfram upp­teknum hætti eftir þá nið­ur­stöð­u. „Þessi frá­gangur GR leiðir til þess að eng­inn þjón­ustu­veit­andi í inn­við­um, annar en GR, kemst að inn­an­hússlögnum í við­kom­andi hús­um,“ segir í bréfi SI til borg­ar­stjóra, og er þetta sagt hamla sam­keppni og koma í veg fyrir að aðrir þjón­ustu­veit­endur á þessu sviði, kom­ist inn á mark­að­inn.

Orri víkur einnig að þessu í bréfi sínu til Póst og fjar. og segir að Gagna­veitan neiti að veita „passífan“ aðgang að innviðum sínum, þvert á það sem Evr­ópu­sam­bandið og Alþingi vilji ýta undir, til að auka sam­keppni, hag­kvæmni og fjöl­breytni. 

Segir SI ganga erinda

Í svar­bréfi sem for­stjóri Gagna­veit­unnar, Erling Freyr Guð­munds­son, sendi til Sig­urðar Hann­es­son­ar, fram­kvæmda­stjóra SI, borg­ar­stjóra, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­is­ins, Póst- og fjar­skipta­stofn­un­ar, Voda­fo­ne, Sím­ans og Sam­taka upp­lýs­inga­tækni­fyr­ir­tækja, er látið að því liggja að SI séu með bréfi sínu að ganga erinda ein­stakra fyr­ir­tækja á mark­aðn­um.

Hann segir auk þess Ljós­leiðar­ann, á vegum Gagna­veit­unnar, hafa verið í mik­illi sam­vinnu við fjöl­marga aðila við að styrkja fjar­skipta­kerfi lands­ins og inn­viði á sviði net­þjón­ustu. Þar á meðal séu raf­verk­takar og aðrir sem sinni iðn­aði af ýmsum toga. Hann neitar með öllu að fyr­ir­tækið sé að brjóta af sér, og segir að í bréfi SI sé ekki farið rétt með stað­reyndir. 

Beinir spjótum að fjármögnun

Í bréfi sínu beinir Orri spjót­unum að fjár­mögnun Gagna­veit­unnar og segir hana ekki vera í sam­ræmi við þá leið­sögn hafi komi fram þegar Póst og fjar. sam­þykkti hluta­fjár­aukn­ingu OR í Gagna­veit­unni, árið 2014. Þá hafi komið fram, að eftir hana ætti fjár­hags­legur aðskiln­aður að vera orð­inn eðli­legur, miðað við sam­keppn­is­for­sendur á mark­aði. Þetta segir Orri ekki vera stöð­una núna, og tölur úr rekstri Gagna­veit­unnar sýni þetta. Vaxandi rekstrar- og fjár­fest­inga­kosn­aður sé einnig umhugs­un­ar­efni í þessu sam­hengi, segir Orri í bréf­inu.

Samkvæmt árs­reikn­ingi Gagna­veit­unnar fyrir árið 2016 var tap af rekstri félags­ins 172 millj­ónir króna. Eigið fé var 7,5 millj­arður króna og eig­in­fjár­hlut­fallið tæp­lega 50 pró­sent. Starfs­gildi hjá félag­inu voru rúm­lega 50, að því er fram kemur í árs­reikn­ingnum.

Hagnaður af rekstri Símans á síð­asta ári var 2,7 millj­arðar króna. Eigið fé félags­ins nemur nú 35,9 millj­örðum króna og heild­ar­eignir ríf­lega 60 millj­örðum. Félagið er skráð í kaup­höll Íslands og hefur mark­aðsvirði félags­ins auk­ist um 34,8 pró­sent á árinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár