Telja háttsemi Gagnaveitunnar samkeppnishamlandi

Samtök iðn­að­ar­ins sendu erindi til borg­ar­stjóra vegna starf­semi Gagna­veit­unnar, sem er dótt­ur­fé­lag Orku­veitu Reykja­víkur. For­stjóri GR segir bréfið „sér­kenni­legt“ og í því sé ekki farið rétt með stað­reyndir.

Samtök iðn­að­ar­ins (SI) sendu Degi B. Egg­erts­syni borg­ar­stjóra bréf 11. októ­ber síð­ast­lið­inn, þar sem þau lýsa yfir áhyggjum sínum vegna hátt­semi Gagna­veitu Reykja­víkur (GR), dótt­ur­fé­lags Orku­veitu Reykja­víkur (OR), og segja hana sam­keppn­is­hamlandi. OR er 95 pró­sent í eigu Reykja­vík­ur­borgar.

Í bréf­inu er sér­stak­lega vikið að því að GR skuli bræð­i­sjóða fjar­skipta­lagnir innan húsa við ljós­leið­ar­a­taug. Er þetta sagt fara gegn úrskurðum Póst- og fjar­skipta­stofn­unar og úrskurð­ar­nefndar fjarf­skipta­mála, en að GR hafi haldið áfram upp­teknum hætti eftir þá nið­ur­stöðu. „Þessi frá­gangur GR leiðir til þess að eng­inn þjón­ustu­veit­andi í innviðum, annar en GR, kemst að inn­an­hússlögnum í við­kom­andi húsum,“ segir í bréfi SI til borg­ar­stjóra, og er þetta sagt hamla sam­keppni og koma í veg fyrir að aðrir þjón­ustu­veit­endur á þessu sviði, kom­ist inn á mark­að­inn.

Í svar­bréfi sem for­stjóri GR, Erling Freyr Guð­munds­son, sendi í gær til Sigurðar Hann­es­sonar, fram­kvæmda­stjóra SI, borg­ar­stjóra, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­is­ins, Póst- og fjar­skipta­stofn­unar, Vodafone, Símans og Samtaka upp­lýs­inga­tækni­fyr­ir­tækja, er látið að því liggja að SI séu með bréfi sínu að ganga erinda ein­stakra fyr­ir­tækja á mark­aðnum. Hann nefnir ekki á nafn hvaða fyr­ir­tæki það er, en segir það lík­lega vera Símann/Mílu, sem sé í sam­keppni við Ljós­leiðar­ann á vegum GR og mark­aðs­ráð­andi.

Erling segir það vekja sér­staka athygli að bréfið sé sent til stjórn­valds sem hefur ekki beint með málið að gera. Þá er það sagt „sér­kenni­legt“ og í því sé ekki rétt farið með stað­reyndir mála. Hann segir Ljós­leiðar­ann, á vegum GR, hafa verið í mik­illi sam­vinnu við fjöl­marga aðila við að styrkja fjar­skipta­kerfi lands­ins og inn­viði á sviði net­þjón­ustu. Þar á meðal séu raf­verk­takar og aðrir sem sinni iðn­aði af ýmsum toga.

Í nið­ur­lagi bréfs­ins segir hann að starfs­fólk GR sé til­búið að ræða við SI um það sem snýr að starf­semi félags­ins, og ekki síður að hlusta eftir skýr­ingum SI á þessu „sér­kenni­lega“ bréfi.

Skoða má bréfa­skipti SI og for­stjóra GR hér með­fylgj­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár