Salvator Mundi seld á 50 milljarða króna

Málverk af kristi eftir Leonard Da Vinci var í gær selt á upp­boði fyrir met­upp­hæð.

Teikn­ingin Salvator Mundi eftir Leonardo da Vinci, sem sagt er vera af kristi, var í gær selt fyrir 450 millj­ónir Banda­ríkja­dala á upp­boði, eða sem nemur um 50 millj­örðum króna. Þetta er hæsta upp­hæð sem greidd hefur verið fyrir lista­verk á upp­boði í sög­unni.

Uppboðið fór fram á vegum Christie's upp­boðs­húss­ins í New York og var kaup­and­inn ekki gef­inn upp, eftir að loka­boðið lá fyrir.

Teikn­ing­inn er yfir 500 ára gömul en Leonardo da Vinci lést árið 1519. Talið er að innan við 20 teikn­ingar séu til eftir da Vinci og er Salvator Mundi talin ein sú þekktasta.

Sér­fræð­ingar sembreska rík­is­út­varpið hefur rætt við efast um að teikn­ingin sé ekta. Engu að síður hélt Christie's því fram að myndin væri ekta og end­ur­heimt hennar ein merki­leg­asta fundur í lista­sögu 20. ald­ar­innar.

Rúss­neski millj­arða­mær­ing­ur­inn Dmitry E. Rybolov­lev var sá sem seldi verkið, en hann er sagður hafa keypt verkið í maí 2013.

Upphæðin sem fékkst fyrir teikn­ing­una er sú hæsta í sögu lista­ver­ka­upp­boða, en fyrra metið átt verk eftir Picasso. Það fór á 160 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða um 18 millj­arða króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

list

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár