Paradísarskjölin skekja heim hinna ríku

Nýr gagna­leki hefur nú átt sér stað en 13.4 millj­ónum skjala hefur verið lekið og 96 frétta­miðlar í 67 löndum fjalla nú um þau. Eng­lands­drottn­ing er meðal þeirra sem eru í skjöl­unum.

Millj­ónir punda úr einka­búi Eng­lands­drottn­ingar hafa verið settar á reikn­ing á Cayman-eyjum sem er hluti af aflandseigna­safni sem aldrei hefur verið greint frá fyrr, sam­kvæmt skjölum sem litu dags­ins ljós í rann­sókn á skattaparadísum utan við land­stein­ana.

Þetta kemur fram í frétt The Guardian.

Skrár úr umfangs­miklum leka sýna í fyrsta sinn hvernig drottn­ingin, fyrir milli­göngu her­toga­dæm­is­ins af Lancaster, hefur átt og á enn fjár­fest­ingar í gegnum sjóði sem hafa sett fé í ýmiss konar fyr­ir­tæki, þar á meðal keðj­una Thres­hers og sölu­fyr­ir­tækið BrightHouse, sem hefur verið gagn­rýnt fyrir að færa sér í nyt neyð þús­unda fátækra fjöl­skyldna og ber­skjald­aðs fólks.

Her­toga­dæmið við­ur­kenndi að hafa ekki haft neina hug­mynd um 12 ára langa fjár­fest­ingu sína í BrightHouse þar til blaðið The Guardian kom að máli við það ásamt öðrum sam­starfs­að­ilum í alþjóð­legu verk­efni sem nefn­ist Para­dísar-skjölin.

Ísland smátt í Paradísarskjölum

Reykja­vik Media fjallar um lek­ann og segir í frétt mið­ils­ins að nöfn nokk­urra tuga íslend­inga sé að finna í þeim 13.4 millj­ónum skjala sem 96 frétta­miðlar í 67 löndum byrja að fjalla um í kvöld. Para­dís­ar­skjölin eins og þau eru kölluð veiti inn­sýn í skattaparadísir víða um heim um það hvernig efnað fólk og alþjóð­leg stór­fyr­ir­tæki nýta sér glufur í kerf­inu til borga minni skatta eða fela eignir sínar. „Skjölin koma innan úr lög­fræði­stof­unni Appleby á Bermúda eyjum og innan úr Asiaciti sjóðnum í Singapúr. Í skjöl­unum eru einnig upp­lýs­ingar úr 19 fyr­ir­tækja­skrám á þekktum lág­skatta­svæðum eins og Möltu, Bermúda og Cayman eyjum. Það var þýska blaðið Süddeutsche Zeitung sem komst yfir gögnin og deildi með alþjóð­legum sam­tökum rann­sókn­ar­blaða­manna, ICIJ, Reykja­vik Media og 96 fjöl­miðlum í 67 löndum,“ segir í frétt RM.

Einnig segir að ólíkt Panama­skjöl­unum sé Ísland smátt í þessum gagna­leka. Nöfn Íslend­inga sé að finna í gögn­unum frá Appleby og einnig í fyr­ir­tækja­skrá Möltu. Ekki hafi fund­ist nöfn íslenskra stjórn­mála­manna í gögn­unum en þar sé hins­vegar að finna nöfn 126 stjórn­mála­manna frá 47 löndum.

Af norð­ur­lönd­unum sé Ísland með fæstu nöfnin í gögn­unum en Norðmenn flest eða um eitt þús­und. Frétta­skýr­inga­þátt­ur­inn Kveikur á RÚV mun fjalla um nokkur íslensk nöfn sem fund­ust í gögn­unum næst­kom­andi þriðju­dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Paradísarskjöl

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár