Veittu styrki til rannsóknarblaðamennsku

Samtök erlendra frétta­manna í Hollywood til­kynntu á Golden Globe verð­launa­há­tíð­inni í gær að þau myndu styrkja tvö sam­tök sem stuðla að fram­gangi rann­sókn­ar­blaða­mennsku um eina milljón dali hvort.

Meher Tatna, forseti Samtaka erlendra fréttamanna í Hollywood tilkynnti um veitingu styrkjanna á Golden Globe hátíðinni í gær
Meher Tatna, for­seti Samtaka erlendra frétta­manna í Hollywood til­kynnti um veit­ingu styrkj­anna á Golden Globe hátíð­inni í gær Mynd: EPA

Samtök erlendra frétta­manna í Hollywood (Hollywood Foreign Press Association) veitti í gær tveimur sam­tökum sem stuðla að fram­gangi rann­sókn­ar­blaða­mennsku styrki upp á eina milljón dali, um 104 millj­ónir króna, hvort. Samtökin eru alþjóð­leg sam­tök rann­sókn­ar­blaða­manna (ICIJ) og nefnd um vernd blaða­manna (CPJ). Tilkynnt var um styrk­veit­ing­una á Golden Globe hát­ið­inni í gær­kvöldi, en sam­tök erlendra frétta­manna í Hollywood standa að henni.

ICIJ hefur borið ábyrgð á vinnslu rann­sókn­ar­blaða­manna á fréttum úr stórum gagna­lekum á und­an­förnum árum. Við þá vinnu hafa sam­tökin leitt saman blaða­menn víðs vegar að úr heim­inum. Þekkt­ustu gagna­lek­arnir eru ann­ars vegar Panama­skjölin og hins vegar Para­dís­ar­skjölin, þar sem upp­lýs­ingar um fjár­muni fjöl­margra ein­stak­linga í skatta­skjólum var að finna, m.a. Íslend­inga. Eitt af mark­miðum ICIJ er að stuðla að sam­eig­in­legri ábyrgð fjöl­miðla­manna um allan og verja hvern annan í vinnu sinni við að afhjúpa sann­leik­ann.

Aldrei jafn mikilvægt og nú, að styðja við rannsóknarblaðamennsku

Gerard Ryle, for­stjóri ICIJ segir í yfir­lýs­ingu að aldrei hafi verið jafn mik­il­vægt og nú, að afhjúpa sann­leik­ann með því að styðja við rann­sókn­ar­blaða­mennsku. Hann sé ein­stak­lega þakk­látur fyrir stuðn­ing­inn og það mik­il­væga starf sem CPJ, sem einnig fékk styrk, gegnir við að standa vörð um rann­sókn­ar­blaða­mennsku.

Í til­kynn­ing­unni segir einnig að sann­leik­ur­inn eigi undir högg að sækja, og að stað­reyndin sé sú að á síð­ustu árum hafa fjöl­miðla­menn hvað eftir annað hætt lífi sínu við að reyna að upp­ljóstra sann­leik­anum. Með því að standa saman geti þau náð árangri sem eng­inn gæti náð einn og sér.

Umfang upp­lýs­inga um Íslend­inga var heldur lítið í Para­dís­ar­skjöl­unum, ólíkt því sem var í Panama­skjöl­unum.

Eins og kunn­ugt er var fjöld­inn allur af Íslend­ingum í Panama­skjöl­unum. Á meðal þeirra sem voru þar til umfjöll­unar var Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, sem sagði af sér eftir að kom í ljós að hann og kona hans, Anna Sig­ur­laug Páls­dóttir, áttu aflands­fé­lagið Wintris sem í voru eignir upp á annan millj­arð króna. Auk þess kom í ljós að Wintris var kröfu­hafi í bú föllnu íslensku bank­anna og hafði ekki greitt skatta hér­lendis í sam­ræmi við lög og reglur. Þar var einnig fjallað um Bjarna Bene­dikts­son, þáver­andi - og núver­andi fjár­mála­ráð­herra, en hann átti hlut í aflands­fé­lagi sem skráð var á Seychelles-Eyjum. Auk þess var að finna í gögn­unum mikið magn upp­lýs­inga um Íslend­inga sem eru fyr­ir­ferða­miklir í við­skipta­líf­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.
FréttirPanamaskjölin

Fengu fjöl­skyldu­mál­verk í hend­urnar eftir umfjöllun Stund­ar­innar

Skoskar mæðgur sem komu til Íslands í byrjun árs í leit að svörum við spurn­ingum sem leitað hafa á fjöl­skyldu þeirra eru þakk­látar Íslend­ingi sem sendi þeim mál­verk sem var í eigu ömmu þeirra og langömmu á Íslandi. Gunnar Eggert Guð­munds­son taldi rétt­ast að fjöl­skyldan fengi mál­verkið þar sem þau fengu lítið sem ekk­ert úr búi Áslaugar.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár