Um helmingur fyrirtækja í nýsköpun

Samkvæmt mæl­ingum Hagstofu Íslands er mikil nýsköpun stund­uðí fyr­ir­tækjum á Íslandi.

Á árunum 2014–2016 stund­aði helm­ingur fyr­ir­tækja á Íslandi með 10 starfs­menn eða fleiri nýsköpun þar sem nýjar vörur eða þjón­usta var sett á markað eða nýir verk­ferlar inn­leiddir.

Þetta er svipuð nið­ur­staða og í fyrstu mæl­ingu Hag­stof­unnar árin 2012–2014, en greint var frá nið­ur­stöð­unum á vef Hag­stof­unnar í gær.

Þriðj­ungur fyr­ir­tækja setti nýja vöru eða þjón­ustu á markað eða end­ur­bætti eldri vöru eða þjón­ustu. „Gat það þó verið nýj­ung hjá fyr­ir­tæk­inu sjálfu án þess að vera nýj­ung á mark­aðnum, en 25% fyr­ir­tækja settu á markað vörur eða þjón­ustu sem voru nýj­ungar á mark­aði. Jafn­framt inn­leiddi þriðj­ungur fyr­ir­tækja nýja verk­ferla á tíma­bil­inu. Hjá 31% fyr­ir­tækja var ein­hver nýsköp­un­ar­starf­semi sem leiddi ekki til þess að vörur eða þjón­usta var sett á markað eða verk­ferlar inn­leiddir á tíma­bil­inu,“ segir í umfjöllun Hag­stof­unnar um þess mál.

Auk nýsköp­unar vöru, þjón­ustu og verk­ferla gátu fyr­ir­tæki hafa inn­leitt nýtt starf­skipu­lag eða nýj­ungar í mark­aðs­setn­ingu. Um 31 pró­sent fyr­ir­tækja inn­leiddu þannig nýtt starf­skipu­lag á tíma­bil­inu, en 27 pró­sent inn­leiddu nýj­ungar í mark­aðs­setn­ingu.

Ef þess konar nýsköpun er talin með sem nýsköpun almennt, auk nýsköp­unar vöru, þjón­ustu og verk­ferla, voru 55 pró­sent fyr­ir­tækja virk í nýsköpun á tíma­bil­inu í stað 50 pró­sent. Var það hlut­fall 59% á árunum 2012–2014 þar sem nýsköpun skipu­lags og mark­aðs­setn­ingar var algeng­ari þá.

Í nýjastasjón­varps­þætti Kjarnans á Hring­braut er fjallað tölu­vert um nýsköpun og mennta­mál, ekki síst í sam­hengi við miklar breyt­ingar sem eru að verða í atvinnu­lífi vegna tækni­fram­fara. Ragn­heiður M. Magn­ús­dóttir, stjórn­andi hjá Marel, er gestur þátt­ar­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Atvinnulíf

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár