Setjum ekki mann á tunglið án þess að vera með markmið

Hvar stendur Ísland í mennta­málum? Hvað þarf að bæta og hvað kostar sú bæt­ing? Er íslenskt mennta­kerfi í stakk búið til að mæta þeim breyt­ingum sem eru framundan vegna fjórðu iðn­bylt­ing­ar­innar? Þessi mál eru á dag­skrá í Kjarn­anum á Hring­braut klukkan 21.

Menntun og fjórða iðn­bylt­ingin sem við erum að lifa eru við­fang næsta þáttar Kjarnans á Hring­braut, sem sýndur verður klukkan 21 í kvöld. Gestir þátt­ar­ins að þessu sinni eru Ragn­heiður H. Magn­ús­dóttir, stjórn­andi hjá Marel og for­maður Hug­verka­ráðs Samtaka iðn­að­ar­ins og ón Atli Bene­dikts­son, rektor Háskóla Íslands.

Ragn­heiður kallar þar eftir því að Ísland fari að setja sér ein­hvers­konar mark­mið. Mikil hræðsla sé við það. Eitt slíkt mark­mið gæti til að mynda verið það að Íslandi ætli sér að verða best í heimi í gervi­greind árið 2025. „Þetta eru kannski draum­órar, en við verðum að fá að dreyma. Ef við erum með setn­ingar eins og þessa[...]Þá er svo auð­velt fyrir atvinnu­lífið, mennta­kerfið og stjórn­völd að styðja við svona setn­ingar.

[adspot]Við verðum að vera aðeins hug­rakk­ari að koma fram með svona setn­ingar. Þær mega vera margar, en að koma fram með setn­ingar sem við getum hald­ist í hendur við að ná. Við setjum ekki mann á tunglið nema að við séum með ein­hvers­konar mark­mið.“

Jón Atli heldur því meðal ann­ars fram að öfl­ugur háskóli sé byggða­mál. Að hafa öfl­ugan háskóla á Íslandi tryggir að fólk vill búa hér til fram­tíðar.“ Fjöregg hvers sam­fé­lags séu rann­sóknir, menntun, nýsköpun og það að þjálfa nem­endur í þessum þáttum til að verða und­ir­staða atvinnu­lífs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár