Löggjöf um dýrasjúkdóma og dýralækna endurskoðuð

Mark­miðið með end­ur­skoðun lög­gjafar um dýra­sjúk­dóma og dýra­lækna er að búa til ein heild­ar­lög um heil­brigði dýra sem hefði þann til­gang að bæta almennt heil­brigði búfjár og gælu­dýra hvað alla sjúk­dóma varðar.

Tryggja verður skil­virkni í til­kynn­ingum og við­brögðum við sjúk­dómum, van­höldum og slysum á dýrum. Þetta kemur fram í skýrslu starfs­hóps um end­ur­skoðun lög­gjafar um dýra­sjúk­dóma og dýra­lækna sem skip­aður var í maí í fyrra.

Starfs­hóp­ur­inn leggur til að rekin verði öflug stofnun sem sinnir rann­sóknum, ráð­gjöf og áhættu­mati vegna dýra­sjúk­dóma. Þá er lagt til að stofnað verði sér­stakt ráð sem fari með leyf­is­veit­ingar, rétt­inda­mál og end­ur­menntun dýra­lækna og heil­brigð­is­starfs­menn dýra, og fjalli um kærur, álita­mál og fleira.

Lagt er til að í nýjum lögum um heil­brigði dýra sé til­gangi núver­andi laga um dýra­sjúk­dóma og laga um inn­flutn­ing dýra slegið saman. Þannig yrðu til heild­stæð og sam­ræmd lög um heil­brigði dýra, sem hafa þann til­gang að vernda og bæta almennt heil­brigði allra dýra hér á landi, og verj­ast komu nýrra smitefna til lands­ins, hindra að þau ber­ist í dýr og breið­ist út. Gert er ráð fyrir að áfram verði sér­stök lög um dýra­lækna og heil­brigð­is­þjón­ustu við dýr.

Skýrslan kemur til með að nýt­ast vel við vinnslu frum­varpa en vinna við þau mun hefj­ast fljót­lega, sam­kvæmt frétta­til­kynn­ingu frá frá atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu. Skýrslan er lögð fram til kynn­ingar og er öllum frjálst að koma með athuga­semdir eða ábend­ingar við efni hennar.

Nauðsynlegt að endurskoða lögin

Í skýrsl­unni kemur fram að á und­an­förnum árum hafi verið rætt um að nauð­syn­legt væri að end­ur­skoða helstu lög sem varða dýra­heil­brigði og dýra­sjúk­dóma. Í des­em­ber 2015 lagði yfir­dýra­læknir til við sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra að skip­aður yrði starfs­hópur til að end­ur­skoða lögin. Sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra skip­aði í maí 2016 starfs­hóp­inn sem vann skýrsl­una.

Samkvæmt skip­un­ar­bréfi starfs­hóps­ins er mark­mið end­ur­skoð­un­ar­innar að búa til heild­stæð og sam­ræmd lög um heil­brigði dýra, sem hafi þann til­gang að bæta almennt heil­brigði dýra hér á landi hvað alla sjúk­dóma varðar, en ekki ein­göngu smit­sjúk­dóma.

Endurskoða þarf reglugerðir í framhaldinu

Jafn­framt er mark­miðið að verj­ast komu nýrra smitefna til lands­ins, hindra að þau ber­ist í dýr og breið­ist út. Skoða á hvort end­ur­skoðuð lög um dýra­lækna og heil­brigð­is­þjón­ustu við dýr eigi aðeins að taka á rétt­indum og skyldum starfs­stétta sem heyra undir lögin, m.a. hvort ákvæði þurfi að vera um sér­stakt lög­skipað ráð sem fjalli um störf dýra­lækna auk skil­grein­inga á hlut­verki yfir­dýra­læknis, sér­greina-, hér­aðs- og eft­ir­lits­dýra­lækna. Fjöl­margar reglu­gerðir hafa verið settar með stoð í umræddum lögum og sumar þeirra þarf einnig að end­ur­skoða í kjöl­far end­ur­skoð­unar lag­anna.

Samkvæmt skýrslu­höf­undum eru gömlu lögin að stofni til orðin 20 til 25 ára gömul og tals­verðar breyt­ingar hafa verið gerðar á þeim og sum ákvæði þeirra orðin úrelt. Þá hefur umtals­verð þróun átt sér stað á þeim sviðum sem lögin fjalla um.

Mikið í húfi

Í skýrsl­unni segir að þró­unin hér á landi líkt og í nágranna­löndum sé í átt til stærri og færri búa hvar sem litið er. Mikið sé í húfi ef upp kemur alvar­legur smit­sjúk­dómur, sem nauð­syn­legt yrði talið að bregð­ast við með nið­ur­skurði og greiðslu bóta, bæði hvað varðar fram­leiðslu og fjár­hags­legar afleið­ingar þar með talið útgjöld rík­is­sjóðs.

Bent er á að fjöldi gælu­dýra og fjöl­breyti­leiki þeirra hafi auk­ist mikið á und­an­förnum árum og þjón­usta við þau gjör­breyst.

Breyt­ingar hafa verið gerðar á þjón­ustu dýra­lækna við dýr og dýra­eig­endur. Hlutverk opin­berra dýra­lækna hefur tekið breyt­ingum og sjálf­stætt starf­andi dýra­læknum hefur fjölgað. Embætti yfir­dýra­læknis var lagt niður og það sam­einað öðrum stofn­unum, fyrst í Land­bún­að­ar­stofnun og síðar í Mat­væla­stofnun. Opin­berir dýra­læknar eru nú ein­göngu í stjórn­sýslu- og eft­ir­lits­störfum og hlut­verk þeirra hvað varðar sam­skipti við erlendar eft­ir­lits­stofn­anir í tengslum við land­bún­aðar- og sjáv­ar­af­urðir er orðið æ þýð­ing­ar­meira.

Löggjöf annarra landa skoðuð

Aðal­mark­miðið er að sett verði lög í þessum mála­flokki sem taka mið af því besta sem er að finna í laga­setn­ingum ann­arra landa og tryggja eins og fram­ast er unnt góða heil­brigð­is­stöðu íslenskra dýra og bæta hana, eftir því sem kostur er.

Í skýrsl­unni kemur jafn­framt fram að við vinnu sína hafi starfs­hóp­ur­inn haft að leið­ar­ljósi að nýta þau ákvæði sem vel hafa reynst í núver­andi lögum, en jafn­framt gera til­lögur um nýmæli sem upp­fylltu ofan­greind aðal­mark­mið og sem nýt­ast mættu ráðu­neyt­inu við gerð frum­varpa til nýrra laga. Einnig hafi starfs­hóp­ur­inn kynnt sér lög­gjöf helstu nágranna­landa á þessu sviði og skýrslur sem varða mála­flokk­inn og unnar hafa verið fyrir atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dýravelferð

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár