Katrín: Að stjórna landinu af skynsemi og yfirvegun

Formaður Vinstri grænna segir að almenn­ingur kalli eftir heil­indum, og yfir­vegun í stjórn­málin.

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, sagði í ræðu sinni á lands­fundi flokks­ins, sem hófst í dag, að almenn­ingur kall­aði eftir heil­indum í stjórn­málum. Hún hvatti flokks­menn til að sýna sam­stöðu fram að kosn­ingum, og kynna stefnu flokks­ins með sam­tölum við fólk. „Kæru félagar, það eru breyttir tímar - og breyttir tímar kalla á breytta póli­tík. Lyk­ill­inn að póli­tískum stöð­ug­leika á Íslandi nútím­ans er sá að breyta vinnu­brögðum að koma hreint fram; að vanda stjórn­sýslu; að hlusta á önnur sjón­ar­mið af virð­ingu. Og umfram allt: að stjórna land­inu af skyn­semi og yfir­vegun. Þetta er ákall almenn­ings. Og þetta er ákall sem við Vinstri-græn ætlum að svara. Við bjóðum betri for­ystu fyrir Ísland, og allt aðrar áherslur en við höfum haft und­an­farin fjögur ár, for­ystu sem gerir betur og getur komið á alvöru póli­tískum stöð­ug­leika. Ekki stöð­ug­leika sem byggir á því að festa rang­læti í sess heldur stöð­ug­leika sem bygg­ist á sam­fé­lags­legri sátt. Félags­legum stöð­ug­leika,“ sagði Katrín í ræðu sinni.

Hugmyndasnauðir hægri menn

Katrín gagn­rýndi enn fremur Sjálf­stæð­is­flokk­inn, og sagði hug­mynda­snauða hægri menn halda uppi hræðslu­á­róðri sem engin inni­stæða væri fyrir. „Og reyndar eru þeir þegar byrj­aðir með hræðslu­á­róður um skatta­hækk­anir vinstri­manna. Sjálfur skatta­flokk­ur­inn. Því hvað hefur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn gert annað en að hækka skatta á almenn­ing? Eða var það ekki Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn í félagi við Framsókn sem hækk­aði virð­is­auka­skatt á mat­væli á síð­asta kjör­tíma­bili? Er það ekki Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og fylgitungl hans sem boða nú veggjöld í massa­vís? Er það ekki Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sem ætl­aði að hækka virð­is­auka­skatt á ferða­þjón­ustu? Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn getur lítið sagt um aðra. Hann er skatta­flokkur,“ sagði Katrín.

Í ræð­unni tal­aði hún fyrir mik­il­vægi félags­legra inn­viða, upp­bygg­ingu mennta- og heil­brigð­is­kerf­is­ins, og sagðiað Vinstri græn ætl­uðu sér ekki að hækka skatta á almenn­ing heldur reka sann­gjarna skatta­stefnu. „Allir tekju­hópar - nema þeir allra rík­ustu - borga hærra hlut­fall af tekjum sínum í skatt nú en fyrir 4 árum. Og þetta er sama þróun og við sáum á árunum 1991 til 2009,“ sagði Katrín.

Ræðan í heild sinni, fer hér á eftir.

„Kæru félagar, góðir gestir.

Í upp­hafi þessa fundar vil ég fagna því að félagar okkar í ICAN, sam­tökum sem berj­ast gegn kjarn­orku­vopnavá, hlutu Frið­ar­verð­laun Nóbels í morgun, en við í Vinstri-grænum höfum verið óþreyt­andi að berj­ast fyrir því að Ísland taki afger­andi afstöðu gegn kjarn­orku­vopna­vánni á alþjóða­vett­vangi. Þessi verð­laun hleypa nýjum krafti í okkar bar­áttu hér heima.


En kæru félagar.

Í morgun heim­sótti ég þann félaga sem sam­kvæmt félaga­tal­inu er elsti félagi hreyf­ing­ar­innar okkar, Sigrúnu Pét­urs­dóttur, sem er 97 ára að aldri. Sigrún missti föður sinn, verka­lýðs­leið­toga á Sauð­ár­króki, tíu ára gömul og átti heilsu­veila móður. Hún fékk aldrei að mennta sig en vann alla ævi frá 12 ára aldri. Hún þurfti að hætta störfum um sjö­tugt og hefði gjarnan viljað vinna lengur, eins og eldri borg­arar sam­tím­ans kalla einmitt eftir. Enda fór hún í áhuga­leik­fé­lag og lék síð­ast í verki eftir Dario Fo, þá níræð. Hún biður fyrir bestu kveðjur til fund­ar­ins.

Það er þessi saga sem er svo mik­il­væg. Sagan sem eldri kyn­slóðir á Íslandi skópu. Vel­ferð­ar­sam­fé­lagið sem var byggt upp fyrir bar­áttu harð­dug­legra karla og kvenna sem börð­ust fyrir auknum rétt­indum á vinnu­mark­aði, betri kjörum og bættu hús­næði. Upp­bygg­ing hér­aðs­skóla, mennta­skóla og síðar fjöl­braut­ar­skóla. Upp­bygg­ing Háskóla Íslands sem lengi vel var hýstur í þing­hús­inu. Baráttan fyrir almennu heil­brigð­is­kerfi. Land­spít­al­inn okkar sem var byggður af stór­hug vegna bar­áttu kvenna en þar var fyrsti sjúk­ling­ur­inn lagður inn 1930. Heilsu­vernd­ar­stöð Reykja­víkur sem vígð var 1957, ein­stök bygg­ing sem bar vitni um hug­sjónir á tímum þar sem Íslend­ingar voru mun fátæk­ari þjóð en nú um mundir. Sú hug­sjón snr­ust um að efla heilsu, koma í veg fyrir sjúk­dóma og slys, efla mæðra­vernd og ung­barna­eft­ir­lit. Og fyrsti yfir­læknir heilsu­verndar barna var konan sem ég er nefnd eftir, Katrín Thorodd­sen, en hún var ekki síst þekkt fyrir að tala beint við börnin en ekki við for­eld­rana sem þótti nýstár­legt á þeim tíma.

Á tímum í Íslands­sög­unni þar sem efnin voru minni voru hug­sjón­irnar stórar. Og það sem ég heyri, og það sem við öll heyrum, er að fólkið í land­inu furðar sig á þeirri þver­sögn sem blasir við að á tímum þar sem allir efna­hags­legir mæli­kvarðar vísa í eina átt virð­ist samt ekki hægt að ráð­ast í þá nauð­syn­legu upp­bygg­ingu sam­fé­lags­stofn­ana sem er nauð­syn­leg. Það er látið eins og við höfum ekki efni á góðri heil­brigð­is­þjón­ustu, góðum skólum, góðu vega­kerfi. Við segjum: Hér þarf stefnu­breyt­ingu. Nú þarf að setja þarfir almenn­ings í for­gang og það er það sem við ætlum að gera fáum við til þess umboð í kom­andi kosn­ingum.

Kæru félagar.

Við stöndum hér á þessum lands­fundi með óvæntar kosn­ingar í aug­sýn eftir ein­ungis þrjár vikur. Og staðan sem blasir við er þessi:

Síðasta rík­is­stjórn hrökkl­að­ist frá og við heyrum skýra kröfu frá fólk­inu í land­inu sem vill breytta tíma, nýja rík­is­stjórn sem setur hags­muni almenn­ings í for­gang.

Ísland þarf trausta rík­is­stjórn - sem vill gera betur fyrir fólkið í land­inu

og springur ekki vegna van­trausts og leynd­ar­hyggju löngu áður en kjör­tíma­bilið klár­ast.

Gerum betur.

Gerum betur er slag­orð okkar Vinstri-grænna í þessum kosn­ingum;

því það þarf að gera svo miklu betur á svo mörgum sviðum

og við treystum okkur til þess.

Ef fólkið í land­inu vill breyttar áherslur í stjórn lands­ins þá segjum við: Gjörið svo vel, skoðið stefnu­skrá okkar og skynjið kraft­inn sem býr í okkur.

Þess vegna göngum við nú til fundar við fólkið í land­inu

og óskum eftir umboði til að mynda góða og trausta rík­is­stjórn.

Við skulum vera bar­átt­uglöð og bjart­sýn;

ég hlakka til að vinna með ykkur og ég hlakka svo sann­ar­lega til að láta verkin tala eftir kosn­ingar.

Þó það sé vissu­lega vont að þurfa að halda kosn­ingar ár eftir ár

þegar rík­is­stjórnir hafa sprungið vegna spill­ing­ar­mála og van­trausts,

þá er nú samt gott að Íslend­ingar skuli fá nýtt tæki­færi til að ganga til kosn­inga núna þann, 28. októ­ber;

það er gott - því það er löngu kom­inn tími á breytta stefnu og betri stjórn;

rík­is­stjórn sem nýtir tæki­færin og sér mögu­leik­ana í fram­tíð­inni.

Kæru félagar,

nú er mikið talað um að það þurfi stöð­ug­leika í stjórn­ar­farið í land­inu.

Og það er alveg rétt.

En það er nú samt þannig að þeir stjórn­mála­menn sem tala hvað hæst og mest um stöð­ug­leika

- eru einmitt þeir sem síst hafa efni á því.

Eða hvað þykj­ast þing­menn og ráð­herrar Sjálf­stæð­is­flokks­ins

geta sagt kjós­endum um póli­tískan stöð­ug­leika?

Þetta er flokk­ur­inn sem leiddi hrun­stjórn­ina, sat í Panama­stjórn­inni

og leiddi nú síð­ast þá stjórn sem starf­aði svo stutt að ekk­ert nafn hafði fund­ist á hana.

Hver er lyk­ill­inn að póli­tískum stöð­ug­leika?

Ef þing­menn og ráð­herrar Sjálf­stæð­is­flokks­ins væru spurðir væri svarið lík­lega:

„stórir og sterkir stjórn­mála­flokkar“ - og já, þeir verða víst helst að vera gamlir líka. Og íhalds­samir.

Óstöð­ug­leik­inn er alltaf ein­hverjum öðrum að kenna..

Hvernig væri að líta í eigin barm?

Stað­reyndin er sú að póli­tískur stöð­ug­leiki á Íslandi nútím­ans næst ekki með gam­al­dags frekjupóli­tík;

póli­tík þar sem „stórir og sterkir flokkar“ berja öll mál í gegn með offorsi og yfir­gangi án þess að hlusta á gagn­rýni eða aðrar raddir

og helst með minnsta mögu­lega meiri­hluta.

Þetta er vond og úrelt hug­mynd og auð­vitað springur slík rík­is­stjórn!

Kæru félagar,

það eru breyttir tímar - og breyttir tímar kalla á breytta póli­tík.

Lyk­ill­inn að póli­tískum stöð­ug­leika á Íslandi nútím­ans er sá að breyta vinnu­brögðum að koma hreint fram; að vanda stjórn­sýslu; að hlusta á önnur sjón­ar­mið af virð­ingu.

Og umfram allt: að stjórna land­inu af skyn­semi og yfir­vegun.

Þetta er ákall almenn­ings.

Og þetta er ákall sem við Vinstri-græn ætlum að svara.

Við bjóðum betri for­ystu fyrir Ísland,

og allt aðrar áherslur en við höfum haft und­an­farin fjögur ár,

for­ystu sem gerir betur og getur komið á alvöru póli­tískum stöð­ug­leika.

Ekki stöð­ug­leika sem byggir á því að festa rang­læti í sess heldur stöð­ug­leika sem bygg­ist á sam­fé­lags­legri sátt. Félags­legum stöð­ug­leika.

En póli­tískur stöð­ug­leiki er nefni­lega ekki allt.

Hann er til dæmis lít­ils virði ef allir inn­viðir eru van­ræktir;

mennta­kerfið fjársvelt og grafið undan heil­brigð­is­kerf­inu okkar.

Og hvers virði er póli­tískur stöð­ug­leiki fyrir fólk sem er haldið niðri í stöðugri fátækt? Nær ekki endum saman um hver mán­aða­mót á sama tíma og talað er um efna­hags­legan upp­gang á öllum sviðum sam­fé­lags­ins. Það er nefni­lega stóra þver­sögnin í íslensku efna­hags­lífi og hana ætlum við að takast á við.

Stóra verk­efni næstu rík­is­stjórnar er nefni­lega ekki aðeins að springa ekki snemma á kjör­tíma­bil­inu.

Nei, gerum betur en það.

Stóra verk­efni næstu rík­is­stjórnar er að koma á alvöru stöð­ug­leika fyrir fólkið sem býr í þessu landi.

Og þegar ég segi alvöru stöð­ug­leiki, þá á ég við öfl­uga upp­bygg­ingu fyrir atvinnu­lífið og byggð­irnar, mennta­kerfið og heil­brigð­is­þjón­ust­una, aldr­aða og öryrkja og svo mætti lengi telja.

Það er eng­inn stöð­ug­leiki fólg­inn í því að láta inn­viði lands­ins mæta afgangi í miðju góð­æri.

En það er nú samt einmitt það sem síð­ustu tvær rík­is­stjórnir hafa gert.

Gerum betur.

Kæru félagar,

við Vinstri græn höfum skýra sýn sem á brýnt erindi við þjóð­ina.

Þessi sýn snýst ekki ein­ungis um hvernig við stundum stjórn­málin;

hún snýst fyrst og fremst um það hvernig sam­fé­lagi við viljum til­heyra

og hvernig Ísland getur tek­ist á við áskor­anir 21. ald­ar­innar.

Við trúum því að sam­fé­lag­inu vegni best þegar allir fá tæki­færi, ekki bara sumir; allt fólk, óháð efna­hag, upp­runa, aldri, kyni, búsetu.

Við viljum öfl­ugt atvinnu­líf og skatta­stefnu fyrir almenn­ing.

Okkur finnst fátækt vera ríku sam­fé­lagi til skammar,

ekki síst þegar hún er látin bitna á börnum og eldri borg­urum.

Og síð­ast en ekki síst, ágætu félagar,

þá erum við hreyf­ing sem var stofnuð af nátt­úru­vernd­ar­sinnum og femínistum.

Þessu skulum við aldrei gleyma.

Þetta þótti stór­skrýtið undir lok síð­ustu aldar þegar hreyf­ingin okkar var stofnuð,

en nú er flestum orðið ljóst að okkar fólk var á ein­fald­lega langt á undan sinni sam­tíð. Kolbrún Hall­dórs­dóttir, svo ég nefni nú þá læri­móður mína, var til dæmis langt á undan sinni sam­tíð.

Því nú er allt í einu nátt­úru­vernd og femín­ismi í stefnu­skrám allra flokka sem er fagn­að­ar­efni og besta mál.

En við erum græn í grunn­inn og við vorum alltaf femínistar, löngu áður en það var kúl,

og þetta er aðeins eitt dæmi um það hvað hreyf­ingin okkar hefur alltaf verið fram­sýn.

Kæru vinir, áskor­anir 21. ald­ar­innar eru gríð­ar­legar

og lík­lega tekur heim­ur­inn í kringum okkur hrað­ari breyt­ingum nú en nokkru sinni fyrr.

Við slíkar aðstæður þurfum við - sem búum hér á þess­ari ágætu eyju í miðju Norður-Atl­ants­haf­inu - að vera fram­sýn.

Við þurfum að vera djörf og opin fyrir breyt­ingum;

en um leið þurfum við að reyna að vera skrefi á undan og til­búin að takast á við þessar breyt­ingar.

Hvernig tök­umst við til dæmis á við tækni­bylt­ingu sam­tím­ans?

Hvað ætlum við að gera til að vinna gegn hlýnun lofts­lags?

Hvernig sigrumst við á sam­fé­lags­meini eins og kyn­ferð­is­of­beldi?

Hvernig tryggjum við að lýð­ræði muni virka eins og það á að gera?

Hvernig tryggjum við almanna­hags­muni?

Við Vinstri græn höfum skýra sýn fyrir landið okkar um það hvernig á að takast á við þessi risa­stóru við­fangs­efni.

Við vitum að til að mæta tækni­bylt­ing­unni þarf að hafa trú á menntun, rann­sóknum og nýsköpun. Við vitum að við þurfum að vinna með aðilum vinnu­mark­að­ar­ins að breyt­ingum og þróun á vinnu­mark­aði. Við vitum að það þarf að huga að allri lög­gjöf, ekki síst mann­rétt­indum, í tengslum við þessar breyt­ingar þannig að þær muni ekki stuðla að auk­inni stétt­skipt­ingu heldur einmitt auknum jöfn­uði.

Við vitum að það er hægt að vinna gegn lofts­lags­breyt­ingum. Við vitum að með því að kalla alla að borð­inu; háskóla- og vís­inda­sam­fé­lagið, aðila vinnu­mark­að­ar­ins, umhverf­is­vernd­ar­sam­tök, almenn­ing, sveit­ar­fé­lög og stofn­anir er hægt að vinnu að kolefn­is­hlut­leysi með því fyrst og fremst að draga úr losun, til dæmis í gegnum orku­skipti í sam­göngum, stór­iðju­stoppi, og kolefn­is­hlut­leysi í öllum atvinnu­greinum (land­bún­aði, sjáv­ar­út­vegi og ferða­þjón­ustu) en líka með því að auka bind­ingu og gera Ísland kolefn­is­hlut­laust 2040.


Við vitum að það þarf að gera átak líkt og við unnum að á kjör­tíma­bil­inu 2009-2013, átak gegn kyn­ferð­is­of­beldi. Við eigum þær til­lögur allar til­búnar; um úttekt á rétt­ar­stöðu brota­þola kyn­ferð­is­of­beldis og í kjöl­farið end­ur­bætur og heild­ar­end­ur­skoðun á kerf­inu, átak í fræðslu og for­vörnum, full­gild­ingu Istanbúl-sátt­mál­ans og áfram­hald­andi við­horfs­breyt­ingu í sam­fé­lag­inu öllu.


Við vitum að við getum tekið á móti fleiri flótta­mönnum og inn­flytj­endum og við treystum okkur til að byggja upp inn­viði til að taka á móti þessu fólki sem auðgar sam­fé­lagið okkar allt og gerir það betra. Við getum gert miklu betur og leyfum engum að stilla upp inn­flytj­endum og flótta­fólki sem and­stæð­ingum ein­hverra ann­arra sem eiga undir högg að sækja. Við erum öll saman í þessu sam­fé­lagi.

Við vitum að það er hægt að vinna með opn­ari og lýð­ræð­is­legri hætti en tíðkast hefur. Við getum beitt aðferðum þátt­töku­lýð­ræðis í mun meira mæli en gert hefur verið til, til dæmis rök­ræðukann­anir og þjóð­fundi, um afmörkuð mál. Þannig sjáum við fyrir okkur að megi halda af stað af nýju með heild­ar­end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar og skapa breið­ari sam­stöðu um hana en náðst hefur.

Og nú ríður á, kæru félagar, að við fáum góða kosn­ingu þann 28. októ­ber

og umboð almenn­ings til láta þessa sýn varða veg­inn inn í fram­tíð­ina.

Gerum betur.

En kæru félagar, hver eru stóru kosn­inga­mál Vinstri grænna árið 2017?

Einn félagi sagði við mig í vik­unni:

„Það liggur nú í augum uppi,

við förum bara fram með sömu kosn­inga­mál og í fyrra

því það hefur ekk­ert breyst.“

Og það er nú nokkuð til í því.

Frá­far­andi rík­is­stjórn byrj­aði á að kynna stjórn­ar­sátt­mála um ekki neitt

og fylgdi því síðan eftir á við­eig­andi hátt með því að gera ekki neitt.

Fyrir kosn­ing­arnar á síð­asta ári spurðum við kjós­endur: Hverjum treystir þú?

Og sú spurn­ing sner­ist ekki aðeins um traust til að starfa af heið­ar­leika og stunda betri stjórn­mál.

Spurn­ingin átti líka að hvetja kjós­endur til að velta því fyrir sér hverjum væri treystandi

til að standa við stóru orðin.

Um end­ur­reisn heil­brigð­is­kerf­is­ins, sókn í mennta­málum, upp­bygg­ingu inn­viða og svo fram­vegis.

En flokk­arnir í frá­far­andi rík­is­stjórn felldu grímuna,

og það hefur komið á dag­inn að fögur fyr­ir­heit þess­ara flokka voru inn­an­tóm orð.

Við Vinstri-græn stöndum hins vegar fast á okkur málum, óhögguð,

og getum end­ur­tekið spurn­ingu okkar til kjós­enda:

Hverjum treystir þú?

Þó að frá­far­andi rík­is­sjórn hafi ekki komið svo mikið sem einu fjár­laga­frum­varpi í gegnum þingið

þá vitum við samt hvað til stóð.

Því þremur dögum áður en stjórnin sprakk lagði hún fram fjár­laga­frum­varp,

byggt á fjár­mála­á­ætlun, sem var sam­þykkt af stjórn­ar­þing­mönnum síð­ast­liðið vor.

Þetta eru mik­il­væg plögg því þau gera kjós­endum kleift að sjá í gegnum fag­ur­gala og lof­orða­flaum.

Stað­reyndin er sú að í fjögur ár hafa stjórn­völd í land­inu verið eins og lömuð

þegar kemur að mik­il­væg­ustu mála­flokk­unum - og þá sér­stak­lega í heil­brigðis- og mennta­málum.

Frá­far­andi rík­is­stjórn lof­aði því að stór­auka fram­lög til heil­brigð­is­mála.

Í fyrsta lagi, þá þarf ekki aðeins að leið­rétta fyrir verð­lagi;

við erum ennþá langt frá því að halda í við fólks­fjölgun og breytta ald­urs­sam­setn­ingu þjóð­ar­innar.

Svo ég tali nú ekki um tvær millj­ónir ferða­manna.

En í öðru lagi - og þetta er alvar­legra - þá hræra tals­menn rík­is­stjórn­ar­innar vís­vit­andi saman útgjöldum til bygg­ingar nýs Land­spít­ala og þeim útgjöldum sem eru nauð­syn­leg til að standa undir rekstri heil­brigð­is­kerf­is­ins.

Það þarf að gera grein­ar­mun á rekstri og fjár­fest­ingu, þetta hljóta ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar að vita.

Það var nauð­syn­legt að setja fjár­magn í nýjan spít­ala - og við erum ánægð með að það hafi loks­ins verið gert - en þetta eru fjár­munir sem fara í stein­steypu.

Það þarf samt ennþá að end­ur­reisa sjálft heil­brigð­is­kerfið; rekstur þess og þjón­ustu við sjúk­linga

Í stað­inn er alltaf gripið í þessar sömu gömlu gervi­lausnir:

Reynt að færa meira í hendur einka­að­ila og grafa undan heil­brigð­is­kerf­inu okkar;

reynt að brjóta heil­brigð­is­kerfið upp í lítil einka­fyr­ir­tæki

sem eru afhentar eignir og græða á tá og fingri - en eng­inn ber neina ábyrgð;

og allt er þetta á kostnað rík­is­sjóðs og þeirra sem eru veikir.

Í sam­göngu­málum er það sama uppi á ten­ingnum.

Það á bara helst að koma þeim í einka­fram­kvæmd og leggja á vega­tolla

ein­ungis vegna þess að stjórn­völd treysta sér ekki til þess að byggja upp inn­við­ina eins og vera ber.

Og í mennta­málum - þar er nú metn­að­ar­leysið algjör­lega ein­stakt í sam­an­burði við önnur þróuð ríki.

Útgjöld til háskól­anna eru langt undir með­al­tali þró­aðra ríkja

og síð­ustu tvær rík­is­stjórnir hafa reynt leysa úr þessu með því að fækka nem­endum;

draga úr aðgengi að háskóla­menntun.

Hvers konar stefna er þetta eig­in­lega?

Hvaða sýn býr þarna að baki?

Er það svona sem við tök­umst á við tækni­bylt­ingu 21. ald­ar­innar?

Og sama má segja um fram­halds­skól­ana þar sem ákveðið var ein­hliða að stytta námið í þrjú ár í stað þess að gefa skól­unum fag­legt sjálf­stæði og svig­rúm eins og gert er ráð fyrir í lögum um fram­halds­skóla. Því var lofað af þáver­andi mennta­mála­ráð­herra að þetta væri ekki sparn­að­ar­ráð­stöfun heldur myndu fjár­mun­irnir sem spör­uð­ust nýt­ast inn í kerfið. Frá­far­andi rík­is­stjórn var ekki lengi að breyta því og taka alla þessa fjár­muni út úr kerf­inu í algjöru metn­að­ar­leysi.

Nei, kæru vinir, gerum betur.

Höfum trú á fram­tíð­inni með því að

end­ur­reisa heil­brigð­is­kerfið okkar.

Það þarf að verja meiru til heil­brigð­is­mála en líka að for­gangs­raða í þágu hins opin­bera kerfis; sjúkra­hús­anna, heilsu­gæsl­unnar, heil­brigð­is­stofn­ana út um land. Það þarf að lækka greiðslu­þátt­töku sjúk­linga og tryggja að fólk sé ekki sligað af reikn­ingum fyrir nauð­syn­legum lyfjum og lækn­is­þjón­ustu. Það þarf að verja meiru í for­varnir og lýð­heilsu.

Það þarf að blása til sóknar í mennta­málum. Þar er und­ir­staðan fyrir fram­tíð­ina, öflug menntun, rann­sóknir og nýsköpun. Þar eigum við að fjölga nem­endum en ekki að fækka, efla gæðin en ekki rýra.

Það þarf að byggja upp inn­við­ina um land allt. Auka raf­orku­ör­yggi um allt land, bæta sam­göngur eða fjar­skipti.

Við getum gert það og við eigum að gera það.

Gerum betur.

Kæru vinir,

hug­mynda­snauðir hægri­menn munu halda því fram að þetta sé ekki hægt;

það sé bara ekki til nóg af pen­ingum.

Hvernig? segja þeir.

Hver á að borga?

Þarf ekki að hækka skatta á almenn­ing og fyr­ir­tæki til að standa undir þess­ari stefnu?

Og reyndar eru þeir þegar byrj­aðir með hræðslu­á­róður um skatta­hækk­anir vinstri­manna. Sjálfur skatta­flokk­ur­inn. Því hvað hefur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn gert annað en að hækka skatta á almenn­ing? Eða var það ekki Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn í félagi við Framsókn sem hækk­aði virð­is­auka­skatt á mat­væli á síð­asta kjör­tíma­bili? Er það ekki Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og fylgitungl hans sem boða nú veggjöld í massa­vís? Er það ekki Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sem ætl­aði að hækka virð­is­auka­skatt á ferða­þjón­ustu? Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn getur lítið sagt um aðra. Hann er skatta­flokkur.

En við munum ekki hækka skatta á almenn­ing í land­inu

heldur munum við reka sann­gjarna skatta­stefnu;

með því að inn­heimta afnota­gjöld af auð­lindum og fá þá allra tekju­hæstu og eigna­mestu um að leggja aðeins meira til eins og tíðkast nú flestum skatt­kerfum í kringum okkur.

Og það er ekki nema sann­gjarnt.

Ekki síst vegna þess að þetta er sá hópur sem græðir lang­sam­lega mest í góð­ær­inu,

en líka vegna þess að síð­ast­liðin fjögur ár hefur skatt­byrðin auk­ist hjá öllum öðrum tekju­hópum í land­inu.

Allir tekju­hópar - nema þeir allra rík­ustu - borga hærra hlut­fall af tekjum sínum í skatt nú en fyrir 4 árum.

Og þetta er sama þróun og við sáum á árunum 1991 til 2009.

En þetta er ekki nátt­úru­lög­mál;

það þarf ekki að vera þannig að skatt­byrðin auk­ist hjá öllum - nema þeim sem þéna best og eiga mest.

Gerum betur.

Kæru félagar.

Það er nefni­lega svo að við getum gert betur með þann frá­bæra efni­við sem við eigum.

Ísland er í meg­in­at­riðum frá­bært sam­fé­lag. Við búum í frá­bæru landi, við búum að góðum innviðum, hér er frið­sælt og gott að vera, hér er ágæt almenn menntun, hreint vatn, frá­bært ung­barna- og mæðra­eft­ir­lit, frá­bært íþrótta­fólk, ótrú­leg tón­list menn­ing, ein­stök nátt­úra og svona gæti ég lengi talið. Við eigum svo margt.

En við getum gert betur. Og við þurfum öll: For­stjór­inn og ræsti­tækn­ir­inn. Trillukarl­inn á Flateyri og bif­véla­virk­inn í Kópavogi. Fram­halds­skóla­nem­inn og elli­líf­eyr­is­þeg­inn. Smið­ur­inn og þing­mað­ur­inn að átta okkur á því að við erum hluti af lausn­inni en ekki vand­anum. Að við getum ekki byggt þetta sam­fé­lag öðru­vísi en saman.

Ástæða þess að hér byggð­ist upp vel­ferð­ar­kerfi var að ólíkir aðilar tóku höndum saman um það verk­efni. Það voru þau sem á undan okkar gengu. Og fyrir því þurfti að berj­ast en á end­anum vannst sigur sem tryggði upp­bygg­ingu sam­fé­lags­legra inn­viða og hnýtti sam­fé­lag okkar sterk­ari hnútum en áður.

Leiðin til að sam­eina íslenskt sam­fé­lag er að sam­ein­ast um upp­bygg­ingu þess­ara inn­viða!

Fólkið í land­inu vill eiga rétt á mann­sæm­andi öruggu og heil­brigðu lífi.

Fólkið í land­inu vill vera varið fyrir óvissu.. Fólkið í land­inu vill búa í hús­næði sem hefur efni á og vera í vinnu með sann­gjörn og góð laun.

Fólkið í land­inu vill geta treyst því að rík­is­stjórn og Alþingi fari skyn­sam­lega með fé þannig að ekki skap­ist of mikil þensla en um leið sé fjár­munum varið til upp­bygg­ingar í almanna­þágu.

Fólkið í land­inu vill geta treyst því að sam­fé­lagið grípi það þegar það dettur, vill geta treyst því að heil­brigð­is­þjón­ustan virki þegar það þarf á henni að halda, vill geta treyst því að afar okkar og ömmur sem byggðu upp þetta sam­fé­lag líði ekki skort og vill að börnin okkar fái að minnsta kosti sömu tæki­færi og við.

En ef við viljum að þetta ger­ist skiptir máli hvernig við verjum okkar atkvæði. Við þurfum að taka stjórn­ina á þessu sam­fé­lagi og breyta stefn­unni. Við viljum leiða rík­is­stjórn um þau mark­mið, góða rík­is­stjórn fyrir fólkið í land­inu Við viljum gera betur.

Kæru félagar,

það hefur ekki farið fram­hjá neinum að okkar sýn og okkar stefna á nú hljóm­grunn í sam­fé­lag­inu. Það er með­byr með Vinstri-grænum og við finnum það hvar sem við komum. Og við finnum að sá með­byr er með okkar stefnu – hann snýst ekki um óánægju með aðra flokka. Þetta er gríð­ar­lega mik­il­væg stað­reynd sem sýnir að það er ákall um stefnu­breyt­ingu í sam­fé­lag­inu sem við eigum að verða við. Sem sýnir að okkur hefur tek­ist að byggja okkur upp sem jákvætt stjórn­mála­afl og að stefna okkar höfðar til fólks um land allt úr ólíkum áttum.

Við skulum samt var­ast að fagna um of góðu gengi í skoð­ana­könn­unum;

mér er sama um góðar kann­anir - ég vil góðar kosn­ingar.

Og að sama skapi skulum við var­ast það að reyna að mynda rík­is­stjórn fyrir kosn­ingar.

Nú er okkar eina verk­efni að sækj­ast eftir umboði almenn­ings til að mynda rík­is­stjórn eftir kosn­ingar;

góða og trausta rík­is­stjórn - sem gerir betur fyrir fólkið í land­inu og ræðst í þá nauð­syn­legu upp­bygg­ingu á vel­ferð­ar­sam­fé­lagi sem er kallað eftir hvaðanæva á land­inu.

Kæru félagar,

nú skulum við nota þann með­byr sem við finnum og kraft­inn í okkar góða fólki

til að reka öfl­uga kosn­inga­bar­áttu og sækja fram til sig­urs.

Það er þrjár vikur til stefnu og við skulum nýta tím­ann vel;

með því að tala við fólk, kynna okkar sýn og fara með þann kraft alla leið inn í kjör­dag­inn. Gerum betur, svörum ákall­inu um stefnu­breyt­ingu og förum alla leið.

Og svo segjum við áfram Ísland. Íslenska karla­lands­liðið er að spila við Tyrkland hér á eftir og þeir munu fara alla leið. Alveg eins og við förum alla leið hér í Vinstri-grænum!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár