Einangrun gæludýra á Íslandi tímaskekkja

Samkvæmt nýrri skýrslu um stöðu inn­flutn­ings­mála gælu­dýra er þörf á end­ur­skoðun laga. Segja skýrslu­höf­undar ein­angrun gælu­dýra við komu til lands­ins óþarfa tíma­skekkju þegar litið er til fram­fara í vís­indum og dýra­vel­ferðar- og mann­rétt­inda­sjón­ar­miða.

Allir innfluttir kettir þurfa að vera í fjórar vikur í einangrun og sækja þarf um innflutningsleyfi hjá Matvælastofnun áður en dýrið getur komið inn í landið með eiganda sínum.
Allir inn­fluttir kettir þurfa að vera í fjórar vikur í ein­angrun og sækja þarf um inn­flutn­ings­leyfi hjá Mat­væla­stofnun áður en dýrið getur komið inn í landið með eig­anda sínum.

Áhættu­matið, sem núver­andi lög um inn­flutn­ing gælu­dýra til Íslands eru byggð á, var unnið út frá röngum for­sendum og telst þar af leið­andi óvið­un­andi. Þetta kemur fram í skýrslu um stöðu inn­flutn­ings­mála gælu­dýra á Íslandi sem unnin var undir for­merkjum Félags ábyrgra hunda­eig­enda og kom út í sept­em­ber.

Samkvæmt skýrsl­unni hefur ekki verið tekið til skoð­unar fyr­ir­komu­lag líkt og tíðkast í nágranna­löndum Íslands til að ann­ast eft­ir­fylgni inn­flutn­ings dýra, svo sem gælu­dýrapassa­kerfi.

Píratar hyggj­ast taka upp málið eftir kosn­ingar en í síð­ustu viku sendi Ásta Guðrún Helga­dóttir inn fyr­ir­spurn vegna máls­ins til land­bún­aðar- og sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra þar sem hún spurði meðal ann­ars hvort ekki þætti tíma­bært að end­ur­skoða inn­flutn­ings­lögin.

Varnir gegn smitsjúkdómum virka í öðrum löndum

Skýrslan var unnin af Þorgerði Ösp Arn­þórs­dóttur, með­limi Félags ábyrgra hunda­eig­enda, og Guðfinnu Krist­ins­dóttur, stjórn­ar­með­limi. Að sögn Þor­gerðar Aspar var hún skrifuð sem sam­an­tekt stað­reynda og rök­stuðn­ings fyrir end­ur­skoðun lag­anna, aðal­lega svo þeir Alþing­is­menn, sem ætla sér að taka málið upp, geti sett sig inn í það. Hún segir skýrsl­una jafn­framt vera tól til að opna umræð­una um mál­efni gælu­dýra, deila fræðslu og skapa vett­vang fyrir sam­ræður.

Enn­fremur kemur fram í skýrsl­unni að kröfur um bólu­setn­ingar, blóð­sýna­grein­ingar og sníkju­dýra­með­höndl­anir einar og sér, hafi reynst vel í öðrum löndum sem varnir gegn smit­sjúk­dómum við flutn­ing gælu­dýra milli landa. Ein­angrun gælu­dýra við komu til lands­ins sé óþörf tíma­skekkja þegar litið er til fram­fara í tækni og dýra­lækn­inga­vís­indum, sem og frá dýra­vel­ferðar- og mann­rétt­inda­sjón­ar­miðum.

Þörf á nýju áhættumati

Starfs­hópur á vegum Hunda­rækt­ar­fé­lags Íslands hefur fjallað um mál­efnið í nálega þrjú ár og fund­aði nýlega með Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur, land­bún­aðar- og sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra. Þar var kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að nýtt áhættu­mat þyrfti að fram­kvæma sem fyrst. Þor­gerður Ösp telur að mik­ill þrýst­ingur sé í þjóð­fé­lag­inu vegna þessa máls um þessar mundir, sér­stak­lega vegna langra biðlista sem eru eftir plássi í Ein­angr­un­ar­stöð­inni.

Þor­gerður segir að mik­ill hræðslu­á­róður ríki um málið í þjóð­fé­lag­inu og margir séu illa upp­lýstir. „Margir halda að ef ekki væri fyrir ein­angrun myndum við sjá stór­felldar sjúk­dóma­far­aldur, sem gæti ekki verið fjær raun­veru­leik­anum. Öll þau for­skil­yrði sem dýrið þarf að upp­fylla áður en komið er til lands­ins eru meira en nægi­leg vörn. Ein­angr­unin gegnir engu gagni í þessu sam­hengi,“ bendir hún á.

Hún segir að Mat­væla­stofnun skýli sig á bak­við það að iðra­ormar hafi fund­ist í saur­sýnum hjá hundum í ein­angrun. „Iðra­orm­ur­inn sem MAST skýlir sér á bak­við, Strongyloides stercoralis, finnst nú þegar á Íslandi. Svo fyrir utan það að helstu hýslar orms­ins eru mann­fólk, ekki hundar,“ segir hún. Þor­gerður telur að inn í þetta mál vanti gagn­sæi og fag­leg vinnu­brögð. Þess vegna mæli Hunda­rækt­ar­fé­lag Íslands og Félag ábyrgra hunda­eig­enda sterk­lega með að erlendur fag­að­ili vinni nýja áhættu­matið.

Aðrir kostir ekki metnir

Að mati skýrslu­höf­unda var sem fyrr segir áhættu­matið, sem núver­andi lög og reglu­gerðir eru byggð á, unnið út frá röngum for­sendum. Ekki var metin áhætta á sjúk­dóma­smiti nema út frá tveimur mögu­leikum. Í fyrsta lagi að við­halda núver­andi varn­ar­að­gerðum sem eru bólu­setn­ingar, sníkju­dýra­með­höndl­anir, blóð­sýna­grein­ingar til stað­fest­ingar mótefnis, sem og fjög­urra vikna ein­angrun. Í öðru lagi hafi áhættan á smiti verið metin út frá því ef engar varn­ar­að­gerðir væru við­hafðar.

„Ekki voru skoð­aðir neinir mögu­leikar milli þess­ara tveggja, en ljóst er að mikið grátt svæði er þar í milli. Aldrei hefur verið unnið áhættu­mat sem metur til dæmis áhætt­una á smitum ef tekið yrði upp sam­bæri­legt fyr­ir­komu­lag og Evrópski gælu­dýrapass­inn eða ein­angrun stytt,“ segir Þor­gerður Ösp. Hún bætir við að núver­andi áhættu­mat verði því að telj­ast óvið­un­andi og nið­ur­stöðum þess aug­ljós­lega stýrt við vinnslu, þar sem einn af þeim tveimur mögu­leikum skoð­aðir, að við­hafa engar varn­ar­að­gerðir, kom í raun aldrei til greina og sé frá­leitur.

Hættan á smiti 1 á hverjum 40.000 árum

Þor­gerður Ösp segir að lönd sem svipa til Íslands í legu og ein­staks líf­ríkis hafi góðar sögur að segja af því að taka upp gælu­dýrapassa­kerfi. Sem dæmi má nefna Bret­landseyjar, sem áður voru með 6 mán­aða eina­grun. Unnið var nýtt áhættu­mat fyrir Bret­landseyjar sem sýndi fram á að virkni þeirra for­skil­yrða sem nú þegar eru við­höfð á Íslandi, þ.e. bólu­setn­ingar, sníkju­dýra­með­höndl­anir, og blóð­sýna­grein­ingar til stað­fest­ingar hunda­æð­is­mótefnis, sé svo áhrifa­rík að þeir felldu niður ein­angrun með öllu.

Áhættu­mat Bret­landseyja var unnið árið 2000 og sýndi fram á áhættu á einu hunda­æð­is­smiti á hverjum 211 árum. Þor­gerður Ösp segir að ef þær tölur eru laus­lega aðlag­aðar hlut­falls­lega að Íslandi miðað við íbúa­fjölda megi ætla að hættan á hunda­æð­is­smiti á Íslandi, ef ein­angrun gælu­dýra yrði lögð af, sé eitt smit á hverjum fjör­tíu þús­und árum.

Þvingaður aðskilnaður mannréttindabrot

Telur Þor­gerður Ösp jafn­framt að fjög­urra vikna ein­angrun gælu­dýra, og þar með þving­aður aðskiln­aður eig­anda og gælu­dýrs, sé ekki í sam­ræmi við reglu­gerðir um dýra­vel­ferð. Í skýrsl­unni vitnar hún meðal ann­ars í rann­sóknir sem sýna fram á að aðskiln­að­ar­kvíði dýra er umfangs­meiri en það sem þekk­ist hjá mann­fólki, og dýr taka eig­endur sína fram yfir aðrar mann­eskjur fyrir umönnun.

Mikil vöntun er á sér­hæfðum vinnu­hundum, svo sem leið­sögu­hundum fyrir blinda og björg­un­ar­hundum. „Ein­angr­unin getur sett þjálfun þeirra miklar skorður og er fram­kvæmd á því lífs­stigi hunds að hún getur hrein­lega orðið til þess að eyði­leggja mögu­leika hunds­ins á áfram­hald­andi vinnu,“ segir hún.

Þor­gerður Ösp telur einnig að fólk, sem reiðir sig á þjón­ustu leið­sögu- eða ann­arra þjón­ustu­hunda, geti ekki ferð­ast með dýr til og frá lands­ins þar sem ein­angr­unin geti haft alvar­leg áhrif á þjálfun hunds­ins. Þá megi ætla að þetta sé ekki ein­ungis brot á rétt­indum fatl­aðra, heldur gangi þving­aður aðskiln­aður eig­anda og gælu­dýrs í raun svo langt að vera mann­rétt­inda­brot.

Vinnubrögð þarf að endurskoða

Óljóst er hver ber ábyrgð á dýr­unum á meðan þau dvelja í ein­angrun og eru þau ekki á neinn hátt tryggð fyrir slysum. Þor­gerður Ösp segir að dæmi séu um að dýr hafi slasast í ein­angrun og eig­anda boðið að senda það aftur út til útflutn­ings­lands­ins, láta það vera slasað það sem eftir er dval­ar­innar eða að láta aflífa dýrið. Reglu­gerð­irnar sem stýra verk­ferlum í kringum inn­flutn­ing dýra þurfi yfir­haln­ingu, enda vísi þær í áhættu­mat sem byggt er á sandi. Telur hún þetta ástand óvið­un­andi og breyt­ingar á lögum löngu tíma­bærar og nauð­syn­legar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dýravelferð

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár