Risaskjálfti skekur Mexíkóborg

Stór jarða­skjálfti varð í Mexíborg í kvöld. Skjálft­inn reið yfir þegar æfingar vegna jarð­skjálfta­hættu stóðu yfir.

Á 32 ára afmæli skjálft­ans mikla í Mexíborg, sem var upp á 8 á Richter-kvarða og olli gíf­ur­legri eyði­legg­ingu og mann­tjóni, reið jarð­skjálfti upp á 7,1 yfir borg­ina í dag.

Í skjálft­anum árið 1985 lét­ust yfir 5 þús­und manns, en sam­kvæmt frá­sögnum af vett­vangi nú þá er fjöldi fólks fastur undir braki og bygg­ingum sem hafa hrunið að hluta eða öllu leyti.

Æfingar á við­brögðum við jarð­skjálftum stóðu yfir í borg­inni þegar skjálft­inn varð, nú undir kvöld, en yfir­völd í Mexíkó höfðu varað við því að mikil spenna væri á mælum sem benti til þess að jarð­skjálftar gætu mögu­lega komið fram á næstu dögum eða vikum.

Að minnsta kosti 42 eru látnir, en hjálp­ar­starf stendur nú yfir víða um borg­ina, sam­kvæmt fréttum breska rík­is­út­varps­ins BBC.

Upptök skjálft­ans eru sjö kíló­metra vestur af bænum Chiautla de Tapia í Puebla­ríki, í nágrenni Mexík­ó­borgar. Íbúar í borg­inni eru 8,8 millj­ónir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

náttúruhamfarir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár