VR vill að lægstu laun verði skattfrjáls

Stærsta stétt­ar­fé­lag lands­ins vill að per­sónu­af­sláttur verði end­ur­skoð­aður til sam­ræmis við launa­vísi­tölu frá árinu 1990 og að bundið verði í lög að hann fylgi launa­vísi­tölu.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR. Mynd: Úr safni

Stjórn VR, stærsta stétt­ar­fé­lags lands­ins, segir að mark­mið félags­ins í kom­andi kjara­samn­ingum verði að lægstu laun verði skatt­frjáls. Það á að gera með þvi að hækka per­sónu­af­slátt sem muni í kjöl­farið auka kaup­mátt lægstu launa og milli­tekju­hópa umtals­vert. Þetta kemur fram í ályktun stjórnar VR sem sam­þykkt var á stjórn­ar­fundi stétt­ar­fé­lags­ins í gær.

Í álykt­un­inni er farið fram á að fjár­hæð per­sónu­af­sláttar muni fylgi launa­vísi­tölu og að það verði bundið í lög. „Stjórn VR beinir þeim til­mælum til stjórn­valda að end­ur­skoða fjár­hæð per­sónu­af­sláttar til sam­ræmis við launa­vísi­tölu frá árinu 1990 í fjár­laga­frum­varpi fyrir árið 2018. Í kom­andi kjara­samn­ingum er mik­il­vægt að horft sé til fram­tíðar og launa­fólki verði tryggður stöð­ug­leiki og raun­veru­leg kaup­mátt­ar­aukn­ing. Mik­il­vægur þáttur í því er að festa með lögum að per­sónu­af­sláttur fylgi launa­vísi­tölu.

Markmið okkar er að lægstu laun verði skatt­frjáls með hækkun per­sónu­af­sláttar og sem mun auka kaup­mátt lægstu launa og milli­tekju­hópa umtals­vert. Hækkun per­sónu­af­sláttar verður ein af aðal­kröfum félags­ins fyrir kom­andi kjara­samn­inga.“

Forsætisráðherra segir vinnumarkaðslíkanið ónýtt

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra fjall­aði um kom­andi kjara­við­ræður í stefnu­ræðu sinni í gær. Hann sagði að stærsta ein­staka efna­hags­vanda­málið á Íslandi væri það, að reynd væri vinnu­mark­aðslíkan­ið, sem unnið væri eft­ir, ónýtt. Nú væri mik­il­vægt að alir sem kæmu að kjara­við­ræð­um, tækju höndum saman um að horfa til þess hversu mikið svig­rúmið til launa­hækk­ana án þess að það bitn­aði á sam­keppn­is­hæfni þjóð­ar­bús­ins. „Framundan eru mik­il­vægir samn­ingar á vinnu­mark­aði. Allir aðilar verða að rísa undir þeirri ábyrgð sem á þeim hvílir með sama hætti. Aug­ljóst er að ábyrgð fylgir því að semja, en rétt­ur­inn til að semja ekki er einnig vand­með­far­inn. Þegar farið er út af spor­inu í kjara­við­ræðum á Íslandi með samn­ingum sem þykja ekki sam­ræm­ast stöð­ug­leika hefst sam­kvæm­is­leikur sem við gætum kall­að: Hver er söku­dólg­ur­inn?

En það er allt of mikil ein­földun að skella skuld­inni á kröfu­gerð laun­þega, ein­staka atvinnu­rek­end­ur, eða eftir atvikum rík­is­stjórn eða sveit­ar­fé­lög sem látið hafa undan þrýst­ingi um samn­inga, þegar aðferða­fræðin við að leiða fram nið­ur­stöðu er jafn gölluð og raun ber vitni. Leitin að söku­dólgnum beinir sjónum frá aðal­at­rið­inu. Vinnu­mark­aðslíkanið er í raun ónýtt. Þetta eru stór orð. En hver getur mót­mælt þessu þegar hver höndin er uppi á móti ann­arri, nær engin sam­vinna til staðar og skipu­lagið til­vilj­ana­kennt og breyti­legt frá einum kjara­við­ræðum til þeirra næstu. Þetta er stærsti ein­staki veik­leiki íslenskra efna­hags­mála um þessar mund­ir,“ sagði Bjarni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár