Bjarni: Vinnumarkaðslíkanið í raun ónýtt

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra sagði að staða efna­hags­mála væri góð um þessar mundir, en að það yrði sam­vinnu­verk­efni að vernda góðan árangur á næstu árum.

Bjarni Benediktsson
Bjarni Bene­dikts­son Mynd: Birgir Þór Harðarson

Bjarni Bene­dikts­son, for­sæt­is­ráð­herra, sagði í stefnu­ræðu sinni á Alþingi í kvöld, að staða efna­hags­mála væri um margt góð um þessar mundir, þá væri það í okkar höndum spila vel úr góðri stöðu.

Hann sagði að stærsta ein­staka efna­hags­vanda­málið á Íslandi væri það, að reynd væri vinnu­mark­aðslíkanið, sem unnið væri eftir, ónýtt. Nú væri mik­il­vægt að alir sem kæmu að kjara­við­ræðum, tækju höndum saman um að horfa til þess hversu mikið svig­rúmið til launa­hækk­ana án þess að það bitn­aði á sam­keppn­is­hæfni þjóð­ar­bús­ins. „Framundan eru mik­il­vægir samn­ingar á vinnu­mark­aði. Allir aðilar verða að rísa undir þeirri ábyrgð sem á þeim hvílir með sama hætti. Augljóst er að ábyrgð fylgir því að semja, en rétt­ur­inn til að semja ekki er einnig vand­með­far­inn. Þegar farið er út af spor­inu í kjara­við­ræðum á Íslandi með samn­ingum sem þykja ekki sam­ræm­ast stöð­ug­leika hefst sam­kvæm­is­leikur sem við gætum kallað: Hver er söku­dólg­ur­inn?

En það er allt of mikil ein­földun að skella skuld­inni á kröfu­gerð laun­þega, ein­staka atvinnu­rek­endur, eða eftir atvikum rík­is­stjórn eða sveit­ar­fé­lög sem látið hafa undan þrýst­ingi um samn­inga, þegar aðferða­fræðin við að leiða fram nið­ur­stöðu er jafn gölluð og raun ber vitni. Leitin að söku­dólgnum beinir sjónum frá aðal­at­rið­inu. Vinnu­mark­aðslíkanið er í raun ónýtt. Þetta eru stór orð. En hver getur mót­mælt þessu þegar hver höndin er uppi á móti annarri, nær engin sam­vinna til staðar og skipu­lagið til­vilj­ana­kennt og breyti­legt frá einum kjara­við­ræðum til þeirra næstu. Þetta er stærsti ein­staki veik­leiki íslenskra efna­hags­mála um þessar mundir,“ sagði Bjarni.

Hann gerði hina svo­nefndu fjórðu iðn­bylt­ingu, sem væri knúin áfram af miklum tækni­fram­förum, einnig að umtals­efni, og sagði stjórn­völd þurfa að huga að þeim fjöl­mörgu álita­málum sem breyttur heimur kall­aði fram. „En þessar miklu breyt­ingar munu ekki ein­vörð­ungu snerta börnin okkar og fram­tíð þeirra. Það er ljóst að stærstu fyr­ir­sjá­an­legu breyt­ingar næstu ára munu koma við þá sem eru nú þegar á vinnu­mark­aðnum. Starfs­fólk á ýmsum sviðum mun á kom­andi árum þurfa að bæta við þekk­ingu og hæfni sína til að fylgja straumi nýrra tíma. Hér reynir mikið á stjórn­völd, atvinnu­lífið, verka­lýðs­hreyf­ing­una og mennta­kerfið. Þessi þróun er og verður mikil áskorun, áskorun sem við verðum að rísa undir og leggja til tíma, kraft og fjár­muni,“ sagði Bjarni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár