Ekki kostnaðarlega forsvaranlegt að halda Háholti opnu

Félags- og jafn­rétt­is­ráð­herra úti­lokar að með­ferð­ar­heim­ilið Háholt í Skaga­firði verði opnað aftur. Rekstur þess kost­aði hálfan millj­arð á þremur árum en vist­menn voru að jafn­aði 1-3. „Skelfi­leg með­ferð á opin­beru fé“ sagði for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu.

Þorsteinn Víglundsson, ráðherra félags- og húsnæðismála
Þor­steinn Víglunds­son, ráð­herra félags- og hús­næð­is­mála Mynd: Birgir Þór Harðarson

Þor­steinn Víglunds­son, félags­mála- og jafn­rétt­is­ráð­herra, segir að Barna­vernd­ar­stofa hafi næg úrræði til að sinna því starfi sem með­ferð­ar­heim­ilið Háholt sinnti áður án þess að byggt hafi verið upp nýtt með­ferð­ar­úr­ræði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Fagleg rök hafi legið fyrir því að Háholti hafi verið lokað og hann telji að engin þörf hafi verið fyrir sig að grípa inn í það ferli.

[links]Steinunn Þóra Árna­dóttir, þing­maður Vinstri grænna, hefur óskaði í síð­ustu viku eftir fundi í vel­ferð­ar­nefnd Alþingis til að ræða mál­efni Háholts í Skaga­firði. Með­ferð­ar­heim­il­inu var lokað 1. júlí síð­ast­lið­inn og Steinunn Þóra hefur óskað eftir því að fá skýr­ingar af hverju vinna við nýtt með­ferð­ar­úr­ræða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafi ekki haf­ist „þar sem þessi röð atburða bitnar á ungu fólki sem þarf á með­ferð að halda núna“.

Kostnaður yfir 150 milljónir á ári en eftirspurn nánast engin

Háholt hefur starfað sem með­ferð­ar­heim­ili í næstum tvo ára­tugi. Rekst­ur­inn var einka­rekstur sem hvíldi á þjón­ustu­samn­ingi við Barna­vernd­ar­stofu. Und­an­farin ár hefur áherslan í starfi Barna­vernd­ar­stofu verið á svo­nefnda Fjöl­kerfa­með­ferð, MST, og sam­hliða hefur dregið úr þörf á stofn­ana­með­ferð á borð við þá sem rekin var í Háholti. Vegna þessa hefur með­ferð­ar­heim­ilum skipu­lega verið lokað á und­an­förnum ára­tugum. Eft­ir­spurn eftir þeim hefur ein­fald­lega verið arfa­slök.

[adspot]Samn­ing­ur­ Háholts átti að renna út í lok árs 2013 og í ljósi þess að eft­ir­spurnin eftir plássi þar var nær engin var ein­ingin ekki talin rekstr­ar­hæf. Starfs­fólk­inu var því öllu sagt upp í lok árs 2013 og við blasti að rekstr­ar­sögu þessa með­ferð­ar­heim­ilis væri lok­ið. Það breytt­ist skyndi­lega í nóv­em­ber 2013 þegar þáver­andi félags­mála­ráð­herra, Eygló Harð­ar­dóttir, fól Barna­vernd­ar­stofu að ganga til við­ræðna um nýjan samn­ing um rekstur með­ferð­ar­heim­ilis í Háholti þar sem gert yrði ráð fyrir að heim­ilið fengi það tíma­bundna hlut­verk að vista fanga undir 18 ára aldri sem dæmdir væru til óskil­orðs­bund­innar refs­ing­ar.

Þjón­ustu­samn­ing­ur­inn við Háholt gilti fram til 1. sept­em­ber 2017 og kost­aði um og yfir 150 millj­ónir króna á ári, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Barna­vernd­ar­stofu. Sam­an­lagt kost­uðu árin þrjú sem hann náði yfir því á milli 450-500 millj­ónir króna.

„Skelfileg meðferð á opinberu fé“

Sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Barna­vernd­ar­stofu var einn ein­stak­lingur vistaður á Háholti í kjöl­far dóms frá því að þjón­ustu­samn­ing­ur­inn var gerð­ur. Sú vist stóð yfir í nokkra mán­uði. Á þeim tíma sem þjón­ustu­samn­ing­ur­inn var í gildi voru 1-3 ein­stak­lingar verið vistaðir á Háholti að jafn­aði.

Alls voru inn­rit­aðir ein­stak­lingar sex á árinu 2014, þrír árið 2015 og sex á árinu 2016. Til sam­an­burðar má nefna að 112 ein­stak­lingar voru inn­rit­aðir í með­ferð­ar­úr­ræði Barna­vernd­ar­stofu á árinu 2016 til við­bótar við 47 sem nutu með­ferðar á árinu, en höfðu inn­rit­ast 2015. Nýting á úrræð­inu var því mjög léleg.

Bragi Guð­brands­son, for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu, sagði í við­tali við Kjarnann í apríl að þetta hafi verið „skelfi­leg með­ferð á opin­beru fé.“

Þor­steinn Víglunds­son segir að staða máls­ins í dag sé sú að Barna­vernd­ar­stofa sæk­ist ekki eftir end­ur­nýjun samn­inga við Háholt. Eft­ir­spurn sé fyrst og fremst eftir þjón­ustu í námunda við heim­ili og miklu meiri áhersla sé nú á að veita börnum og for­eldrum þjón­ustu saman. „Svona heim­ilum hefur verið lokað á und­an­förnum árum. For­stjóri Barna­vernd­ar­stofu kynnti fyrir mér fag­legu rökin fyrir því að loka þeim og það er engin þörf fyir mig að grípa þarna inn í. Það væri óeðli­legt fyrir mig að grípa inn í þá fag­legu ákvörðun Barna­vernd­ar­stofu. Hún hefur eftir sem áður næg úrræði til að sinna þvi sem hún þarf að sinna. Kostn­að­ar­lega sé var ein­fald­lega ekki for­svar­an­legt að halda þessu við.“

Búið er að taka ákvörðun um að byggja nýja með­ferð­ar­stofnun nær höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Því verk­efni hefur þegar verið tryggt fjár­heim­ild til upp­bygg­ingar og rekstr­ar­fé. Þor­steinn segir að Fram­kvæmd­ar­sýsla rík­is­ins sé með málið á sínu borði og þurfi að finna stofn­un­inni stað­setn­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár