Miðstjórn ASÍ segir viðbrögð Ragnars „órökrétt“

Full­trúar í mið­stjórn ASÍ sendu frá sér yfir­lýs­ingu vegna við­bragða for­manns VR á Facebook.

Full­trúar í mið­stjórn ASÍ sendu frá sér sér­staka til­kynn­ingu vegna stöðu­upp­færslu Ragnars Ing­ólfs­sonar, for­manns VR, á Facebook en í henni sagði Ragnar meðal ann­ars að Alþýðu­sam­bandið bæri höf­uð­á­byrgð á því að skatt­byrði lág­tekju­fólks hafi hækkað á und­an­förnum árum og ára­tugum.

Í til­kynn­ing­unni er þessu alfarið hafnað. „Mið­stjórn ASÍ lýsir furðu sinni yfir þess­ari yfir­lýs­ingu for­manns VR við nið­ur­stöðum rann­sóknar hag­deildar ASÍ um þróun skatt­byrði og vísar þessum ásök­unum alger­lega á bug. Alþýðu­sam­bandið og aðild­ar­sam­tök þess hafa háð langa og erf­iða bar­áttu við stjórn­völd um þróun skatt­kerf­is­ins, með skýrum kröfum um hækkun per­sónu­af­sláttar til sam­ræmis við þróun verð­lags og launa, sem og þróun bæði barna­bóta og hús­næð­is­bóta. Hefur verið um þetta fjallað á fjöl­mörgum þingum ASÍ sem og þingum lands­sam­banda og stétt­ar­fé­laga innan ASÍ.“

Þá segir enn­fremur í til­kynn­ing­unni að það sé í höndum ein­staka aðild­ar­fé­laga ASÍ að semja en í sumum til­fellum hafi félögin falið ASÍ umboð til þess að semja við stjórn­völd um skatta­mál og ýmis vel­ferð­ar­mál. „Með sam­starfi við stétt­ar­fé­lögin innan ASÍ hefur ýmis­legt áunn­ist í glímunni við stjórn­völd. Í seinni tíð hefur þetta m.a. skilað sér með þeim hætti að per­sónu­af­sláttur var verð­tryggður um mitt ár 2006 og við­bót­ar­hækkun per­sónu­af­sláttar náð­ist með kjara­samn­ing­unum 2008. Sam­komu­lag náð­ist einnig um veru­lega hækkun húsa­leigu­bóta í maí 2008 og hækkun eign­ar­skerð­ing­ar­marka vaxta­bóta í sept­em­ber það ár. Í samn­ing­unum í maí 2015 náð­ist sam­komu­lag um hækkun hús­næð­is­bóta sem kom til fram­kvæmda um síð­ustu ára­mót, sem og sam­komu­lag um 30% nið­ur­greiðslu á stofn­kostn­aði á leigu­í­búðum fyrir tekju­lágar fjöl­skyldur.“

Þá er enn­fremur minnst á það, að stjórn­mála­menn hafi því miður ekki staðið við sitt. „Því miður er það svo, að þrátt fyrir þennan árangur hafa stjórn­mála­menn oftar en ekki látið hjá líða að hækka þær við­mið­un­ar­fjár­hæðir sem gilda í skatta- og til­færslu­kerf­inu, þrátt fyrir ítrek­aðar ábend­ingar ASÍ og aðild­ar­fé­lag­anna, sem iðu­lega hefur leitt til hækk­andi skatt­byrði lág­tekju­fólks. Afleið­ingin er að þrátt fyrir að stétt­ar­fé­lögin hafi náð miklum árangri í hækkun lægstu launa umfram almenn laun, hafa stjórn­völd skert ráð­stöf­un­ar­tekjur þeirra með þessu fram­ferði. Það er lang­sótt og full­kom­lega órök­rétt að gera ASÍ ábyrgt fyrir auk­inni skatt­byrði lág­tekju­fólks. Þessi ábyrgð hvílir ein­göngu hjá rík­is­stjórn og Alþingi – og bera flestir stjórn­mála­flokkar sam­eig­in­lega ábyrgð á þess­ari stöðu mála. Mið­stjórn ASÍ telur fram­lag hag­deildar ASÍ til umræðu um skatta­mál og þróun ráð­stöf­un­ar­tekna launa­fólks, einkum þeirra tekju­lægstu, afar mik­il­vægt inn­legg sem gagn­ast mun félags­mönnum og aðild­ar­fé­lög­unum við und­ir­bún­ing kjara­við­ræðna. Mið­stjórnin hvetur jafn­framt til þess að Ragnar Þór, sem og aðrir for­ystu­menn aðild­ar­fé­laga innan raða ASÍ, snúi bökum saman og beini kröfum sínum og kröftum að við­semj­endum okkar og stjórn­völdum. Saman getum við meira!“ segir í til­kynn­ing­unni.

Undir hana rita Gylfi Arn­björns­son, for­seti ASÍ, Sigurður Bessason, 1. vara­for­seti ASÍ, Efling-stétt­ar­fé­lag, Ingi­björg Ósk Birg­is­dóttir, 2. vara­for­seti ASÍ, VR, Benóný Valur Jak­obs­son, VR, Bjarni Þór Sig­urðs­son, VR, Björn Snæ­björns­son, Eining-Iðja, Eiður Stef­áns­son, Félag versl­unar og skrif­stofu­fólks á Akureyri, Guð­brandur Ein­ars­son, Versl­un­ar­manna­fé­lag Suð­ur­nesja, Guð­mundur Ragn­ars­son, Félag vél­stjóra og málm­tækni­manna, bein aðild, Hilmar Harð­ar­son, FIT – Félag iðn- og tækni­greina, Kristján Þórður Snæ­bjarn­ar­son, Félag raf­einda­virkja, Signý Jóhann­es­dóttir, Stétt­ar­fé­lag Vest­ur­lands, Sigurrós Krist­ins­dóttir, Efling,Sverrir Mar Alberts­son, Afl starfs­greina­fé­lag, og Val­mundur Val­munds­son, Sjó­manna­sam­bandi Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár