Lagt til að eldisfyrirtæki greiði auðlindagjald

Ráðherra fagnar til­lögum starfs­hóps um stefnu­mótun í fisk­eldi.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Starfs­hóp­ur­ um stefnu­mótun í fisk­eld­is­málum legg­ur meðal ann­ars til, í skýrslu sinni, að rekstr­ar­leyf­is­haf­ar í sjó­kvía­eldi greiði af­gjald vegna nýt­ing­ar á eld­is­svæðum í sjó, og auð­linda­gjald sem miðað verði við fram­leiðslu­magn eld­is­fisks í sjó, allt að 15 krón­ur á hvert fram­leitt kíló af eld­islaxi. Lagt er til að 85% auð­linda­gjalds­ins renni til upp­bygg­ing­ar á þeim svæðum sem nýt­ist við upp­bygg­ingu fisk­eld­is, en 15% gjalds­ins renni þá í Um­hverf­is­sjóð sjó­kvía­eld­is, til að efla rann­sókn­ir í fisk­eldi.

Fyr­ir­tæk­in fái þá sex ára bið­tíma á greiðslu auð­linda­gjalds, og verður það talið frá þeim tíma þegar fyrsta slátrun hefst úr eld­isk­ví­um fyr­ir­tæk­is­ins. Eldi ófrjórra laxa verði enn frem­ur tíma­bundið und­anþegið greiðslu auð­linda­gjalds og 50% af­slátt­ur sett­ur á greiðslu gjalds­ins vegna eld­is regn­bogasil­ungs.

Í starfs­hópnum voru Baldur P. Erlings­son, lög­fræð­ingur hjá atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyti og Bryndís Björns­dóttir, sér­fræð­ingur hjá Matís, bæði skipuð án til­nefn­ingar, Guð­mundur Gíslason, stjórn­ar­for­maður Fisk­eldis Aust­fjarða, og Kjartan Ólafsson, stjórn­ar­for­maður Arnarlax, báðir til­nefndir af Lands­sam­bandi fisk­eld­is­fyr­ir­tækja, Óðinn Sig­þórs­son, fyrr­ver­andi for­maður Lands­sam­bands veiði­fé­laga, til­nefndur af Lands­sam­bandi veiði­fé­laga, og Sig­ur­björg Sæmunds­dóttir, deild­ar­stjóri hjá umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyti, til­nefnd af umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyti. Með starfs­hópnum starf­aði dr. Jón Þrándur Stef­áns­son.

Í til­kynn­ingu á vef atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins segir að starfs­hóp­ur­inn telji mik­il­vægt að fisk­eldi á Íslandi verði skap­aðar aðstæður sem eru góðar til upp­bygg­ingar. „Starfs­hóp­ur­inn telur mik­il­vægt að íslensku fisk­eldi séu sköpuð bestu mögu­leg skil­yrði til upp­bygg­ingar og verði þannig sterk og öflug atvinnu­grein. Með hag­felldum rekstr­ar­skil­yrðum megi byggja upp fisk­eldi á svæðum sem henta til slíks rekstrar og efla þannig atvinnu­líf og byggð í land­inu. Að sama skapi telur starfs­hóp­ur­inn mik­il­vægt að stuðla að ábyrgu fisk­eldi þar sem sjálf­bær þróun og vernd líf­ríkis séu höfð að leið­ar­ljósi. Einungis þannig muni nást sátt um fram­tíð­ar­upp­bygg­ingu fisk­eldis. Starfs­hóp­ur­inn bendir á að slík sátt helstu hags­muna­að­ila sé ekki ein­ungis nauð­syn­leg fyrir upp­bygg­ingu fisk­eldis heldur skapi slík sátt mark­aðs­leg sókn­ar­færi fyrir íslenskt fisk­eldi til fram­tíðar, þar sem byggt er á umhverf­is­vænni ímynd. Því skuli rann­sóknir ráða för við upp­bygg­ingu fisk­eldis - og í þeim til­fellum þar sem óvissa ríki um áhrif fisk­eldis á vist­kerfi eða umhverfi verði nið­ur­stöður rann­sókna lagðar til grund­vallar ákvörð­unum stjórn­valda,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Í skýrslu starfs­hóps­ins koma meðal ann­ars fram upp­lýs­ingar um eign­ar­hald á fisk­eld­is­fyr­ir­tækj­unum sem starfa hér á landi, en það er að stóru leyti hjá erlendum aðilum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár