Gjaldþrotabeiðnum fækkaði um 55%

Minna virð­ist um inn- og útgöngu á fyr­ir­tækja­mark­aði í vor miðað við í fyrra, en veru­lega hefur dregið úr gjald­þrota­skiptum og nýskrán­ingum.

Nýskráningum fyrirtækja fækkaði mest í landbúnaði, skógrækt og fiskveiðum.
Nýskrán­ingum fyr­ir­tækja fækk­aði mest í land­bún­aði, skóg­rækt og fisk­veiðum. Mynd: Anton Brink

Gjald­þrota­beiðnir á öðrum árs­fjórð­ungi 2017 voru um 55% færri en fyrir ári síðan. Á sama tíma­bili fækk­aði nýskrán­ingum fyr­ir­tækja einnig um 11%. Þetta kemur fram í nýbirtum tölum Hagstofu. 

Tölurnar sýna að dregið hafi úr hrær­ingum á fyr­ir­tækja­mark­aði miðað við árið 2016. Nýskrán­ingar einka­hluta­fé­laga í apríl, maí og júní voru 689, en til sam­an­burðar voru þær 771 á vor­mán­uðum í fyrra. Mest fækk­aði nýskrán­ingum í land­bún­aði, skóg­rækt og fisk­veiðar, en næst mest á sviði upp­lýs­inga og fjar­skipta. 

[adspot]

Samhliða færri nýskrán­ingum hefur gjald­þrota­beiðnum fækkað stór­lega á einu ári. Á öðrum árs­fjórð­ungi 2017 voru 157 fyr­ir­tæki tekin til gjald­þrota­skipta miðað við 352 í fyrra, en það jafn­gildir 55% fækkun. Athygli vekur að sam­hliða færri nýskrán­ingum fækk­aði gjald­þrotum einnig mikið á meðal fyr­ir­tækja á sviði upp­lýs­inga og fjar­skipta, eða um 69%.

Tölur Hagstofu benda til þess að atvinnu­líf sé að róast frá árinu á undan, en árið 2016 var fimm ára met slegið í fjölda nýskráðra fyr­ir­tækja og þriggja ára met í fjölda gjald­þrota­skipta. Nýbirtar tölur fyrir 2017 eru meiri í takt við þróun fyrri ára heldur en töl­urnar frá því í fyrra, eins og sést á mynd hér að ofan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hagtölur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár