Úrskurðir kjararáðs hafa sett kjaraviðræður í uppnám

Mikil launa­hækkun hjá ráða­mönnum þjóð­ar­innar hefur hleypt illu blóði í kjara­við­ræður.

Komandi kjara­við­ræður eru á vissan hátt í upp­námi, vegna úrskurða kjara­ráðs að und­an­förnu, en Samtök atvinnu­lífs­ins horfa þó til þess að halda í mark­mið SALEK-sam­komu­lags­ins frá því í byrjun síð­asta árs.

Svipuð sjón­ar­mið hafa verið ríkj­andi innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar og hjá stétt­ar­fé­lögum opin­berra starfs­manna, en úrskurðir kjara­ráðs um tug­pró­senta hækk­anir stjórn­enda hjá hinu opin­bera, í sumum til­vikum aft­ur­virkt, hafa skapað mik­inn vanda og grafið undan þeim sátta­grund­velli sem unnið hefur verið á und­an­förnum árum.

„Skelfileg“ áhrif

Í sam­tölum við Kjarnann segir fólk innan Samtaka atvinnu­lífs­ins (SA), Alþýðu­sam­bands Íslands(ASÍ), og stétt­ar­fé­laga opin­berra starfs­manna, að kjara­ráðs­úr­skurð­irnir hafi verið „skelfi­legir“ fyrir kom­andi kjara­við­ræður.

Eins og hendi væri veifað hafi for­sendur fyrir sátt á vinnu­mark­aði horfið, og þrátt fyrir mik­inn efna­hags­legan upp­gang, og mikla kaup­mátt­ar­aukn­ingu launa á síð­ustu miss­erum, þá væri staðan snúin.

SA horfir þó til þess að halda í mark­miðin sem sett voru niður með Salek-sam­komu­lag­inu, en því var ætlað að stoppa launa­hækkana­ferli sem „engin inni­stæða væri fyrir“ og stuðla að kjara­bótum með stöðugra ytra umhverfi; minni verð­bólgu, lægri vöxtum og lang­tíma­hugsun við mótun samn­ings­mark­miða í kjara­við­ræðum.

Langtímahugsun

SALEK er skamm­stöfun fyrir sam­starf um launa­upp­lýs­ingar og efna­hags­for­sendur kjara­samn­inga. SALEK er afrakstur vinnu sem hófst 2013 með úttekt BSRB, KÍ, BHM, ASÍ, SA og samn­inga­nefnda ríkis, Reykja­vík­ur­borgar og Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga á umhverfi kjara­samn­inga á hinum Norð­ur­lönd­unum, þar sem áhersla var lögð á heild­ar­end­ur­skoðun samn­inga­lík­ans­ins.

Þessi vinna skil­aði sér í sátt allra aðila vinnu­mark­að­ar­ins um að end­ur­skoða aðferða­fræð­ina við samn­inga­gerð um kaup og kjör á vinnu­mark­aði. Und­ir­liggj­andi var þó mik­ill þrýst­ingur á stjórn­völd, um að standa við fyr­ir­heit um góðan jarð­veg sáttar á vinnu­mark­aði.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans hafa atvinnu­rek­endur lýst yfir áhyggjum sínum að und­an­förnu, á vett­vangi Samtaka atvinnu­lífs­ins, af því að samið hafi verið um of miklar launa­hækk­anir í síð­ustu samn­ingum. Margir geirar atvinnu­lífs­ins, meðal ann­ars í verslun, sjáv­ar­út­vegi og ferða­þjón­ustu, muni súpa seyðið af þessu á næsta ári alveg sér­stak­lega.

Atvinnu­leysi mælist hins vegar lítið sem ekk­ert þessi miss­erin, eða á bil­inu 2 til 4 pró­sent, og er mikil vöntun eftir starfs­kröftum í ákveðnum geirum atvinnu­lífs­ins, meðal ann­ars í bygg­ing­ar­iðn­aði. Þá hefur verð­bólga hald­ist í skefjum í meira en þrjú ár en hún mælist nú 1,5 pró­sent.

Tvö prósent á ári?

Innan SA hafa þær raddir heyrst að skyn­sam­legt sé að semja til tveggja ára, með hóf­legum hækk­unum, t.d. tvö pró­sent á ári, ekki síst til að „vernda“ þann árangur sem náðst hafi á und­an­förnum tveimur árum.

Innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar og hjá stétt­ar­fé­lögum opin­berra starfs­manna þá er frekar horft til þess að, sam­ræma launa­þró­un­ina og horfa þá ekki síst til þess hvernig ráða­menn þjóð­ar­innar hafi verið að þró­ast í launum að und­an­förnu.

Fullur skiln­ingur sé á því, að mik­il­vægt sé að skapa góðar for­sendur fyrir meiri stöð­ug­leika, en almenn­ingur á vinnu­mark­aði geti ekki sætt sig við að stjórn­endur hjá rík­inu og ráða­menn þjóð­ar­innar, fái að hækka hlut­falls­lega hraðar og meira en aðrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár