20% telur að snjalltæki frá vinnuveitanda hafi mikil áhrif á einkalíf

Samkvæmt nýrri könnun Maskínu telur um fimmt­ungur þeirra sem fá snjall­tæki frá vinnu­veit­end­anum þau hafa áhrif á einka­líf sitt.

Meirihluti þeirra sem fá snjalltæki frá vinnuveitenda svara oft skilaboðum utan vinnutíma
Meiri­hluti þeirra sem fá snjall­tæki frá vinnu­veit­enda svara oft skila­boðum utan vinnu­tíma Mynd: Birgir Þór Harðarson

Um fimmt­ungur þeirra sem fá snjall­tæki frá vinnu­veit­enda sínum telja að það hafi mikil áhrif á líf sitt utan vinnu­tíma, sam­kvæmt nýrri könnun sem fram­kvæmd var fyrir BHM. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu banda­lags­ins sem gefin var út í dag.

Könnunin, sem fram­kvæmd var af Maskínu milli 5. Maí og 28. Júní náði til 2.232 manna handa­hófsúr­taks úr 27 aðild­ar­fé­lögum banda­lags­ins. Um 28% svar­enda sögð­ust hafa snjall­síma til umráða frá vinnu­veit­enda sínum, 7% spjald­tölvu og 0,5% snjallúr.

Í könn­un­inni kom einnig fram að 40% svar­enda svar­aði skila­boðum utan hefð­bund­ins vinnu­tíma með snjall­tæki oftar en fjórum sinnum í viku, og þar af 20% dag­lega.

Meiri­hluti svar­enda sem hafa snjall­tæki frá vinnu­veit­enda kvaðst oft eða mjög oft fá ein­hvers konar skila­boð vegna vinn­unnar í tækið utan hefð­bund­ins vinnu­tíma. 

Um fimmt­ungur þeirra svar­enda sem hafa snjall­tæki frá vinnu­veit­enda sögðu að tækið hefði frekar mikil eða mjög mikil áhrif á hvíld­ar­tíma sinn eða sam­skipti við fjöl­skyldu og vini. Um fjórð­ungur svar­enda töldu snjall­tækin hafa í með­al­lagi mikil áhrif en rúm­lega helm­ingur sagði það hafa frekar lítil eða mjög lítil áhrif.

„Sú mynd sem birt­ist okkur í þess­ari könnun veldur nokkrum áhyggjum. Hún stað­festir það sem við töldum okkur vita. Skil milli vinnu og einka­lífs hafa orðið ógreini­legri en þau voru áður með til­komu snjall­tækja. Í stað þess að veita nauð­syn­legan sveigj­an­leika geta snjall­tækin valdið því að fólk sé í vinn­unni allan sól­ar­hring­inn,“ segir Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir, for­maður BHM í frétta­til­kynn­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stéttarfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár