Jöklabréf verða ekki lengur leyfð

Útgáfa svo­kall­aðra jökla­bréfa verða ekki lengur leyfð eftir reglu­breyt­ingu frá Seðla­bank­anum sem tekur gildi á morgun. Heimilt hafði þó verið að gefa þau út síðan gjald­eyr­is­höft­unum var aflétt í mars.

Svokölluð jöklabréf voru mjög vinsæl á árunum fyrir hrun
Svokölluð jökla­bréf voru mjög vin­sæl á árunum fyrir hrun Mynd: NASA

Nýjar reglur um gjald­eyr­is­mál hjá Seðla­banka Íslands gerir það að verkum að útgáfa skulda­bréfa í íslenskum krónum erlendis verði ekki lengur heimil. Regl­urnar voru birtar í dag en taka gildi á morgun. 

Með aflétt­ingu gjald­eyr­is­hafta 14. Mars síð­ast­lið­inn voru tak­mark­anir á fjár­magns­hreyf­ingum og gjald­eyr­is­við­skiptum að mestu leyti felldar niður. Síðan þá hafa heim­ili og fyr­ir­tæki getað stundað gjald­eyr­is­við­skipti, lán­töku og fjár­fest­ingar erlendis nokkurn veg­inn án hind­r­ana. 

Meðal ann­arra fjár­mála­gern­inga sem leyfðir voru með aflétt­ingu gjald­eyr­is­haft­anna var útgáfa skulda­bréfa í íslenskum krónum erlendis, eða svo­kall­aðra jökla­bréfa. Bréfin voru mjög vin­sæl á árunum fyrir hrun og stuðl­uðu að mik­illi skuld­setn­ingu og inn­streymi erlends gjald­eyris.

Seðla­bank­inn telur því rétt að bregð­ast við áður en skamm­tímakrón­u­staða erlendra aðila bygg­ist up að nýju með til­heyr­andi þjóð­hags­legri og fjár­mála­legri áhættu. Reynslan hafi sýnt að fjár­magnsinn­flæði tengt útgáfu svo­kall­aðra jökla­bréfa gæti dregið úr áhrifa­mætti pen­inga­stefn­unnar.

Vandi jökla­bréfa liggur í því að miðlun pen­inga­stefn­unnar yrði beint úr vaxtaf­ar­vegi um hinn ófyr­ir­sjá­an­lega geng­is­far­veg, sem geti ýtt undir geng­is­sveiflur íslensku krón­unnar og kynt undir ósjálf­bæra útlána­þenslu og eigna­verðs­hækkun. 

Til þess að tryggja virkni bind­ing­ar­skyld­unnar eftir losun fjár­magns­hafta er reglum um gjald­eyr­is­mál breytt þannig að und­an­þága sem þær veita til afleiðu­við­skipta við fjár­mála­fyr­ir­tæki hér á landi í áhættu­varna­skyni nái ekki til afleiðu­við­skipta vegna áhættu­varna í tengslum við skulda­bréfa­út­gáfur í íslenskum krónum erlendis.

Til við­bótar eru gerðar nokkrar breyt­ingar á regl­unum sem þrengja gild­is­svið und­an­þága sem veittar voru með aflétt­ingu gjald­eyr­is­haft­anna. Auk þess bæt­ast við ákvæði um til­kynn­ing­ar­skyldu fjár­mála­fyr­ir­tækja og ann­arra sem stunda fjár­magns­við­skipti til Seðla­banka Íslands um til­teknar fjár­magns­hreyf­ingar í inn­lendum og erlendum gjald­eyri.

Í til­kynn­ingu Seðla­bank­ans segir að regl­urnar taki gildi á morgun, 27. Júní.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabankinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár