Lægsta skuldahlutfall ríkisins frá 2008

Heild­ar­skuldir rík­is­ins námu 69,5% af lands­fram­leiðslu á fyrsta árs­fjórð­ungi árið 2017. Skulda­hlut­fallið er það lægsta frá þriðja árs­fjórð­ungi 2008.

Staða ríkiskassans hefur batnað með stöðugum hætti á síðustu þremur árum.
Staða rík­is­kass­ans hefur batnað með stöð­ugum hætti á síð­ustu þremur árum. Mynd: Pexels

Heild­ar­skuldir rík­is­ins voru 69,5% af áætl­aðri lands­fram­leiðslu á fyrsta árs­fjórð­ungi 2017. Hlut­fallið er það lægsta frá hruni, en það hefur stöðugt lækkað frá fjórða árs­fjórð­ungi 2014.

Þetta kemur fram í Hag­tíð­indum Hagstofu sem komu út fyrr í dag. Þar voru fjár­mál hins opin­bera einnig rædd, en hreinar tekjur rík­is­ins á fyrsta árs­fjórð­ungi 2017 námu 17,6 millj­örðum króna. Eru það einnig hæstu árs­fjórð­ungs­tölur þess efnis frá hruni, ef litið er fram hjá stöð­ug­leika­fram­lagi frá kröfu­höfum föllnu fjár­mála­fyr­ir­tækj­anna í fyrra.

Stöð­ug­leika­fram­lagið skekkir mynd­ina tölu­vert, en vegna þeirra mæld­ust hreinar tekjur á fyrsta árs­fjórð­ungi árið 2016 um 384,3 millj­arðar króna. Án þeirra hefðu hreinar tekjur rík­is­ins hins vegar verið nei­kvæðar um 13 millj­arða króna, eins og sjá má á mynd að ofan.

Tekju­af­koman er 3,1% af lands­fram­leiðslu árs­fjórð­ungs­ins. Til sam­an­burðar voru hreinar tekjur rík­is­sjóðs nei­kvæðar um 2,5% af lands­fram­leiðslu síð­asta árs, ef stöð­ug­leika­fram­lag er ekki talið með.

[adspot]Tekju­aukn­ing rík­is­ins er ekki til­komin vegna nið­ur­skurðar í rík­is­fjár­málum, þvert á móti hefur sam­neysla auk­ist um 1,8% umfram verð­bólgu frá síð­asta árs­fjórð­ungi, auk þess sem launa­kostn­aður hefur auk­ist tölu­vert. Á móti vegur að skatt­tekjur og trygg­ing­ar­gjöld til rík­is­ins hafi auk­ist nokkuð, eða um 7,6% milli ára.

Samhliða bættri afkomu rík­is­sjóðs hefur hlut­fall skulda af lands­fram­leiðslu lækkað stöðugt frá árs­lokum 2014. Nú er það komið niður í 69,5% , sem er lægsta skulda­hlut­fall frá hruni. Hæst var í skulda­hlut­fallið í tæpum 110% árið 2011.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hagtölur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár