Salernum komið upp fyrir ferðamenn á 15 stöðum um allt land

Hafin er upp­bygg­ing á 34 sal­ernum á 15 ferða­manna­stöðum víðs vegar um landið. Upp­bygg­ingin er unnin af Atvinnu­vega-og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu í sam­starfi við Vega­gerð­ina.

Mikill skortur hefur verið á salernisaðstöðu á ferðamannastöðum, samkvæmt Stjórnstöð ferðamála.
Mikill skortur hefur verið á sal­ern­is­að­stöðu á ferða­manna­stöðum, sam­kvæmt Stjórn­stöð ferða­mála. Mynd: Birgir Þór

Atvinnu­vega-og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið hefur í sam­starfi við Vega­gerð­ina hafið fram­kvæmd á upp­bygg­ingu 34 sal­erna á 15 stöðum víðs vegar um landið. Þetta kemur fram á vef ráðu­neyt­is­ins.

Samstarf ráðu­neyt­is­ins og Vega­gerð­ar­innar kom til í fram­haldi ábend­ingar frá Stjórn­stöð ferða­mála fyrr á þessu ári. Þar skil­greindi hún bætt aðgengi ferða­manna að sal­ernum á lands­byggð­inni sem eitt af brýnum for­gangs­verk­efnum fyrir árið 2017. Meðal ann­arra for­gangs­verk­efna eru úrbætur í örygg­is­málum ferða­manna og aukin land­varsla, en ráðu­neytið til­greinir að þau séu öll komin til fram­kvæmda eða í öruggu ferli.

[adspot]Sal­ern­is­stað­irnir voru valdir af Stjórn­stöð ferða­mála í sam­ein­ingu við Vega­gerð­ina, en þau byggðu val sitt meðal ann­ars á fyrri grein­ingum verk­fræði­stof­unnar Eflu. Sér­stak­lega var litið til þess hversu langt væri til næsta þjón­ustu­staðar.

Áætlaður kostn­aður eru 90 millj­ónir króna og stendur ráðu­neytið straum af honum öllum, en ráð­herra ferða­mála lagði áherslu á að verk­efni yrði klárað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár